Úrval - 01.04.1946, Page 91
VIÐTAL VIÐ BERNARD SHAW
88*
horfið, og er lýsingin á lífi
þeirra hryllileg).
Það sem teija ber pólitískt
æviskeið, er ein öld bernsku og
unglingsára, önnur öld pólitísks
fullþroska og sú þriðja öld goð-
legrar vizku, án atkvæðisréttar.
Það er nægilegt handa læri-
sveinum, stjórnendum, og þing-
mönnum.
Menn um sextugt eru nú
miklu unglegri og fjörugri,
bæði andlega og líkamlega, en
almennt var, þegar ég var ung-
ur. Konur um fimmtugt eru nú
unglegri en konur um þrítugt
voru þá.“
„Ef þér ættuð að setja sam-
tíð yðar endanlegar lífsreglur,“
sagði ég, „hverjar myndu þær
þá verða?“
„Ég fyrirskipa ekkert endan-
legt,“ sagði Shaw. „Ég er ekki
guð almáttugur, dulbúinn sem
Bernard Shaw. Ég get, ef þér
setjið mig til þess, lagtframleið-
inlega pólitíska stefnuskrá fyrir
fáein næstu ár.
Til dæmis ráðlegg ég kven-
fólkinu að krefjast hjónaat-
kvæðis — ein hjón eitt atkvæði
— svo að á bakvið sérhvert
áhrifavald séu jafn margar
konur og menn, hvort sem báð-
um aðilum líkar það betur eða
ver. 0g ég ráðlegg allri þjóðinni
að krefjast þess á undan öllum
öðrum umbótum, að búið verði
til nýtt stafróf, sem telji að
minnsta kosti 45 stafi, þannig
að einn stafur sé til fyrir hvert
hljóð í málinu. Kostnaður minn
af því, að þurfa að skrifa nafnið
mitt með fjórmn stöfum í stað
tveggja, er svo mikill, að hann
myndi endurgreiða framleiðslu-
kostnað atómsprengjunnar á
fáum mánuðum.“
Við töluðum um ritstörf.
Spurningu minni um það, hve
langan tíma tæki að skrifa leik-
rit, svaraði Shaw: „Það er kom-
ið undir lengd þess og leiksviðs-
útbúnaði. Átján þúsund orða
leikrit eru nú í tízku í dýrustu
leikhúsum. Leikrit mín, sem
skrifuð eru fyrir ódýrari leik-
hús, eru frá þriðjungi upp í
helming styttri.
Tízkuhöfundur, sem notar
venjufrasa og stanzar aldrei til
að hugsa, getur skrifað nokk-
ur þúsund orð á dag með því að
drekka meira eða minna áfengi.
Þúsund orð að meðaltali á dag
er nóg fyrir mig, ef ég þarf að
finna þau öll með því að hugsa.
En þá skrifa ég þau öll milli
morgunverðar og hádegisverð-
ar.“