Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 57
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 55 Þessi fræðilega samantekt varpar ljósi á fjölbreytilega þætti sem hafa áhrif á ávinning dansmeðferðar fyrir einstaklinga með PS. Þó að dansmeðferð sé ekki kerfisbundið til staðar á Íslandi í dag, geta hjúkrunarfræðingar hvatt samfélagið til að bjóða upp á dansmeðferð og ráðlagt sjúklingum og aðstandendum þeirra að nýta sér úrræði sem eru á netinu og fjallað samhliða um örugga meðferð. Það er um að gera að hvetja einstaklinga með PS til að finna öruggar leiðir til að skella sér á dansgólfið og „dansa til betra heilbrigðis“! LOKAORÐ Fræðigrein Vitað er að einstaklingar með PS leita sér oft úrlausna með viðbótarmeðferðum og getur dansmeðferð verið fýsilegur, gagnlegur og skemmtilegur kostur sem hefur fjölþættan ávinning fyrir þennan hóp (Rabin o.fl., 2015). Dansmeðferð er árangursrík leið til að örva bæði hreyfingu og félagsleg samskipti með því að hreyfa sig með öðru fólki og upplifa snertingu og nánd (Westheimer o.fl., 2015; Hidalgo-Agudo o.fl., 2020). Þegar þátttakendur hitta aðra einstaklinga sem glíma við svipaða erfiðleika, upplifa þeir sig sem hluta af einni heild sem er mikilvægt og dregur úr einkennum eins og kvíða og þunglyndi (Hashimoto o.fl., 2015; Shanahan o.fl., 2015). Dansinn eflir einnig minni og eigin líkamsvitund þegar þátttakendur þurfa að muna, skipuleggja og framkvæma hreyfingar (Hashimoto o.fl., 2015). Ef meðferðin er skipulögð rétt er hún örugg en það eru margir þættir sem mikilvægt er að gefa gaum við útfærslu hennar. Dansmeðferð er vannýtt miðað við þann ávinning sem hún skilar. Rannsókn Raje og félaga (2019) varpaði ljósi á að af þeim einstaklingum með PS sem stunduðu reglulega hreyfingu hefðu eingöngu 19% prófað dansmeðferð. Líkamsæfingar sem mest voru notaðar af þátttakendum voru göngur og um helmingur þeirra gerði teygjur. Íhuga má hvort einstaklingar með PS, aðstandendur og heilbrigðisstarfsmenn séu nægjanlega upplýstir um gagnsemi dansmeðferðar og hvort dansmeðferð sé í boði (Lee o.fl., 2019). UMRÆÐA Dansmeðferð getur verið gagnleg bæði í litlu eða miklu magni. Séu strangar kröfur gerðar um mætingu geta líkur á brottfalli aukist. Með því að gefa einstaklingi færi á að stjórna meðferðinni að hluta til, fæst hvatning til þátttöku og aukinnar meðferðarheldni. Sú tilhugsun að skuldbinda sig til að mæta reglulega, til dæmis tvisvar í viku er eitthvað sem einstaklingum með PS vex oft í augum, hugsanlega vegna sveiflukenndra einkenna sjúkdómsins. Ljóst er að mörg ólík dansform eru til líkt og tangó, þjóð- og samkvæmisdansar og hægt er að skipuleggja kennsluna þannig að fólk dansi í litlum hópum, í pörum eða jafnvel einir. Það er einstaklingsbundið hvað hentar hverjum og einum best. Almennt þykir tangó eitt árangursríkasta dansformið til að bæta göngulag og jafnvægi (Ghaffari og Kluger, 2014). Dansmeðferð hefur fengið litla og ómarkvissa athygli á Íslandi. Nýlega hafa Parkinsonsamtökin haft frumkvæði að danstímum þar sem meðlimir samtakanna gátu dansað reglulega saman, en þörf var á að slíta þeim tímum vegna COVID-19 faraldursins (Parkinsonsamtökin, 2021). Áhugavert er að líta til útfærslu dansmeðferða í heimahúsum til dæmis með aðstoð myndbandsupptaka eða fjarfundarbúnaðar. Tæknin er sífellt að verða öflugri og því væri gaman að skoða möguleikana á því að nýta hana til að bjóða upp á reglulegar heimaæfingar fyrir einstaklinga með PS og aðstandendur þeirra. Þrátt fyrir ávinning af heimaæfingum geta þær ekki komið fyllilega í staðinn fyrir dansmeðferð sem er veitt á vettvangi. Sérstakar áskoranir við danskennslu í gegnum fjarfundarbúnað eru til dæmis að tryggja að þátttakendur hafi aðgang að nettengingu og að þeir séu með nægilegt rými heima fyrir til að dansa. Rannsókn Shanahan og félaga (2015) tók fram að þrátt fyrir að dansmeðferð sé oft fýsileg eru fáar rannsóknir sem hafa fjallað um öryggi þátttakenda. Líkt og við áttum von á sýndu niðurstöður okkar mismunandi leiðir sem nota má til að efla öryggi og stuðla að aukinni meðferðarheldni. Hjúkrunarfræðingar geta til að mynda veitt ráðleggingar þegar kemur að því að útfæra dansmeðferð, sérstaklega varðandi byltuvarnir, sjúkdómsímynd, þátttöku aðstandenda og jafnvel með því að finna úrræði til að komast í meðferð. Hægt er að þróa fræðsluefni og ný úrræði með því að hafa mynd 2 til hliðsjónar. Áskoranir Skert hreyfifærni, verkir og lyfjameðferð gátu hindrað framkvæmd dansmeðferðar (Kunkel o.fl., 2017). Tvær rannsóknanna greindu frá fjarlægð þátttakenda frá vettvangi eða vandamál við að koma sér á vettvang (Kunkel o.fl., 2017; Michels o.fl., 2018), en önnur þeirra nefndi einnig erfiðleika við að finna dansfélaga fyrir hvern og einn þátttakanda (Kunkel o.fl., 2017). Rocha og félagar (2017) bentu á að ein dansæfing í viku væri heldur lítið til að læra flókin dansspor. Við framkvæmd einnar rannsóknarinnar var ekki boðið upp á sjálfboðaliða og þurftu þátttakendur þess vegna sjálfir að útvega sér dansfélaga en það hindraði þátttöku (Shanahan o.fl., 2017). Af þeim tveimur rannsóknum sem könnuðu dansæfingar sem voru framkvæmdar heima greindi önnur þeirra frá því að brottfall við heimaæfingar hafi verið hátt og að meðferðarheldni við þær ekki nægjanlega góð (Shanahan o.fl., 2017). Hin rannsóknin sýndi að dansþjálfun í heimahúsi skorti þætti líkt og félagslega virkni, snertingu og hreyfisvörun frá dansfélaga (Albani o.fl., 2019). Þar að auki minntist rannsóknin á áskoranir líkt og að finna dansfélaga til að dansa við og að hafa nægilegt rými heima. Rannsókn Seidler og félaga (2017) kom einnig inn á mikilvægi þess að leysa úr áskorunum dansmeðferðar með fjarfundarbúnaði inni á heimili einstaklinga með PS. Til að mynda að tryggja aðgengi að veraldarvefnum, viðeigandi tæknibúnaði og nægilegu rými á heimilinu til að geta dansað. Undirstrikuð var nauðsyn þess að huga vel að því að hafa öryggisaðila/aðstoðarmann/ aðstandendur á staðnum þegar danstímar fóru fram í heimahúsi með notkun fjarfundarbúnaðar.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.