Póllinn - May 2023, Page 27

Póllinn - May 2023, Page 27
En í löndum eins og Kongó þar sem flóknari saga er milli nýlendunnar og herraþjóðarinnar, þar sem nýlenduvæðingin var einnig stjórnarfarsleg, er enn erfiðara að losna undan haldi tungumáls nýlenduþjóðarinnar. Vegna þess hversu samofið tungumálið var í stjórnmálasamhengi er erfitt að aðgreina þetta tvennt. Nýlega hefur verið reynt að kenna staðbundin mál og mállýskur í skólum en í Kongó eru töluð u.þ.b. 50 mál. Franska er enn samt sem áður ráðandi tungumál á opinberum vettvangi og í skólakerfinu. Tilraunir Íslendinga og Kongóbúa til að reyna að losna við áhrif máls fyrrverandi herraþjóðar hafa gengið misvel þó að sjálfsögðu séu þessar aðstæður mjög ólíkar. Þær eiga það þó sameiginlegt að eitt mál tók næstum yfir móðurmál þeirra. Ástæðan fyrir erfiðleikunum er hversu rótgróin tungumálin eru í menningunni, en það er að sjálfsögðu ekki fyrir tilviljun. Uppbygging þjóða (e. nation-building) hefur það markmið að efla þjóðríkið með því að auka samheldni íbúa, t.d. með því að efla þjóðernisvitund, samræma venjur og tungumál og með útskúfun þeirra sem ekki samlagast. Það hefur verið herkænskubragð drottnunarríkis að það sé nauðsynlegt skref í að innlima nýlenduna og til að tryggja fullkomna stjórn. Því skiptir máli hvaða tungumál er notað í landinu. Tungumálamissir er hægt ferli og hann snýst um að glata umdæmum, t.d. fréttamiðlum, opinberri stjórnsýslu, tækni og menntakerfinu. Talað er um umdæmismissi þegar tungumál þessara stofnana eru á öðru máli en móðurmáli íbúa landsins. Sameiginlegt tungumál og sameiginlegur menningararfur eru nokkuð sem íbúar hverrar þjóðar eru gífurlega stoltir af. En þegar þegnar þjóðar verða fyrir umdæmismissi tapa þeir hluta af þjóðarsál sinni og samlagast þess í stað menningu og siðum drottnara sinna. Íris Björk Ágústsdóttir 25

x

Póllinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.