Úrval - 01.08.1946, Page 78
76
ÚRVAL
kjamorkusprengjunnar komi
álíka ýkt vanmat. Staðreynd-
íruar hafa verið gerðar heyrin
kunnar, og þær tala sínu máli.
Ég vann að því að rannsaka
þessar staðreyndir í Hiroshima
og Nagasaki; lofið mér að láta
í Ijós skoðun mína og annara
vísindamanna: „Aðgerðin vega-
mót“ við Bikiniey á Kyrrahafi
var ekki fræðileg tilraim til að
komast að því hvort orustuskip
væru orðin úrelt. Það erum við
sem erum á vegamótum, og
spumingin er hvort mannkyn-
ið eigi að verða úrelt.
CC^CC
Adam og Eva.
„Karlmaðurinn er aldrei eins veikur fyrir og þegar einhver
kona. er að segja honum að hann sé sterkur."
— Steve i ,,Fascination.“
*
„Ég held að meginmunurinn á karli og konu sé hvernig þau
þjást. Konan lærir að taka þjáningum, bæði líkamlegum og
andlegum. En karlmaðurinn berst gegn þeim og þessi barátta.
veikir hann svo að hann bugast að lokum. Þjáningar veikja
aldrei eða yfirbuga konuna. Þær verða hluti af henni. Þær færa
hana nær lífinu. Þvi er öfugt varið um karlmanninn. Þær færa
hann nær dauðanum."
— Frederic Prokosch í „The Conspirators."
♦
„Konur hafa talsvert sterlta siðferðisvitund, þegar þær eru
eklti ástfangnar, en harla veika, þegar þær eru ástfangnar.
Þessu er öfugt farið með karlmanninn. Ef honum þykir ekki
vænt um stúlku leggur hann engar hömlur á sig. En ef hann
er ástfanginn er hann vís til að gera svo háar siðferðiskröfur
að það sé ekki á annara færi en engla að uppfylla þær.“
— Mark Reed í „Yes, My Dariing Daughter.“
♦
„Ef karlmaður gerir axarskaft, segja aðrir kai-lmenn: „Skelf-
ing er maðurinn vitlaus." Ef kona gerir axarskaft, segja þeir:
„Skelfing er kvenfólkið vitlaust!"
— H. C. L. Jackson í „Detroit Ne\vs.“