Úrval - 01.08.1946, Side 67
MJSRKILEG NÝJUNG 1 TANNLÆKNINGUM
65.
rótarfyllingu og var ánægður
með árangurinn. Hann ákvað að
gera víðtækari tilraunir með
þessi efni, en þá hernámu Þjóð-
verjar Austurríki og hann varð
að flýja land, og neyddist til að
loka tannlækningastofu sinni,
sem var ein af kunnustu tann-
iækningastofum í Evrópu.
Þegar hann kom til Ameríku
árið 1940 gerðist hann forstjóri
við tannrannsóknadeild Bayl-
orháskóla. Þar fékkst hann
einkum við tilraunir með ýms
efni til varnar tannskemmdum.
Ef tönn er skoðuð með berurn
augum, virðist hún vera alþak-
in glerung. ,,En svo er ekki,“
segir dr. Gottlieb. „Það eru ör-
mjóir skurðir í glerungnum.
Lífræn efni og gerlar komast
inn í þessa skurði og valda
skemmdum.“ Hvemig er hægt
að koma í veg fyrir þessar
skemmdir ? Með því að fylla upp
skurðina. Náttúran fyllir þá
með kalki, sem myndast í munn-
vatninu, en það dugir stundum
ekki til. Vandinn er þá að hjálpa
náttúrunni í þessu efni. Finna
þurfti efni, sem gæti lokað
skurðunum og varið þannig
tennumar gegn skemmdum, á
sama hátt og vefnaðarvöru-
framleiðandi gegnvætir tauið
með sérstöku efni til að gera
það vatnshelt.
Dr. Gottlieb gerði tilraunir
með mörg efni, án vemlegs ár-
angurs. Um tíma beindist at-
hygli hans mjög að flúorín, en
að lokum lagði hann það einnig
á hilluna. Flúorín dró nokkuit
lialk að glemngnum, en það
var ekki nóg.
Ef hann hefði bara nítratið
hans Rosenzweigs! Það hafði
lofað góðu. En hann hafði misst
sambandið við Rosenzweig, og
allar tilraunir til að komast að
því, hvar hann var niðurkominn,
urðu árangurslausar.
Þá var það einu sinni að dr.
Gottlieb var staddur í Chicago
hjá gömlum vini sínum, sem
var tannlæknir. Þeim varð tíð-
rætt um fortíðina, og meðal
annars minntist Gottlieb á hinn
gamla vin sinn og skólabróður.
Vinur hans hlustaði með at-
hygli. „Áttu við Rosenzweig
efnafræðing — frá Vín?“ spurði
hann.
„Já.“
„Ég hitti hann þegar ég var
í Nev/ York í mánuðinum sem
leið. Hann hefir rannsóknar-
stofu í Central Park West.“
Gottlieb fór með næstu lest til
New Yoi'k, leitaði í hverfinu og