Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 63

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 63
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 61 Gerður Jónsdóttir, 2013). Nýleg rannsókn Kristínar Þórar- insdóttur o.fl., (2020) sem fór fram innan Heilbrigðis-stofnunar Norðurlands sýndi að vægi þjónandi forystu hjá yfirmönnum á hjúkrunarsviðum hefur aldrei verið meira. Aðstæður í heilbrigðiskerfinu geta verið mjög krefjandi og er mikilvægt að vinnuumhverfið sé hvetjandi og styðjandi við starfsmenn (Gunnarsdottir, 2014). Sýnt hefur verið fram á að þjónandi forysta sé árangursríkur stjórnunarstíll (Hanse o.fl., 2016; Sigrún Gunnarsdóttir og Birna Gerður Jónsdóttir, 2013) sem hentar einkum vel innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu (Gunnarsdottir, 2014; Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015). Stjórnunarstíllinn ýtir undir góð samskipti, traust og virðingu á milli yfirmanns og starfsfólks. Þjónandi forysta leiðir einnig af sér aukin afköst í vinnu, aukna starfsánægju og hollustu til stofnunar. Jafnframt leiðir hún af sér minni starfsmannaveltu og meiri ánægju með stjórnendur (Gunnarsdóttir, 2014; Hanse o.fl., 2016). Til að mynda sýndi rannsókn Huldu Rafnsdóttur o.fl. frá árinu 2015 að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri telur þjónandi forystu eiga þátt í því að auka gæði þjónustunnar og öryggi skjólstæðinga. Almennt virðist svo vera að starfsfólk heilbrigðisstofnana á Íslandi sé ánægt með þjónandi stjórnunarhætti og tengi þá við aukna starfsánægju (Hulda Rafnsdóttir o.fl., 2015; Kristín Þórarinsdóttir o.fl., 2020; Þóra Gunnarsdóttir, 2019). Sambærilegar niðurstöður fengust úr annarri íslenskri rannsókn þar sem skoðað var hvort tengsl væru á milli starfsánægju og þjónandi eiginleika stjórnenda. Fjögur sjúkrahús á Íslandi tóku þátt í rannsókninni þar sem flestir þátttakendur voru hjúkrunarfræðingar, 33% voru sjúkraliðar og 18% annað starfsfólk. Þátttakendur svöruðu bæði könnun um þjónandi forystu ásamt nokkrum spurningum um starfsánægju. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þjónandi forysta er vissulega til staðar í íslensku heilbrigðiskerfi og sterk tengsl eru á milli þjónandi eiginleika hjúkrunarstjórnenda og ánægju starfsfólks í starfi. Rannsóknin styrkir því þá staðhæfingu að þjónandi forysta henti vel innan heilbrigðiskerfisins (Gunnarsdottir, 2014). Könnun Sigrúnar Gunnarsdóttur og Birnu Gerðar Jónsdóttur (2013) bendir þó til að efla þurfi nokkra þætti líkt og siðferði, traust og fagmennsku hjá stjórnendum sem fylgja hugmyndafræði þjónandi forystu á Íslandi. Með því að tryggja velferð og hag þegna sinna getur þjónandi leiðtogi skapað samfélag sem ýtir undir lýðræði, réttlæti og farsæld í íslenskum skipulagsheildum (Sigrún Gunnarsdóttir og Birna Gerður Jónsdóttir, 2013). Hjúkrunarfræðingar í klínískri vinnu Hjúkrunarfræðingar eru fjölmennasta heilbrigðisstéttin á Íslandi og því mikilvæg forsenda þess að hægt sé að halda uppi öruggu og skilvirku heilbrigðiskerfi. Hjúkrunar- fræðingar gegna gríðarlega mörgum hlutverkum innan heilbrigðiskerfisins og er eitt af þeim stjórnunarhlutverk (Heilbrigðisráðuneytið, 2020), bæði formlegt og óformlegt. Almennt séð hafa stjórnendur viðeigandi titla. Rannsóknir hafa þó sýnt að reynslumiklir hjúkrunarfræðingar sem færir eru í klínískri umönnun sjúklinga séu óformlegir leiðtogar meðal jafningja sinna (Lawson og Fleshman, 2020). Booher o.fl. (2021) gerðu eigindlega rannsókn sem fór fram á tveimur sjúkrahúsum í Bandaríkjunum þar sem rætt var við 20 klíníska hjúkrunarfræðinga. Allir 20 þátttakendurnir höfðu eiginleika þjónandi stjórnanda í klínískri vinnu sinni, hvort sem þeir voru meðvitaðir um það eða ekki. Þá niðurstöðu fengu rannsakendurnir út frá lýsingum hjúkrunarfræðinganna á starfi sínu, sem töldu upp öll mikilvægustu einkenni þjónandi stjórnunarhátta. Hjúkrunarfræðingarnir tjáðu að hlutverk þeirra væri að forgangsraða og úthluta verkefnum, samræma umönnun og eiga samskipti við og vinna með öðru starfsfólki og jafnframt að vera forsvarsmenn skjólstæðinga sinna, hvetja þá áfram og fræða þá. Hjúkrunarfræðingarnir lýstu því einnig að þeir teldu hlutverk sitt vera að annast skjólstæðinga sína með sanngirni, auðmýkt og samkennd (Booher o.fl., 2021). Auk þess eru hjúkrunarfræðingar kennarar og fyrirmyndir nýliða og veita leiðsögn í starfi (Heilbrigðisráðuneytið, 2020). Í rannsókninni kom einnig fram að hjúkrunarfræðingarnir settu almennt þarfir skjólstæðinga sinna í fyrsta sæti. Gátu borið kennsl á styrkleika annarra í starfi og fengið viðeigandi aðstoð til að fá sem besta útkomu fyrir skjólstæðinginn (Booher o.fl., 2021). Stjórnendur á hjúkrunarsviðum Hjúkrunarfræðingar fá oft lítinn undirbúning fyrir stjórnunar- störf innan heilbrigðiskerfisins sem geta verið mjög flókin og illa afmörkuð (Gunawan o.fl., 2018). Miklar kröfur eru gerðar til hjúkrunarstjórnenda. Algengt er að þeir hafi of mörg verkefni sem leiða til mikillar yfirvinnu og erfiðleika við að samræma einkalíf og vinnu (Sandra Sif Gunnarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2020). Hjúkrunarfræðingar í stjórnunarstöðum hafa tjáð að starfinu fylgi gífurleg ábyrgð, persónuleg skuldbinding og einangrun sem fjarlægi þá frá klínísku starfi (Cabral o.fl., 2018). Jafnframt hafa þeir tjáð að mikið álag fylgi starfinu vegna mönnunarvanda og skorti á stuðningi frá yfirmönnum (Sandra Sif Gunnarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2020). Margir persónulegir þættir geta haft áhrif á eða stuðlað að stjórnunarhæfni hjúkrunarfræðinga líkt og menntunarstig, reynsla, aldur og persónuleiki. Til að mynda verða stjórnendur hæfari eftir því sem menntunarstig er hærra og meiri reynsla er á stjórnunarhlutverki. Samkvæmt módeli Gunawan o.fl. (2018) felast þó lykilatriðin í skipulagsheildinni og þátta innan hennar sem hafa áhrif á hæfni hjúkrunarfræðinga til að stjórna. Þjálfun og handleiðsla geta haft góð áhrif á þróun stjórnunarhæfni hvort sem hún kemur frá yfirmanni eða öðrum og ýtir undir starfsánægju og góð samskipti. Ákjósanleg þjálfun er sveigjanleg, eflandi og hvetur til lærdóms af mistökum. Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga að hafa góða fyrirmynd og fá aðlögun inn í starfið. Einnig þykir mikilvægt að geta átt persónuleg samskipti við yfirmenn, fá stuðning frá mannauðsteymi og hafa skýra og afmarkandi starfslýsingu. Mælt er með því að hjúkrunarstjórnendur setji sér markmið út frá skipulagsheildinni sem þeir tilheyra og fái reglulega mat á frammistöðu sinni. Getur það líka haft góð áhrif á stjórnendur að fara á eflingar námskeið (e. empowerment program) sem eykur sjálfstraust þeirra í starfi (Gunawan o.fl., 2018). Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga í opinberri stjórnunarstöðu getur verið mjög streituvaldandi (Cabral o.fl., 2018; Sandra Sif Gunnarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2020; Sigríður Halldórsdóttir o.fl., 2016) og eiga þeir hættu á að þróa með sér streitueinkenni svo sem stoðkerfisverki og svefnvandamál (Sigríður Halldórsdóttir o.fl., 2016). Samkvæmt rannsókn Sigríðar Halldórsdóttur o.fl. (2016) hefur meiri hluti Fræðigrein
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.