Úrval - 01.12.1942, Page 50

Úrval - 01.12.1942, Page 50
48 TÍRVAL að á miðann. Hann varð skyndi- lega óttasleginn. Hann minntist hinna kynlegu orða sessunautar síns, hve augu hans voru ein- kennileg, hve nóttin var dimm, og hann þaut út úr húsinu gagn- tekinn af ofsahræðslu. Honum tókst að finna lögreglustöð, og sagði þar frá því, sem við hafði borið. Lögreglumennirnir tóku honum vel, en þeir gátu ekki að- hafst neitt, því að ekki var um saknæman verknað að ræða. Einn lögregluþjónanna spurði hann þó, hvaða símanúmer hefði verið skrifað á miðann. „Ég hélt, að ég myndi það rétt,“ sagði lögregluþjónninn hróðugur, er hann hafði flett upp í símaskrá. Svo rak hann upp hlátur. „Er þetta ekki skrítið? Þetta er nefnilega símanúmer kirkjugarðsins.“ Það var kynlegt, að dreyma slíka sögu, og draumurinn var svo skýr, að ég man hann enn- þá greinilega. Hann var ólíkur öðrum draumum í því, að hann hvarf ekki, þegar ég vaknaði. Það var engu líkara en að ein- hver hugmyndarík innri vitund hefði fært mér þetta upp í hend- urnar sem borgun fyrir alla fyrirhöfn mína. Þrem dögum síðar ók ég til sjúkrahúss, til þess að hitta konuna mína, sem hafði verið að ala barn. Við eina götuna, sem ég ók um, var betrunar- stofnun fyrir unglinga. Þá birt- ist mér allt í einu önnur saga, alveg eins og í draumi. I þetta skipti fjallaði sagan um götustrák, sem var foringi fyrir félagsskap bílaþjófa. Hann kynntist góðri stúlku, varð ást- fanginn af henni, giftist og bætti ráð sitt. Ég sá hann ganga eftir strætinu, hnugginn á svip. Hann hafði verið atvinnulaus um nokkurn tíma og konan var veik. Hann skorti fé til þess að geta veitt henni þá aðhlynningu, sem hún þurfti. Þegar honum varð reikað fram hjá skraut- legri, mannlausri bifreið, stóðst hann ekki mátið, og stal henni. Hann vissi, að hann gat selt hana fyrir 100 dollara. En um kvöldið var hann handtekinn og farið með hann á lögreglustöðina. Hann varð forviða, þegar fulltrúinn, sem hafði þekkt hann áður fyrr, var ekkert reiður, en aðeins alvar- legur. Hann reyndi að brosar „Áfram, ég veit, að ég er sek- ur“. Fulltrúinn sagði dapurlega: „Danny, konunni þinni versnaði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.