Heilbrigt líf - 01.12.1947, Blaðsíða 95
sama og í Rússlandi. Fjórða er Bosnía og Herzegóvína.
Hávaðinn af því fólki játar Múhameðstrú, mælir á sömu
tungu og Serbar, en notar þó latneskt letur. Loks er lýð-
veldið Montenegró, sem byggist af Svartfjallasonum.
Þessi lönd eru talin hafa álíka sjálfstjórn og fylkin í
Sviss. En það eru ekki öll kurl til grafar komin, því að
enn eru ótaldir Albanar, Tyrkir, Búlgarar, Rúmenar,
Rútenar, Slóvakar, Tékkar, Ungverjar og ítalir. Ung-
verjaland og Italía áttu í ófriði við Júgóslava, en það
fylgir sögunni, að þjóðernin séu ekki látin gjalda þess.
Ungverjar og Italir hafi skóla út af fyrir sig og ekki
sé nein hreyfing þeirra á meðal um að flytjast úr landi.
Þjóðverja gætir lítið, enda fluttust þeir mjög burtu á
dögum Hitlers eða flýðu land, þegar fór að halla fyrir
þeim í ófriðnum. Þýzkir fangar eru í haldi eða eru látnir
vinna. Meðferðin líklega misjöfn eins og gengur um
ófrjálsa menn. Sem dæmi þess, að Júgóslavar séu vægari
en Tékkar í þjóðernismálum, er það nefnt, að þeir færist
ekki undan að tala þýzku við útlenda aðkomumenn.
(Tekið eftir Erling Bjöl í G.H.S.T. 6/9 ’46).
Skæðasti sjúkdómur mannkynsins
Sjúkdómstilfelli af mýraköldu koma fyrir í milljónatali á
ári hverju. Veikin berst með mýbiti sérstakrar flugu, er spýtir
sóttnæminu um teið og hún stingur. Kínín er sá læknisdómur,
sem bezt befur reynzt við þessari veiki, er lýsir sér með lifrar-
bólgu og ofsalegum hitaflogum. En, þegar Japanar lögðu undir
sig boltenzku nýlendurnar í Austur-Asíu (Java o. fl.), hrifsuðu
þeir um leið í sínar hendur 90% af ldnín-framleiðslu heimsins.
Kínín — unnið úr trjáberkinum — hefur fram á síðari ár verið
eina lyfið, sem að verulegu gagni kom við mýraköldu. — Sem
betur fer, kom þó fyrir fáum árum á markaðinn nýtt verk-
smiðjulyf — Atabrin ■— og er nú farið að framleiða það í stór-
um stíl til lækninga á mýraköldu, og þykir það gefast allt að
því jafnvel og kínínbörkurinn.
Heilbrigt lif — 14
209