Úrval - 01.12.1942, Qupperneq 100
98
ÚRVAL
þar og árið 1936 var hann kom-
inn til Prag. Hann fékk sönnun
þess, hversu vinsæll hann var
meðal almennings, þegar hann
var setuliðsforingi í Sellju og
Slovenar færðu honum silfur-
sverð að gjöf til að votta hon-
um hollustu sína.
Alexander konungur atti
Serbum gegn Króötum og Slóv-
enum gegn þeim báðum til þess
að skapa óeiningu. Króatar
voru hæggerðir, rólegir og frið-
samir, en Serbar uppstökkir og
herskáir og óeining milli þeirra
boðaði ekkert gott. Mikhailo-
vitch hafði lengi starfað í her-
foringjaráði lands síns, svo að
hann var búinn að fá kunnáttu
í því að finna fimmtu-herdeild-
arstarfsemi, löngu áður en aðra
grunaði, að hún væri til.
Mikhailovitch var um hríð
yfir-eftirlitsmaður jugóslav-
neska hersins og í þeirri stöðu
hafði hann hug á því að útbúa
hann öllum nýtízku vélaher-
gögnum, en yfirmenn hans voru
því mótfallnir. Hann benti hvað
eftir annað á það, að herinn
ætti að hafa nánara samband
við almenning í landinu og þjóð-
iífið yfirleitt. Hann mun hafa
tekið meira eftir því en nokkur
stjórnmálamaður, hversu mjög
sambúð Serba og Króata fór
versnandi og honum var það
ljóst, að það voru flugumenn
nazista, sem réru þar undir.
Hvað eftir annað gagnrýndi
hann harðlega hina gömlu júgó-
slavnesku stjórnmálamenn, sem
hugsuðu ekkert um alþjóðarhag.
Meðan hann var að skyldu-
störfum í héruðum þeim, er
lágu að Adriahafinu, hafði hann
eftirlit með byggingu víggirð-
inga meðfram landamærum
ítalíu og sömuleiðis víggirðinga-
byggingum í Slóveníu meðfram
landamærum Þýzkalands og
Ungverjalands. Hann var í mikl-
um vafa um það, hvort það væri
þess vert, að vera að eyða fé
Júgóslavíu til siíkra hluta, sem
hann taldi að hefði mjög vafa-
samt gildi í hernaði nútímans.
Hann var ákærður fyrir að vera
huglaus og ragur.
Á grundvelli þessara athug-
ana sinna samdi Mikhailovitch
álitsskjal, þar sem hann gagn-
rýndi gerðir stjórnarinnar og
sendi henni skjalið. Neditch, er
var þá hermálaráðherra og varð
síðar quislingur, krafðist þess
af Mikhailovitch, að hann tæki
skjal sitt aftur, en hann svar-
aði með eftirfarandi bréfi:
,,Það er vissulega ekki hægt