Úrval - 01.04.1946, Page 23
OFDRYKKJA OG EITCRLYFJANAUTN
21
inum, hafði hann orðið ástfang-
inn af annari stúlku og lagt lag
sitt við hana. Með því var
hefndarþorsta hans fullnægt og
áfengislöngunin hvarf, að því er
hann sjálfur hélt vegna töfra-
lækningarinnar. Hann var bind-
indissamur upp frá þessu, en
öðru hvoru var hann konu sinni
ótrúr, það var honum nóg.
önnur nautnályf. — Hin sál-
fræðilegu fyrirbrigði við mor-
fín-, ópíum- eða kokainnautn
eru hin sömu og við áfengis-
nautn.
Voldugir auðhringar sjá líka
um dreifingu þessara eiturlyfja.
Þeir senda menn í veitingahús,
kaffihús, hótel og auðmanna-
setur til þess að bjóða aðstoð
sína. Hætturnar fyrir einstakl-
inginn eru i þessu tilfelli enn
raeiri en við áfengisnautn, og
þess vegna hefir þjóðabanda-
lagið látið málið til sín taka. En
möguleikarnir á því að það fái
neinu áorkað eru ekki miklir —
hér hafa skólarnir aftur á móti
mikið verk að vinna.
Það er mjög erfitt að lækna
morfín- eða ópíumneytanda.
Meðan verið er að venja sjúkl-
inginn af eitrinu, líður hann
ægilegar kvalir, hann kemst í
svo hræðilegt ástand, að hver
snefill af ábjrrgðaitilfinningu
og samvizku hverfur. Sjúkling-
arnir Ijúga, stela, flýja og
myrða, til þess að ná í ögn af
eitrinu. Dr. Alexandra Adler
(við Haiwardháskóla) hefir
sýnt og sannað, að þegar mor-
fínneyzla hættir snögglega,
myndast vatnseitrun, sem lækna
má með sérstökum sprautum.
Þá verður lækning eiturneyzl-
unar ekki eins kvalafull fyrir
sjúklinginn.
En einnig deyfilyfjaþörfin er
sönnun um ótta gagnvart lif-
inu. Maður, sem finnur sig van-
máttugan og örvinglaðan, rekst
af tilviljun á lyf, sem losar hamr
við áhyggjumar og skapar hjá
honum gleði og kjark. Hann
getur ekki staðist freistinguna,
sem er svo mikil, að fólk, sem
hefir morfín með höndum, t. d.
læknar, Iyfsalar eða skyldmenni
morfínneytanda, fellur oft
sjálft fyrir henni. Morfínneyzla
er ætíð andúðarmerki gegn
venzlafólki, stöðu eða samfélag-
inu. Sá, sem árásinni er beint
að, reynir oft að bjarga, en
tekst ekki og verður sjálfur
morfínneytandi. Hami hefnir
sín á þann hátt.
Allir morfínneytendur eru