Úrval - 01.12.1942, Page 26
24
ÚRVAL
manna hans saug óhreinindi og
blóð úr sárinu, færði sig úr föt-
unum og breiddi þau yfir Temu-
djin, en læddist síðan inn í her-
búðimar til óvinanna og stal
þar mjólk til að hressa hann á.
Gat hann að lokum komið
Temudjin á óhultan stað. Er
tímar liðu fóru fleiri tryggir
fylgismenn að safnazt undir
merki hans. Menn, er höfðu
fylgt föður hans, gengu í lið
með honum.
Hann var orðinn höfðingi inn-
an við tvítugt. Þá tók hann að
leitast við að vinna að því, ýmist
með vopnum eða brögðum, að
fá aðrar ættkvíslir í bandalag
við sig. Hann var alltaf foring-
inn, því að ef einhver reyndi að
verða honum jafnmikill að met-
orðum, þá drap hann þann
keppinaut með köldu blóði.
Hann átti frænda, er Jamuga
hét. Þegar Temudjin átti í basli,
höfðu þeir sofið undir sömu
ábreiðu, höfðu skipt bróðurlega
milli sín seinustu matarbitunum
og veitt hagamýs í sameiningu,
þegar allur annar matur var
þrotinn. En Jamuga gat ekki
sætt sig við að vera undir aðra
gefinn. Hann safnaði liði, og
lagði til bardaga við frænda
sinn. Þegar orustan var á enda,
var Jamuga leiddur fyrir
frænda sinn í böndum. Temudjin
lét sér hvergi bregða, er hann
sá hann og lét kyrkja hann.
Meðal vina föður Temudjins
hafði verið maður að nafni
Togrul. Hann hafði einu sinm
hjálpað drengnum, þegar mikið
lá við. En að því rak, að þessi
aldni höfðingi vildi ekki beygja
sig fyrir hinum unga manni, svo
að Temudjin lét drepa hann.
Hins vegar var hann mjög ör-
látur við þá höfðingja, er vildu
lúta stjórn hans.
Árin liðu. Temudjin settist að
í Karakorum, „Borg hinna
svörtu sanda“ — en hún var
tjaldborg við aðalkaravana-
brautina frá vestri til austurs.
Hann lét karavanana í friði.
Hann hafði ætlað þeim hlutverk
í framtíðarfyrirætlunum sínum.
Temudjin var þéttur á velli
og gekk jafnan klæddur sauðar-
gæru, brynjaður hörðu leðri.
Göngulag hans var frekar
klunnalegt, eins og títt er hjá
mönnum, sem eru alltaf á hest-
baki. Andlit hans var hrukkótt
og húðin þykk og veðurbarin af
kulda og sandfoki. Hann bar á
það feiti til að verja það kuld-
anum. Það er sennilegt, að hann
hafi ekki þvegið sér mánuðum