Gátt - 2010, Page 92
92
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
Einnig fellur áætlunin Nordplus sprog og kultur (aðeins
Norðurlöndin) undir Nordplus menntaáætlunina en hún
styrkir hvers konar tungumálaverkefni á milli norrænu land-
anna.
Nordplus Voksen er, eins og nafnið segir til um, áætlun á
sviði fullorðinsfræðslu og miðar að því að efla:
Grunnfærni fullorðinna, lestur, skrift, reikningskunn-•
áttu, tölvu-, og tungumálafærni hjá innflytjendum og
minnihlutahópum í norrænum tungumálum og tungu-
málum Eystrasaltslanda, ásamt færni í öðru tungumáli
í gistilandi.
Viðurkenningu og mat á raunfærni, þróun verkfæra og •
aðferða til að skrá starfsfærni, formlegt og óformlegt
nám.
Þróun nútímasamfélags með áherslur á loftslagsmál og •
umhverfi en einnig frumkvöðlastarfsemi eða svipaða
starfsemi. Einnig er hægt að leita styrkja fyrir þennan
geira í Nordplus Horisontal og Nordplus sprog ef það
á við.
Félagslega samþættingu í menntamálum, með því að •
bæta aðgengi og framboð í fullorðinsfræðslu. Sérstök
áhersla er lögð á að ná til landsbyggðarfólks og að
fjölga tækifærum til að hefja nám að nýju.
Samspil fyrirtækja og fullorðinsfræðslustofnana í •
þjálfun og menntun fullorðinna námsmanna. Umsóknir
sem virkja þjóðfélagshópa sem minna mega sín í sam-
félaginu njóta forgangs sem og nýir umsækjendur/nýtt
samstarf.
Styrkir eru veittir til ýmissa ferða- og samstarfsverkefna og
árlega eru veittar níu milljónir danskra króna til Nordplus
Voksen málaflokksins. Hægt er að sækja um styrk til ólíkra
verkefnaflokka:
Þemanet, þróunarverkefni og skráningarverkefni/stöðu-
mat (kortlægningsprojekter).
Ferðastyrkir eru veittir til fullorðinsfræðslukennara, stjór-
nenda, nemenda og þátttakenda á námskeiðum.
Undirbúningsheimsóknir kennara og stjórnenda til að
koma af stað verkefnum.
Endurmenntun, námsheimsóknir kennara og stjórnenda.
Nemendaskipti í endur- og símenntun.
Umsóknarfrestir eru að jafnaði í byrjun mars í Nordplus. Huga
þarf að samstarfi í tíma þar sem um sameiginlegar umsóknir
er að ræða. Landsskrifstofa veitir aðstoð og upplýsingar um
hvernig hægt er að fara af stað með verkefni.
Mjög fjölbreytileg fullorðinsfræðsluverkefni hafa verið
styrkt af Nordplus en möguleikarnir eru langt frá því að vera
fullnýttir. Sjá nánar á vef Nordplus.is.
U M H Ö F U N d I N N
Ragnhildur Zoega er verkefnisstjóri Grundtvig, Nordplus
Voksen.