Póllinn - May 2023, Page 23
París heillaði en heimsfaraldurinn leiddi
hana annað
Það má segja að áhugasvið Ásgerðar liggi um
víðan völl innan alþjóðastjórnmála, allt frá
Evrópurétti og mannréttindum yfir í málefni
Norðurslóða. Hún finnur fyrir því að breiði
áhuginn og reynslan reynist henni vel í starfi
sínu hjá Arctic Circle, en Arctic Circle eru
alþjóðleg frjáls félagasamtök sem stofnuð voru
árið 2013 sem vettvangur fyrir þverfaglegar
umræður um framtíð Norðurslóða. Ólafur
Ragnar Grímsson er meðal stofnanda Arctic
Circle, ásamt öðrum aðilum á Norðurslóðum
sem höfðu áhuga á að setja á fót stofnun sem
hefði málefni Norðurslóða að sjónarmiði.
Helsta stefna Arctic Circle segir Ásgerður vera
fólgin í þremur þáttum sem allir fá jafn mikið
vægi; vísindi, stjórnmál og viðskipti.
Sömuleiðis finnst henni að frumbyggjar á
Norðurslóðum eru og verða alltaf
mikilvægustu þátttakendurnir í umræðum um
Norðurslóðir, og nefnir hún Söru Olsvig í því
samhengi, sem er formaður í ráðgjafaráði
Arctic Circle og auk þess formaður alþjóðlegra
samtaka Inúíta (e. Inuit Circumpolar Council).
Sara er mikilvæg rödd frumbyggjanna og því
mjög þýðingarmikið að hafa hana sem
formann ráðgjafaráðsins.
Þó að stofnanir sem hafa höfuðstöðvar sínar í
París eins og Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD) og Menningarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO) hafi heillað Ásgerði, þá
setti heimsfaraldurinn Ásgerði í þá stöðu að
hún þurfti að leitast eftir störfum hér á landi
sem hentuðu hennar áhugasviði. Hún sótti því
um starf hjá Arctic Circle og sér hún ekki eftir
þeirri ákvörðun. Þar byrjaði hún sem
,,communication coordinator‘‘ fyrir tæpum
tveimur árum, og fékk síðar stöðu sem
samskipta- og stefnustjóri. Hennar helstu
verkefni í þeirri stöðu voru m.a. að vera í
samskiptum við samstarfsaðila og íslenska
ríkið varðandi þátttöku þeirra og áætlanir á
Norðurslóðum. Fyrr á þessu ári varð Ásgerður
skrifstofustjóri Arctic Circle (e. Director of the
Secretariat) og hefur því yfirsýn með
skrifstofunni en sinnir einnig sömu störfum og
áður.
Hið breiða áhugasvið og reynsla Ásgerðar nýtist
henni vel í núverandi starfi hennar hjá Arctic
Circle. Hún er mjög ánægð í starfi og segir
góðan starfsanda ríkja á vinnustaðnum – sem
hún segir skipta mestu máli. Verkefnin eru
fjölbreytt að sögn Ásgerðar; Arctic Circle
skipulagði ráðstefnu í Abu Dabí í samstarfi við
umhverfisráðuneyti Sameinuðu arabísku
furstadæmanna í janúar síðastliðnum og nú í
mars hélt Arctic Circle 400 manna ráðstefnu í
Tókýó í samstarfi við japönsku friðarstofnunina
Sasakawa Peace Foundation. Ásgerður fór
einnig til Grænlands þegar Arctic Circle hélt
ráðstefnu í Nuuk í ágúst í fyrra, í samstarfi við
grænlensku ríkisstjórnina, þar sem 450 manns
tóku þátt í stærsta viðburði sem haldinn hefur
verið í Grænlandi í mörg ár.
Ásgerður segist það vera skemmtilegt að fá að
kynnast svona mörgum menningarheimum og
vinnuaðferðum í starfi sínu. Hún tekur sem
dæmi að það er mismunandi eftir
menningarheimum hvort fólk vill fara í ,,small
talk‘‘ fyrst eða koma sér beint að
umræðuefninu. Hún tekur fram að Íslendingar
komi sér oftast beint að efninu, ólíkt því
,,hjalatali‘‘ sem er algengara að viðgangist meðal
annarra þjóða. Það er því mikilvægt að kynna
sér og aðlagast öðrum menningarheimum.
Íslendingar á alþjóðavettvangi
Ásgerður bendir á að það felast mikil forréttindi
í því að vera Íslendingur og starfa á
alþjóðavettvangi. „Sem fámenn þjóð erum við
vön því að vera með marga hatta, fá á okkur
mörg mismunandi verkefni“, Ásgerður segir
það vera mikinn kost að búa yfir slíkri reynslu
og ekki sakar að hafa ,,þetta reddast‘‘ hugarfarið
sem einkennir Íslendinga; „best er að vera
vongóður um að þetta endar allt vel, en maður
þarf þó að láta verkin tala“. Ásgerður bendir
verðandi stjórnmálafræðingum á að það getur
verið góður eiginleiki sem nýtist vel á
alþjóðavettvangi.
Þegar litið er til framtíðar segist Ásgerður
spennt fyrir því að starfa meira innan alþjóðlegs
vettvangs. Eins og áður kom fram þá er hún
mjög ánægð í sínu starfi og er ekki komin í
ferðahug, en sér þó fyrir sér að starfa einn
daginn hjá alþjóðlegri stofnun erlendis, en
tíminn mun leiða það í ljós.
Birgitta Birgisdóttir
Helga Margrét Óskarsdóttir
21