Póllinn - May 2023, Page 38

Póllinn - May 2023, Page 38
Stjórnmálaflokkar sem Kjötbollur - Framsókn Er ekki bara best að fá sér kjötbollur? Einn sígildasti réttur IKEA, alltaf við hæfi, hlutlausar. Þó að fáir segjast kjósa Framsókn eða kjötbollurnar þá vitum við flest öll að það er alltaf einhver í hópnum sem fær sér þær. Fiskur í Orly - Vinstri Grænir Langar þig í eitthvað hollt sem er það samt í rauninni ekki, þá er fiskur í orly málið. Líkt og Vinstri Grænir þá færðu eitthvað allt annað en þú vildir eða hélst að þú fengir upphaflega, fiskur í orly er í rauninni ekkert annað en fiskur í búningi. Lax - Sjálfstæðisflokkurinn Er eitthvað annað íslenskara en fiskurinn góði sem hefur haldið landsmönnum gangandi lengur en elstu menn muna? Nei, hélt ekki, líkt og fiskurinn þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið til í mörg ár og verður á boðstólnum hvort sem manni líki betur eða verr. Plokkfiskur - Miðflokkurinn Plokkfiskurinn, þessi gamli góði heimilsmatur, öll þekkja hann en fá vilja hann. Þetta er bara fiskur í öðrum búningi. Íhaldssamur fiskur, búinn til úr afgöngum sem enginn vill. Naggar - Píratar Matur yngri kynslóðarinnar, naggar og franskar, það er fátt til sem lýsir yngri kynslóðinni jafn vel og þetta combo og það sama á við um Pírata sem sækja fylgi sitt að miklu leyti til unga fólksins. 36

x

Póllinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.