Úrval - 01.08.1946, Síða 16
Nfr, undursamlegnr
kvalastilllr.
Hið nýja „guðslyf."
Grein úr „Reader’s Digest“,
eftir Píuií de Kruif.
IVrÝTT efni, demerol, hefir ver-
^ uð fundið upp, og er tilbúið
til að líkna miljónum þjáðra
manna. Allt til þessa hefir mor-
fínið verið eina vopnið gegn
ofsakvölum, en deyfiáhrif mor-
fínsins draga dilk á eftir sér —
það er nefnilega hætta á að
menn venjist á að neyta þess.
Demerol er hér um bil eins á-
hrifamikið og morfín, en eng-
inn hinna mörg þúsund sjúkl-
inga, sem það hefir líknað með
töframætti sínum, hefir vanizt
á það, að því er vitað er.
Demerol er notað við margs
konar sjúkdóma og ávallt eftir
fyrirsögn lœknis. Það er notað
við asthma og höfuðkvölum,
þjótaugargigt og venjulegri
taugagigt. Ennfremur hefir það
verið gefið fæðandi konum, til
þess að lina þrautir þeirra og
flýta fyrir fæðingunni.
Enda þótt morfín sé svo und-
ursamlega kvalastillandi, að hinn
mikli læknir William Osler
kallaði það „lyf guðs,“ býr það
þó yfir mörgum og miklum
hættum. Það deyfir heilastöðv-
ar þær, sem stjóma andardrætt-
inum, svo að sjúklingar með
asthma og hjartasjúkdóma, sem
gefið er morfín, eiga á hættu að
andardráttur þeirra lamist enn
meir. Blóð- og lifrarsjúkdómar
auka áhrif morfínsins og gera
það mun hættulegra. Þegar upp-
skurðarsjúklingum, sem ann-
ars er rólegir, er gefið morfín,
getur það leitt til þess að hreyf-
ingar rneltingarfæranna hætti.
Sjúklingarnir geta jafnvel fallið
í dá, svo erfitt er fyrir lækna og
hjúkrunarkonur að sinna þeim
eftir uppskurðinn.
Morfín hefir verið mikil bless-
un fyrir þá, sem háð hafa hel-
stríð sitt eftir langvinnan sjúk-
dóm, en jafnvel í slíkum tilfell-
um hefir böggull fylgt skamm-
rifi. Læknirinn hefir stöðugt
orðið að auka morfínskammt-
inn, til þess að áhrifin héldust.