Úrval - 01.10.1943, Side 86

Úrval - 01.10.1943, Side 86
84 ÚRVAL með samruna við aðra kyn- frumu, sem er ekki sömu teg- undar, skapast hin nauðsynlegu skilyrði. Hinar frumstæðu kynfrumur, eins og þær, sem finna má hjá ýmsum plöntum, eru svo lík- ar, að þær eru að heita má óað- greinanlegar. Þrátt fyrir það verðum við að álykta, að ein- hver munur sé á þeim, því að án samruna þeirra getur tímgun ekki átt sér stað; einar út af fyrir sig deyja þær, en samein- aðar skapa þær nýjan einstakl- ing. En eftir því sem lengra kemur á þróunarbrautinni verð- ur mismunurinn á kynfærunum meiri — kven- og karlfrumurn- ar ólíkari hvor annari. Ef við athugum þennan mismun nán- ar, sjáum við, að karlfruman hefir tekið að sér hinn virka þátt við frjóvgunina, en kven- fruman hefir aftur á móti tekið að sér að annast um næringu hins nýskapaða einstaklings. Til þess að geta fullnægt þessu hlutverki sínu, hefir þróun kven- frumunnar eða eggsins hneigst í þá átt að auka rúmtak henn- ar, svo að hún gæti orðið forða- búr, en þróun karlfrumunnar eða sæðisins, sem lýkur ætlun- arverki sínu um leið og frjóvgunin hefir farið fram, hefir einkum beinst að því að þroska hreyfitækni þess, og stærðin haldizt óbreytt. Til þess að sæðið geti náð fundum eggs- ins, hefir það eins konar hala eða sporð, sem það getur mjak- að sér áfram með í vökva. Þess- ar kynfrumur eru ekki aðeins frábrugðnar hvor annari, held- ur og gerólíkar öllum öðrum frumum líkamans. Eggfruman t. d. getur verið mörg þúsund sinnum stærri en aðrar líkams- frumur, eins og á sér stað hjá fuglunum. Stærð sáðfrumanna er ekki nærri eins breytileg, heldur miðar öll þróun þeirra að því að gera þær hæfari til að hreyfa sig úr stað. Frumstæðasta form kynferð- is birtist aðeins í tilvist tveggja ólíkra kynfruma, en eftir því sem lengra kemur á þróunar- brautinni, tekur áhrifa kyn- ferðisins æ meira að gæta á aðra hluta líkamans. Öll þróun karldýrsins beinist í þá átt, að hann geti fullnægt hlutverki sínu sem hinn virki þátttakandi í frjóvguninni, og á sama hátt beinist þróun kvendýrsins að því að geta séð fóstrinu fyrir næringu. Þessara áhrifa gætir ekki aðeins í líkamsbyggingu,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.