Úrval - 01.08.1946, Side 74
Lýsing á skemmdunuxn í Hiroshima og;
Nagasaki oítir kjamorkusprengjurnar.
Mannkynið á vegamótum.
Grein úr „The Listener“,
ef tir Dr. J. Bronowski
T7" jarnorkusprengjutilraunin á
Bikiniey („Aðgerðin vega-
mót“ [Operation Crossroads]
eins og hún er kölluð í her-
stjórnartilkynningum) var ekki
fyrsta tilraunin af þessu tagi:
önnur tilraun, miklu alvarlegri
og sorglegri var reynd á jap-
önsku borgunum Hiroshima og
Nagasaki í ágúst í fyrra. Ég var
einn af vísindamönnunum, sem
rannsökuðu skemmdirnar í þess-
um tveim japönsku borgum, og
mig langar til að gefa ykkur
nokkra hugmynd um það sem
skeði þama.
Lífið í Japan hefir verið svift
öllum lit. Himinninn er enn blár,
skógarnir sem þekja brattar
hæðirnar em enn grænir, og
hæðimar rísa enn þverhnýptar
upp úr bláum sjónum. En gömlu
konurnar sem vinna á rísökmn-
um, hrörleg bóndabýlin, bömin
og þorpin em grá og sjúkleg.
Stórborgimar hafa flestar verið
eyddar með íkveikjusprengjum,
og það sem uppi stendur af þeim
er hryllilega ömurlegt. Á jám-
brautarstöðvunum bíða hópar
þögulla manna í rifnum, græn-
um einkennisbúningum og
kvemia í snjáðum, svörtum
bómullarbuxum eftir því að
ferðast í gluggalausum vögnum
frá einni eyðimörkinni til ann-
arrar. Gamlir strætisvagnar
sem ekki varð ekið lengur, era
eins og hráviði á aðalgötum
Tokyo. Hin bröttu timburþök
og breiðu súlnagöng Shinto- og
Búddhamusteranna eru komin
að niðurfalli, því að ekki hefir
verið gert við þau árum saman.
Þetta er land sem hin algjöra
styrjöld hefir örmagnað og síð-
an lostið reiðarslagi.
Kamorkusprengjan, sem jafn-
aði mikinn hluta Hiroshima við
jörðu á örfáum sekúndum, kom
einnig af stað ótal eldsvoðum,
sem geisuðu í marga daga. Það