Úrval - 01.04.1946, Blaðsíða 19
OFDRYKKJA OG EITURLYFJANAUTN
17
um áfengis á mennina er ekki
orðin nógu almenn ennþá. Það
líffæri er ekki fil, sem breytist
ekki við áfengisnautn: heili,
vöðvar, lungu, meltingarfæri,
nýru og kynfæri — allt er í
hættu. Framar öllu er þeim líf-
færum hætt, sem eru veikgerð
að uppiagi. Ofdrykkjumaður-
inn verður því að greiða mikið
gjald fyrir stundarlausn frá
vandamálum síniun.
Annað utanaðkomandi vanda-
mál grípur inn í líf einstaklings-
ins. Fjöldi fólks hefir lífsfram-
færi sitt af því að framleiöa og
selja áfenga drykki. Ef áfeng-
isnotkunin hætti skyndilega,
myndu margir verða atvinnu-
lausir. Áfengis- og bruggiðnað-
urinn stendur mjög föstum fót-
um í atvinnulífinu og þjóðfélag-
inu. Þessar iðngreinar eru 1 nán-
um tengslum við auðmagnið, og
er því ekki erfitt fyrir þær að
gefa út bækur, tímarit og alls
konar áróðursgögn. Þegar ég
hefi látið orð falla um það, að
hófleg áfengisnautn skaði ekki
alltaf fullvaxið fólk, þá hafa
þessi ummæli verið misnotuð
og rangfærð í bæklingum, til
þess að gera mig að verjanda
áfengisins. Þetta er hrein og
bein fölsun.
Margir eru svo háðir áfengi,
að þeir geta ekki hugsað sér
samveru með öðru fólki án þess.
Aðrir drekka sig svo fulla, að
þeir losna algerlega úr tengslum
við umheiminn; það er hin kyrr-
láta ölvun. Atkvæðamenn verða
oft ólmir við drykkju. En hinir
rólyndu verða máttfarnir og
framtakslausir eftir eitt eða
tvö glös. Einnig á kynferðis-
sviðinu verkar ölvun æsandi á
suma, en sljóvgandi á aðra.
Vegna hinnar djúprættu
spillingar í þjóðfélagsháttum
okkar, er ókleift að segja, hver
hin upprunalega orsök er. I
málaferlum í Chicago gegn
nokkrum kven- og karlstúdent-
um, sem höfðu ekið bifreið
drukkin og orðið manni að
bana, varð einn dómarinn undr-
andi yfir því, að menntaðar
stúlkur skyldu taka þátt í slík-
um skemmtunum. Einn kven-
stúdentinn svaraði:
En hvað eigum við að gera?
Ef við drekkiun ekki með, þá
spyrja strákamir elcki eftir
okkur.
Þetta er auðvitað engin af-
sökun, en sannar þó, að slíkt
öfugstreymi á rót sína að rekja
til almenningsálitsins. Jafnvel
varúðarráðstafanir, sem ætlað-