Úrval - 01.08.1946, Page 80
78
tJRVAL
átti. Þetta handrit er svokallað
„Pa!imsest“ þ. e. skrifað hefir
verið tvisvar á pergamentið. Á
tólftu öld hafði biblíutextinn
verið þveginn af eftir því sem
hægt var og í staðinn skrifaðar
nokkrar guðfræðilegar ritgerðir
eftir Efræm biskup. Margir
fræðimenn höfðu árangurslaust
reynt að skýra biblíutextann.
Tisehendorf leysti verkið af
hendi á tveim ái'um. Fyrir þetta
afrek gerði háskólinn í Breslau
hann að doktor í guðfræði, 28
ára gamlan.
Mesta afrek Tischendorfs var
þó fundur handritsins Codex
Sinaiticus. Eftir f jögra ára leit
að gömlum handritum á bóka-
söfnum í Evrópu fór hann til
Egyptalands í apríl 1844. Það-
an fór hann til hins 1300 ára
gamla Katrinarklausturs við
Sínáifjall og hafði rneðferðis
meðmælabréf frá dóttur-klaustri
þess í Kairo. Það var ekki auð-
hlaupið að komast inn í Katrín-
arklaustrið. Þegar hann hafði
kallað góða stund fyrir utan
klausturmúrana, opnaðist gat
á múrmun tíu metra frá jörðu
og karfa var látin síga niður til
hans og dregin aftur upp með
meðmælabréfinu í. Að vörmu
spori var gildum bjálka rennt
niður í sterku reipi. Tischendorf
settist klofvega á bjálkann og
var dreginn upp.
Hann rannsakaði nú bókasafn
klaustursins vandlega, en fann
ekkert verðmætt. Dag nokkuin
kom hann auga á stóra körfu
fulla af skrani á miðju gólfi í
bókasalnum. Kyrillos bókavörð-
ur horfði brosandi á þegar
Tischendorf fór að róta í körí-
unni, og sagðist vera búinn að
brenna tvær körfur af svona
skrani, og þetta ætti að brenna
Iíka.
Tischendorf varð harla glað-
ur þegar hann fann í körfunni
129 kálfskinnsblöð í stóru broti,
skrifuð á grísku í fjórum dálk-
um. Honum var strax ljóst, að
þetta var mjög gamalt bibliu-
handrit, og með því að blöðin
áttu að brennast hvort eð var,
fékk hann að taka með sér 43
samanhangandi blöð. Hami
flýtti sér með þau inn í herberg-
ið sitt, en ákafi hans mun hafa
vakið grun klausturhaldarans,
því að þegar hann bað um hin
86 blöðin fékk hann þau ekki,
hins vegar fékk hann að skrá-
setja þau og afrita nokkrar sið-
ur.
Tischendorf hraus hugur við
tilhugsuninni um þau ómetan-