Úrval - 01.08.1946, Síða 47
Nokkrar fróðlegar og skemmtl-
legar staðreyndir —
/
Ur lífi fuglanna.
IJr „Audubon Magazine",
eftir Alan Devoe.
T ÍFSÞRÓTTUR fuglanna er í
samræmi við litskrúð þeirra
o-g dillandi söng. Líkamshiti
þeirra er 40 til 43 stig, og allir
sem horft hafa á fugl á stuttu
færi hljóta að hafa tekið eftir,
hvernig líkami hans titrar all-
ur í takt við öran og ákafan
hjartslátt hans. Slík vél hlýtur
að ganga fyrir fullum krafti,
enda er það svo. Þegar fuglinn
andar að sér berst loftið ekki
aðeins ofan í lungu, en heldur
áfram eftir ótal smáum loftæð-
um inn í loftbelgi, er fylla allt
rúm í líkama fuglsins, sem líf-
færin taka ekki. Auk þess eru
loftbelgirnir í sambandi við
bein fuglsins, sem eru hol inn-
an, en ekki full af merg eins og
í öðrum dýrum. Þessir vara-
„loftgeymar“ leggja til eldsneyt-
ið í lífsorku fuglsins, og stuðla
jafnframt að því að gera hann
léttari á fluginu.
Kvenfuglamir í hverri tegund
fyrir sig verpa álíka mörgum
eggjum — rauðbrystingurinn
þrem til fimm, krían tveim til
þrem o. s. frv. — en ef eitthvert
eggjanna er tekið, verpa þær
oft öðrum í staðinn. Þessi
„varasjóður kynstofnsins“ get-
ur stundum verið ótrúlega
mikill. Fyrir fimmtíu árum var
skýrt frá því í tímaritinu The
Auk, að tekin hefðu verið öll
eggin nema eitt frá spætu nokk-
urri. Stuldurinn var endurtek-
inn á hverjum degi þangað til
hún hætti að verpa í skarðið. Þá
hafði hún verpt 71 eggi á 23
dögxnn!
Matvælaöflun foreldranna
handa ungunum getur verið
ótrúlega fyrirhafnarsöm. Ung-
ar sem eru að byrja að fljúga
éta stundum meira en þyngd
sína á sólarhring. Dr. Arthur A.