Úrval - 01.04.1946, Blaðsíða 30
28
ORVAL
Hjá manninum má sjá glögg
dæmi, sem sýna vel orsök þessa
mismunar. Eineggja tvíburar
eru í rauninni sami einstakling-
urinn hlutaður í tvo við fyrstu
skiptingu frumimnar. Hjá þess-
um tvíburum má sjá eftirtektar-
verða samlíkingu hvað sjúk-
dómum viðvíkur, jafnvel þótt
þeir séu fjarri hvor frá öðrum.
Þannig fá slíkir tvíburar oft
berkla með fárra mánaða milli-
bili, og koma berklamir jafnvel
fram á sama stað í lungunum
hjá báðum. Krabbamein orsak-
ast venjulega alls ekki af smit-
un. Hjá eineggja tvíburum, sem
fengu krabbamein, kom það
samt sem áður fram í 36 af
hverjum 38 tilfellum hjá báðum
tvíburunum, og þá oft með fárra
mánaða millibili. Þannig er
mismunur á viðnámshæfiieika
gegn berklum og krabbameini,
ættgengur.
Þar eð mismunur á arfgengi
hefir áhrif á þá sem á eftir
koma, hlýtur val náttúrunnar
að breyta eðli eftirkomendanna.
Við verðum því að gera ráð fyr-
ir, að þegar skæðar landfar-
sóttir eyða miklum hluta íbúa
heilla þjóða svo sem plágurnar
miklu, sem geisuðu í Evrópu
milli 1664 og 1720, séu ekki ein-
göngu minni líkur tii að eftir-
lifendur fái sjúkdóminn vegna
ónæmis, heldur einnig, að böm
þeirra verði ónæmari fyrir hon-
um. Allur ættbálkurinn er
breyttur. Hann er breyttur eða
öllu heldur lagar sig eftir þeim
hættmn, sem hafa ógnað honum
og kunna e. t. v. að ógna honum
aftur.
Mannkynið er stöðugt að
finna nýjar vamaraðferðir
alveg eins og jurtir og dýr.
Árangurinn má glöggt sjá, þeg-
ar heilar tegundir eru fullkom-
lega aðskildar, eins og mann-
kynið var fyrir fund Ameríku.
Hver hluti hafði sína sjúk-
dóma við að stríða, og hafði
lagað sig eftir að mæta þeim —
og þeim eingöngu. Þegar þessir
tveir hlutar sameinuðust, urðu
sjúkdómar hvors um sig sam-
eiginlegir sjúkdómar beggja.
Báðir hlutarnir urðu fyrir
miklum þjáningum. Á skipi sínu
flutti Columbus a. m. k. einn
sjúkdóm, syfilis (sárasótt) frá
Nýja heiminum, sem fór svo
eins og alda yfir Evrópu, Asíu
og Afríku og hafði mikið skað-
ræði í för með sér, sem aðeins
margir ættliðir, valdir og hertir
til mótstöðu, gátu staðizt. Á
sama hátt fór, þegar Suðurhafs-