Úrval - 01.08.1946, Page 100
98
IJRVAL
Pendleton (hrifinn) : Finnst
yður það? Ég teiknaði faann
sjálfur.
Barónsfrúin (horfir lokkandi
beint í augu hans): Það er lítið
af svo skapandi listamönnum í
Ameríku.
Pendleton (hæversklega):
Þetta er alltof mikið hrós um
mig.
Barónsfrúin: Alls ekki. Ég er
mikill aðdáandi yðar, Pendle-
ton. Ég hefi lesið allar bækur
yðar. Mér finnst ég þekkja yður
eins og gamlan vin.
Pendleton: Það þykir mér
vænt um að heyra. (Barónsfrú-
in sezt, tekur upp skrautlegt
sígarettuveski og býður Pendle-
ton sígarettu).
Barónsfrúin: Viljið þér
reykja ?
Pendleton: Þakka yður fyrir.
(Pendleton kveikir í hennar
sígarettu, svo í sinni. Hann fær-
ir stólinn sinn til hennar. Þau
eru orðin mjög áhugasöm hvort
fyrir öðru).
Barónsfrúin: Ég hefi tak-
mark í lífinu, Pendleton. Það er
að gera amerísku konuna bezt
klæddu konu í heiminum. Ég
kom hingað til að fá yður til
þess að hjálpa mér.
Pendleton: En ég hefi engan
metnað í þá átt.
Barónsf rúin: Hvers vegna
ættuð þér að hafa metnað? Það
eru burgeisamir, sem hafa
metnaðinn á þessu sviði. Við
listamennimir höfum andagiít-
ina. Ég vil setja yður inn í anda
fyrirtækis míns. Ég hefi þegar
opnað á bezta stað í borginni, ég
er búin að fá beztu sérfræðinga
alls staðar að úr heiminum. Það
vantar ekkert til að gera fyrir-
tækið mitt fullkomið, nema yð-
ur.
Pendleton: Mig ? Hvers vegna
mig?
Barónsfrúin (elskuleg): Er-
uð þér ekki talinn einn af
fremstu rithöfundum Ameríku?
Pendleton (hæversklega):
Sögðust þér ekki hafa lesið all-
ar bækur mínar?
Barónsfrúin: Eruð þér ekki
eini rithöfundurinn, sem tekizt
hefir að lýsa vel tilfinningalífí
Ameríkumanna ?
Pendleton: Jú.
Barónsfrúin: Það er einmitf
það. Þess vegna hefi ég valið
yður til að skrifa auglýsingam-
ar fyrir mig.
Pendleton (forviða): En bar-
ónsfrú!
Barónsfrúin: Þér eigið ekki