Póllinn - May 2023, Page 15
Ef þú gætir sest niður og drukkið kaffi með
einum stjórnmálamanni í heiminum, lifandi
eða dauðum, hvern myndir þú velja?
Barack Obama.
Hvað hefur verið mest krefjandi á ferlinum
sem utanríkisráðherra?
Utanríkismál fjalla auðvitað um allan heiminn
og það er svo margt sem maður hefur þurft að
reyna að skilja frá grunni. Í Evrópu eru alls
konar deilur á milli þjóða og þjóðarbrota sem
eiga sér jafnvel hundruð ára sögu og þannig er
það auðvitað víða um heim. Það er hluti af
mínu starfi að finna leið til þess að skilja sem
allra mest af því sem er að gerast í heiminum
eins og vel og maður getur, en vera samt
auðmjúk gagnvart þeim raunveruleika að það
er ómögulegt að skilja alla hluti til botns. Það
hjálpar að hafa sterkan áttavita í
grundvallaratriðum en við Íslendingur
gleymum því mjög gjarnan hvað við höfum
það óskaplega gott miðað við yfirgnæfandi
meirihluta jarðabúa.
Því meira sem maður lærir um heiminn þeim
mun þakklátari verður maður fyrir þá gæfu að
vera Íslendingur. En eins og öll verkefni sem
maður tekur alvarlega þá er það vissulega
krefjandi að reyna að ná að skilja alla þá
ótalmörgu þætti sem hafa áhrif á þróun
heimsmálanna, því það mun sannarlega allt
líka hafa áhrif á Íslandi.
Áttu eitt mjög gott ,,moment‘‘ á ferlinum sem
utanríkisráðherra?
Ég segi það oft að ég taki sjálfa mig ekki
hátíðlega en ég taki hlutverk mitt mjög
alvarlega. Þannig að ég hef passað mig mjög
mikið að reyna að vera ekki með nein
„moment“ þegar ég kem fram fyrir Íslands
hönd á alþjóðlegum vettvangi. En það koma
oft upp atvik þar sem má litlu muna og ég held
að einna súrrealísku aðstæðurnar sem ég man
eftir hafi verið þegar ég fann sjálfa mig inni á
salerni á hóteli á Spáni að reyna að taka upp
ávarp sem átti að birta á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna seinna sama dag. Þegar ég það rann á
mig hversu absúrd þessi aðstaða var með
bakgrunn eins og ég væri í fangaklefa, fékk ég
svo mikið hláturskast að ég hálf grenjaði og gat
ekki klárað þetta, sem betur fer því ég fann
mun betur viðeigandi stað til að taka upp
ávarpið.
Annars var augnablikið þar sem ég hjólaði á 15
mínútum á viðburð með Joe Biden
Bandaríkjaforseta á meðan kollegar mínir sátu
fastir í umferð í New York í 90 mínútur líka
ágætt.
Ertu bjartsýn fyrir framtíðinni í alþjóðlegum
stjórnmálum og samvinnu?
Svarið við þessu er í raun bæði já og nei. Vegna
þess að það er undir okkur sjálfum komið. Ég tel
okkur hafa fundið vel fyrir því á liðnu ári
hversu brothætt alþjóðleg samvinna er en líka
hversu gríðarlega mikilvæg hún er í þágu
öryggis, friðar, lífsgæða og til að leysa flókin mál
sem við stöndum frammi fyrir sem manneskjur
á þessari jörðu.
Getur þú gefið ráð til ungra
stjórnmálafræðinema sem sjá fyrir sér framtíð í
pólitíkinni?
Láta slag standa, segja já við tækifærum sem
bjóðast – líka þegar þér finnst þú þurfa að vita
meira, læra lengur, kunna fleira, þroskast áfram.
Hafðu sjálfstraust – í því felst bæði að hafa trú á
sér en líka styrk til að hlusta á aðra, raða í
kringum þig fólki sem veit meira en þú og bætir
við þig og þína þekkingu. Og alltaf að vera þú
sjálfur. Ef þér þykir pólitík áhugaverð,
spennandi og þú vilt hafa áhrif til góðs, þá áttu
erindi.
13