Úrval - 01.10.1943, Page 78

Úrval - 01.10.1943, Page 78
76 ÚRVAL orðin læknir eða verkfræðingur, ætti stórt hús, vagn og hesta, konu og börn. Hún sofnaði allt- af út frá sömu hugsunum, og tárin streymdu niður vangana úr lokuðum augum hennar. Og svarti kötturinn hnipraði sig til fóta henni og malaði: Murr, murr, murr. Skyndilega var drepið harka- lega á dyr. Ólenka hrökk upp, dauðskelkuð, og hjartað barðist ákaft í brjósti hennar. Að hálfri mínútu liðinni var hurðin knúin í annað sinn. „Símskeyti frá Kharkoff," hugsað hún og nötraði frá hvirfli til iija. „Móðir hans vill, að hann komi til Kharkoff. Ó, líknsami, góði guð!“ Hún var að örmagnast. Höfuð hennar, fætur hennar og hendur hennar urðu helkaldar. Engin manneskja gat verið jafn óhamingjusöm og hún, fannst henni. Enn leið svo sem ein mín- úta, og svo heyrði hún manna- mál. Þetta var þá læknirinn að koma heim úr samkvæmi. „Guði sé lof og þökk,“ hugs- aði hún. Henni létti í skapi, og hún náði aftur valdi yfir sér. Og hún hallaði sér út af og hugsaði um Sösju, sem svaf í næsta her- bergi og umlaði í svefninum: „Ég ætla að fá þér það. Farðu frá! Hættu þessum látum!“ Jörðin á uppboði. Einu sinni var heimurinn boðinn til kaups og seldur. ÞaS var á annari öld, þegar rómverski keisarinn Pertinax var myrtur af lífvarðarliði sínu. Lífvarðarliðið bauð rómverska keisaradæmið til kaups, þeim sem hæst byði, en það náði þá yfir allt, sem þekkt var af jörðinni um þær mundir. Þann 28. marz árið 193 bauð auðugur maður að nafni Didius Salvius Julianus 25 milljónir króna og hreppti hnossið. En dýrð- in stóð ekki lengi. Nokkrum af herdeildum keisarans, sem voru fjarverandi, fannst smán að þessu tiltæki. Þær héldu heim til Rómaborgar og gerðu upreisn. Og heimurinn var aðeins tvo mán- uði i eign Julianusar. — Christian Herald.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.