Póllinn - mai 2023, Síða 5
Það er mikill heiður að fá að vera ritstýra tímarits okkar stjórnmálafræðinemanna. Íslenska leiðin, tímarit
stjórnmálafræðinema var gefið út fyrst árið 2001. Þá var tímaritið nokkurs konar fræðirit þar sem
ritstjórnin safnaði saman greinum frá kennurum deildarinnar sem og stjórnmálafólki og valdhöfum
landsins. Umfjöllunarefni greina var þemabundið en einblíndu á sjónarhorn íslensks fræðafólks til
alþjóðlegra mála svo sem ESB og NATO.
Hægt og rólega þróaðist blaðið, ritstjórnin og nemendur skrifuðu sjálfir fleiri og fleiri greinar. Áherslan
færðist frá fræðiriti í að gera áhugavert og skemmtilegt efni, af stjórnmálafræðinemum fyrir
stjórnmálafræðinema. Ég mæli með að fletta í gegnum gamlar útgáfur, að skoða sögu tímaritsins og sjá
hvað var á oddinum hjá fyrri kynslóðum stjórnmálafræðinema. Saga deildarinnar hefur varðveist í þessum
tímaritum og þess vegna erum við svo stolt af því að geta tilkynnt að allar útgáfurnar munu verða
aðgengilegar rafrænt á timarit.is á næstunni.
Lengi hefur verið talað um nafnbreytingu meðal ritstjóra og nemenda nokkuð lengi. Þegar ég tók við sem
ritstýra tókum við loks af skarið og hófum um sumarið hugmyndasöfnun að nýju nafni.
Stjórnmálafræðinemar sendu inn margar góðar tillögur og undir lok sumars var kosið á milli bestu
hugmyndina. Vinsælustu tvær hugmyndirnar voru tilkynntar í Haustblaði Íslensku leiðarinnar: Póllinn og
Þinghelgin. Á aðalfundi haustsins var síðan kosið milli nýju nafnanna og þess gamla. Niðurstaða þeirra
kosninga er nokkuð augljós, Póllinn hafði sigurinn.
Nýir tímar á Pólnum
Það skapast tækifæri við nafnabreytingu. Við erum ekki að stofna nýtt blað en þetta eru óneitanleg
kaflaskipti. Íslenska leiðin var upphafið okkar, Póllinn er framtíðin. Þessi ritstjórn fékk það erfiða verkefni
að þræða þessar hliðar saman. Þemað sem varð fyrir valinu í ár: Alþjóðamál og óhefðbundin sjónarhorn.
Þannig brjótum við blað og undirstrikum að við erum ekki lengur Íslenska leiðin, að fjalla um íslenska
sjónarhornið, en við byggjum þó á þemum fyrstu útgáfanna. Í þetta sinn birtum við sögur utan úr heimi og
greinum frá mismunandi upplifunum á Íslandi sem hafa ekki fengið jafn mikla athygli. Hér eru t.d. greinar
um upplifanir jafnaldra okkar úti í heimi á stjórnmálaþátttöku, upplifun litaðra af rasisma á Íslandi. Við
erum þó einnig með viðtöl, skemmtiefni og ljóðadálk sem sýnir fjölbreytileikann innan deildarinnar.
Við vonum innilega að öll finni eitthvað sem vekur áhuga, hvort sem þú ert stjórnmálafræðinemi eða ekki.
Það hefur tekið blóð, svita og tár frá ritstjórninni að gera þetta blað og það hefði ekki verið hægt án svona
góðs teymis. Mig langar til að þakka öllum í ritstjórninni fyrir að vinna æðislegt verk. Takk fyrir að vilja
taka að ykkur þetta crazy verkefni að gefa út tvö tímarit á einu skólaári og skipuleggja kosningarnar á
nafnabreytingu. Við munum héðan í frá vera þekkt sem síðasta ritstjórn Íslensku leiðarinnar og fyrsta
ritstjórn Pólsins. Ég vil þakka forvera mínum Kjartani, ritstjóra Íslensku leiðarinnar 2022, fyrir ómetanleg
ráð og heiðurinn að nýja nafninu.
Ég vil líka þakka öllum sem sendu inn greinar, ljóð og annað efni, það er ómetanlegt að sjá áhuga
samnemenda fyrir að deila sköpunarverkum sínum.
Orð geta ekki lýst hversu stolt ég er af útkomunni. Njótið!
Embla Rún Halldórsdóttir
ritstýra Pólsins 2022-2023
Bless Íslenska
leiðin, velkomin
alþjóðaleiðin með
Pólnum!
Ávarp ritstýru
3