Úrval - 01.08.1946, Blaðsíða 10
Grelnarhöíundur var stríffsfréttaritari
Associated Press í Buenos Aires
1943—'45.
Perón, hinn nýi einrœðisherra.
Grein úr „Nation,“
eftir Stanley Ross.
■fUAN PERÓN, ofursti, sem
kosinn var forseti Argentínu
í marz síðastliðnum, kom fyrst
fram á vettvang alþjóðastjórn-
mála árið 1941. Tveimur árum
áður hafði hann verið útnefnd-
ur sendifulltrúi hjá þýzka hern-
um, og í tvö ár ferðaðist hann
fram og aftur um Evrópu og
þrammaði gæsagang með hinum
sigursæla nazistaher inn í
París. Því næst sneri hann
heim til að undirbúa valdatöku
sína.
Perón hefir haldið Argentínu
á barmi borgarastyrjaldar síð-
an hann kom heim frá Þýzka-
landi árið 1941 og stofnaði
leynifélag með um fimmtíu liðs-
foringjum, sem á ensku gengur
undir nafninu G. O. U. (Group
of United Officers). Þessi hóp-
ur brauzt til valda 1943.
Perón hefir látið líklega við
auðmenn og verkamenn, mið-
flokkamenn, íhaldsmenn og
vinstrimenn. Hann hefir stofn-
að til samsæra og valdið stjórn-
arkreppmn, sem á tveim árum
hafa kostað sextíu ráðhetra
stöður sínar. Þegar honum varð
Ijóst, að hann gat ekki náð tök-
um á hemum, tók hann að
grafa undan honum, en efldi í
staðinn lögreglulið Buenos
Aires og ríkisins. Lögregluliðið
er nú búið vélahergögnum, vel
skipulagt og telur 40000 manna,
sem flestir eru heimsendir her-
menn. Það reyndist honum vel
í október í fyrra, þegar hópur
ungra liðsforingja úr hemum
neyddu hann til að segja af sér
hinum fjórum ráðherrastöðum
sínum og héldu honum í fang-
elsi í tvo daga. Með aðstoð lög-
reglunnar slapp Perón úr fang-
elsinu og rétt á eftir tilkynnti
hann framboð sitt til forseta-
kjörs.