Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 74
72 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 Að ná tökum á kvíðanum Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um að upplifun kvenna af HAM-námskeiði sé góð og flestar lýsa jákvæðri upplifun við að ná tökum á kvíðanum og láta hann ekki stjórna lífi sínu. Það sem einkenndi konurnar sem þátt tóku í rannsókninni var að þær vildu allar reyna að gera það besta úr aðstæðum sínum og áttu það sameiginlegt að vilja ná tökum á lífinu með því að leita sér aðstoðar. Áhugaverðar niðurstöður er að finna í eigindlegri rannsókn Bernhardsdottir o.fl., (2014) þar sem nokkur þemu þeirrar rannsóknar eru sambærileg við upplifun kvenna í okkar rannsókn. Þetta samræmist þeim þætti í rannsókninni að þátttakendum fannst gott að fá verkfæri HAM í hendurnar eins og hugsanaskrána. HAM- námskeiðið hjálpaði þeim að endurmeta neikvæðar hugsanir og þær fóru að hugsa hlutina upp á nýtt með jákvæðari og uppbyggilegri hætti sem var lykillinn að því að þeim fór mörgum að líða betur. Þátttakendum leið ekki öllum vel í byrjun en þegar andlega líðanin batnaði fylgdi betri líkamleg líðan í kjölfarið. Margar fundu fyrir meira sjálfstrausti. Þannig náðu þær bæði betri stjórn á huganum og líkamanum og margar fundu fyrir minni kvíða og gátu áttað sig á ástæðum þess að þeim leið illa. Svipaðar niðurstöður má finna í eigindlegri rannsókn eftir HAM-hópmeðferð hjá konum sem voru að glíma við andlega vanlíðan eftir fæðingu (Masood o.fl., 2015). Konurnar í okkar rannsókn fundu fyrir auknu sjálfstrausti og sjálfstjórn sem samræmist niðurstöðum í rannsókn Bernhardsdottir o.fl., (2014). Konurnar í okkar rannsókn, ræddu um líkamsímynd óléttunnar og móðurhlutverkið sem olli þeim áhyggjum og kvíða og þær höfðu áhyggjur af því hvað fólk og samfélags- miðlar segðu til dæmis um útlit þeirra og stærðina á bumbunni. Í niðurstöðum okkar kom í ljós að konurnar höfðu missterka sjálfsmynd og því gat svona umræða haft talsverð neikvæð áhrif á þær. Í ástralskri eigindlegri rannsókn Staneva o.fl., (2017) sögðu barnshafandi konur með andlega vanlíðan frá sams konar áhyggjum og þær sögðust finna fyrir þrýstingi með að líta alltaf vel út, virðast glaðar og ánægðar með meðgönguna. Niðurstöður okkar rannsóknar líkt og í rannsókn Staneva o.fl., (2017) gefa vísbendingu um að miklar kröfur og sterk skilaboð í orðræðu samfélagsins valdi óöryggi og auki á kvíða og vanlíðan hjá konum. Það er sífellt algengara að konur glími við kvíða fyrir og eftir fæðingu. Í rannsókn Kristensen o.fl., (2018) kom einnig fram að foreldrahlutverkið geti verið flókið, sérstaklega fyrir frumbyrjur. Mikilvægt er að fylgjast afar vel með frumbyrjum því samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á andlega líðan kvenna, heimur frumbyrja sé að breytast og væntingar þeirra til móðurhlutverksins séu oft aðrar en raunveruleikinn og það getur verið erfitt og krefjandi til dæmis þegar barnið er óvært, sömuleiðis þegar baklandið er lítið eða þegar erfiðleikar verða í sambandinu (Borglin UMRÆÐUR og Telma orðaði það. Mikilvægt að halda líka sjálf áfram þessari vinnu og halda áfram í viðtölum hjá sálfræðingnum ef maður hefur eitthvað farið til sálfræðings þá veit maður að vinnan liggur hjá þeim sem er í meðferðinni en ekki hjá sálfræðingnum, hann er ekki með einhvern sprota (Telma). Þriðja þemað er; maður er ekki einn. Flestum fannst mikil heilun í því að deila reynslunni og að vita að maður er ekki einn með þessar hugsanir og líðan en það var mismunandi eftir samsetningu hópsins hvort þeim fannst stuðningur í hópnum. Þær sem voru á hópnámskeiði eingöngu með barnshafandi konum fannst öllum hópurinn vera stuðningur og þær fundu fyrir samstöðu hver með annarri og meiri umræður sköpuðust. Rögnu fannst gott að finna fyrir samstöðu með hinum konunum og Jóhanna tók í svipaðan streng: „Þetta var fjölbreyttur hópur af konum og gott að sjá og upplifa að maður er ekki einn. Það var gott að geta verið í hóp þar sem allt mögulegt er rætt“ (Jóhanna). Konurnar í blandaða hópnum fundu ekki fyrir eins miklum stuðningi frá hópnum. Telmu fannst ekki stuðningur í hópnum því það voru svo fáir að tjá sig og deila líðan, hugsun og upplifun sinni, henni fannst vanta meiri umræður í lokin. Síðasta undirþemað fjallaði um hversu mikilvægt konunum þótti að geta talað um líðan sína; að tala opinskátt. Þær lýstu því allar hversu mikilvægt það var að hafa góðan félagslegan stuðning í kringum sig og gott bakland frá maka, fjölskyldunni eða vinum. Sérstaklega þegar þeim leið illa og hvað það var þá mikilvægt að geta talað opinskátt um líðan sína svo að fólkið í kring skilji og geti þannig veitt þeim stuðning: „Að geta talað um mína líðan og sagt, heyrðu mér líður bara pínu illa núna getur þú leyft mér að vera ein og í friði í smástund, en hann (maki) er mjög skilningsríkur með mig og minn kvíða“ (Ragna). Bjargráðin – Að nýta sér alls konar hluti Síðasta meginþemað nefnist; Bjargráðin – að nýta sér alls konar hluti. Eftir námskeiðið gripu konurnar til ýmissa bjargráða til að takast á við kvíða eða vanlíðan. Bjargráðin nýttust þeim í mörgum þáttum daglegs lífs, þær lærðu nýjar aðferðir til að koma á breytingum í lífi sínu og til að fá meira út úr lífinu. Þær fóru að hugsa meira um að gera hluti sem stuðluðu að þeirra eigin vellíðan og upplifðu að þær væru meðvitaðri um að nýta sér ýmis bjargráð. Þessi hugsanaskrá mér finnst hún langbesta verkfærið en ég geri þetta ósjálfrátt núna í huganum, ég nýtti mér líka hin verkfærin ... ég hef aldrei verið eins vel á mig komin andlega og líkamlega eins og þegar ég fór út í langan göngutúr og hlustaði á tónlist, ég var sú sem labbaði meðfram götunni og dansaði, en það er eitthvað sem ég þarf að koma inn á listann hjá mér, ég þarf að gera meira fyrir mig (Jóhanna). Konurnar voru flestar orðnar félagslega virkari og létu félagskvíðann ekki stoppa sig og reyndu að gera eitthvað ánægjulegt fyrir sig. Það sem þær nýttu sér til að líða betur var m.a. hugsanaskráin, ýmiss konar skipulag og endurmat, gera eitthvað ánægjulegt fyrir sig eins og hreyfingu, fara í göngutúra, sund og jóga. Einnig prófuðu sumar hugleiðslu, slökun eða flot í vatni.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.