Úrval - 01.04.1946, Síða 53
BRÉF FRÁ INDOKlNA
51
Rotið íeiðsagnar Frakka í nærri
öíd, erum við ekki enn nógu
þroskaðir til að stjórna okkur
sjálfir. Með þessu lagi verðum
við það aldrei!
Þao kynlega er, að við höfð-
um getað stjómað okkur sjálfir
með ágætiim í tíu aldir, áður en
Frakkar komu og tóku okkur
tandir verndarvæng sinn. Því að
við höfðum átt okkar eigin
menningu, sem við höfðum erft
frá Kínverjum, en þeir höfðu
sömu þýðingu fyrir Austurlönd
og Grikkir og Rómverjar fyrir
Vesturlönd. f borgum okkar
voru stjórnarvöld kjörin með
algerlega lýðræðislegum hætti;
Mnn fátækasti kotungssonur
gat sótt sama skóla og sonur
Mandarínsins, og kornizt til
æðstu valda.
Eftir að Frakkar tóku að
„vernda“ land okkar, voru
Mnir „dyggðuðu“ keisarar okk-
ar settir af og aðrir „góðir“
látnir koma í þeirra stað. Hinn
imgi keisari í Annam, sem við
neyddum til að segja af sér
1945, var ágætt dæmi fransks
uppeldis. Hann var hin æðsta
von Annam og átti að verða
fyrsti nútímakeisari af „Dreka-
sonunum.“ Hann hafði stundað
nám í Frakklandi, og kom heim
árið 1931, á einhverjum dapr-
asta tíma, sem yfir Iandið hafði
gengið. Þao hafði komið til
óeirða vegna hungursneyðarinn-
ar, og Frakkar höfðu beitt vél-
byssum og flugvélum! Ungi
íþróttasinnaði keisarinn kom,
fór um landið í fylgd með
franska landstjóranum og fann
ekkert athugavert. Hann eyddi
dögum sínum í gullna búrinu,
sem föðurlandið hafði gert
handa honum, Iék tennis, sigldi
og spilaði bridge, meðan þjóð
hans kyngdi tárum sínum og
svalt 1 þögn fyrir utan hallar-
hliðið.
Upp frá þessari stundu fór
æska Annam að vitkast. Hún
gleypti allan áróður, sem kom
utan að. Þar sem engar vonir
voru tengdar við Frakka, veitt-
um við Japönum ekki viðnám.
En við sáum þó brátt, að jap-
önsku hernaðarsinnarnir voru
af sama sauðahúsi og frönsku
heimsveldissinnarnir. Þeir tóku
höndum saman við Vichystjórn-
ina, og þeir arðrændu hina van-
máttugu þjóð Indokína í félagi.
Það varð aftur hungursneyð
árið 1944, þegar Japanar, sem
voru orðnir aðframkomnir,
sendu mikið af hrísgrjónum og
öðrum matvælum til Tokio.