Úrval - 01.10.1943, Page 75

Úrval - 01.10.1943, Page 75
ÖLENKA 73 heim og blakkur rykmökkurinn grúfði yfir garðinum, var drep- ið á dyr á húsi ekkjunnar. Ólenka skundaði sjálf til dyra. Hún varð sem þrumu lostin, er hún sá Smirnoff herlækni standa úti fyrir. Hann var orð- inn grár fyrir hærum og búinn að hætti borgara. Ótal gamlar minningar flykktust í hug henn- ar, og hún gat ekki haft hemil á sér. Hún tárfelldi og varpaði sér í fang Smirnoffs, án þess að mæla orð frá vörum. Svo örvita var hún, að hún mundi ekki eftir sér fyrr en þau voru komin inn og sezt að tedrykkju. „Yndið mitt,“ tuldraði hún og skalf af fögnuði. „Vladimir Platónýts! Hvaðan í ósköpun- um kemurðu?“ „Ég ætla að setjast hér að,“ svaraði hann. „Ég hefi verið leystur frá þjónustu í hernum, og ég er kominn til þess að lifa hér sem frjáls og óháður mað- ur. Drengurinn minn er kominn á þann aldur, að hann getur far- ið að stunda menntaskólanám. Hann er orðinn stálpaður. Þú veizt auðvitað, að ég hefi sætzt við konuna mína.“ „Hvar er hún?“ „I gistihúsinu með drenginn. Ég er að leita mér að íbúð.“ „Guð blessi þig. Viltu ekki húsið mitt? Þú getur vel not- azt við það. Ástin mín! Ég myndi ekki heimta neina leigu af þér.“ Hún var orðin ham- stola af æsingu og byrjuð að gráta aftur. „Þú býrð hér. — Það er nóg rúm fyrir mig í álm- unni. — Hvílík hamingja, guð minn góður!“ Daginn eftir var þakið málað og veggirnir þvegnir, og Ólenka gekk um garðinn með kjólerm- arnar brettar upp fyrir olnboga og sagði fyrir verkum. Bros lék um andlit hennar eins og í gamla daga. Hún var hress og glöð eins og hún væri nývökn- uð af löngum svefni. Kona her- læknisins og sonur komu. Hún var mögur og slitleg kona og önugleg á svip. Drengurinn hét Sasja og var tíu ára gamall, lítill eftir aldri, búlduleitur, blá- eygur og með spékoppa í kinn- um. Hann var ekki fyrr kominn inn í garðinn en hann fór að leika sér við kettlinginn og léttir og áhyggjulausir hlátrar hans kváðu við. „Átt þú þenna kött?“ spurði hann Ólenku. „Þú gefur mér einn kettling, þegar hún gýtur. Mamma er svo óttalega hrædd við mýs.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.