Póllinn - mai 2023, Síða 61

Póllinn - mai 2023, Síða 61
Mannréttindabrot í Egyptalandi hafa lengi vel verið hunsuð þar sem að Egyptaland er bandamaður Vesturlanda í Miðausturlöndum en með kjöri Bidens sem forseta Bandaríkjanna þá hefur Egyptaland verið gagnrýnt af bandamönnum sínum í auknum mæli. Vissulega munu Vesturlönd ekki skerða samskipti sín við Egyptaland en þetta er skref í rétta átt. Fattah al Sisi lærði mikið af forvera sínum Mubarak sem hefur orðið til þess að allri gagnrýni á ríkisstjórn hans er mætt með mikill hörku og eiga mótmælendur í hættu á að vera handteknir, pyntaðir eða látnir hverfa. Eins og staðan er núna þá mun Sisi eflaust sitja í forsetastólnum þangað til að hann deyr. Egyptar hafa fáa möguleika til þess að breyta ríkisstjórn sinni, sem leiðir til þess að hnignun Egyptalands sem hefur verið síðustu áratugi mun einungis halda áfram. Á síðustu árum hefur áhugi Vesturlanda á Miðausturlöndum farið dvínandi, sem gerir það að verkum að það er aukin ástæð til þess að vera gagnrýnin á egypsk stjórnvöld. Þar sem að það eru færri hagsmunir til að gæta þá er hægt að krefjast í auknum mæli að ríkisstjórn Egyptalands opni á meira lýðræði í samfélaginu, fyrst að þeir eiga að kallast bandamenn okkar. En að sama skapi þá er minni áhugi til þess að hafa einhver áhrif á egypsk innanríkismál, sem mun einungis leiða til þess að landið verður fátækara og líkurnar á lýðræði fer minnkandi. Auðólfur Már Gunnarsson Njóttu þess að vera hluti af lifandi háskólasamfélagi. Fjölbreytt þjónusta fyrir alla. Háskólatorgi, Sæmundargötu 4 102 Reykjavík Sími: 5 700 700 fs@fs.is · www.fs.is Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-16 og föstudaga kl. 9-12

x

Póllinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.