Læknaneminn - 01.03.1980, Blaðsíða 9
um blóðkornum, en fáa eða enga sýkla, gæti bent til
veiru lungnabólgu. Sýni með mjög blandaðri flóru
eru yfirieitt ófullnægjandi og kemur þá sterklega til
greina að gera barkaástungu. Þetta eru aðeins gróf-
ar vinnureglur, en eftirfarandi ábendingar fyrir
barkaástungu má hafa til viðmiðunar.3,7
1) Þegar ekki næst í uppgang á venjulegan hátt,
einkum ef sjúklingurinn er alvarlega veikur.
2) Þegar nauðsynlegt er að staðfesta klínískan grun
um lungnabólgu eða lungnaígerð (absoess) af
völdum loftfælinna sýkla.
3) Þegar vafi leikur á því hvort ákveðinn sýkill i
uppgangssýni sé sjúkdómsvaldurinn, einkum hjá
sjúklingum með veiklaðar varnir.
4) Þegar möguleiki er á endursýkingu (superin-
fectio )á meðan sjúklingurinn er á sýklalyfja-
meðferð við annarri sýkingu.
5) Þegar sjúkdómurinn svarar illa meðferð og vafi
leikur á um áreiðanleika uppgangssýnisins.
Frabendingar
Eftirfarandi frábendingar ber að bafa í huga áður
en barkaástunga er framkvæmd:2’7’13
1) Osamvinnuþýður sjúklingur.
2) Mikill óstöðvandi hósti.
3) Brengluð storkupróf eða blóðflögufæð.
1 fjórða lagi mætti e. t. v. bæta við þeim sjúkling-
um sem hafa stuttan háls með óaðgengilegum barka,
og þeim, sem ekki er hægt eða ekki þorandi að rétta
rækilega úr bálsinum á.
Fylyikvillar
Pecora áleit barkaástungu vera hættulausa að-
gerð. I grein sem hann birti 196312 segir hann að
um 400 barkaástungur hafi verið gerðar á sjúkra-
húsi hans án alvarlegra fylgikvilla. Helstu fylgi-
kvillarnir voru loft undir húð (subcutaneous emphy-
sema), blóðgúll (hematoma) og hjá 2 sjúklingum
berklasýking í nálarfarinu. Aðrir hafa svipaða
reynslu. Svo virðist sem loft undir húð sé lang al-
gengast (Ries et al 4%, Kalinske et al 5%) ef undan
er skilið að hráki verður blóðlitaður fyrst á eftir hjá
flestum.2,14 Schreiner og samstarfsmenn birtu yfir-
lit yfir barkaástungur hjá 103 sjúklingum14 og
Hahn og samstarfsmenn hjá 61 sjúklingi,7 en eng-
inn af þessum sjúklingum hlutu alvarlega fylgi-
kvilla.
Sumir sjúklinganna, sem fengu loft undir húð,
höfðu einnig loft á milli lungnanna (mediastinal
emphysema; Ries et al 1%, Kalinske et al 2%).
Minnka má líkurnar á að fá loft undir húð og milli
lungna með því að láta sjúklinginn liggja í rúminu
í 8—12 klst. eftir aðgerðina. Meiri líkur eru á því hjá
sjúklingum sem hafa mjög slæman hósta.
Eftirfarandi fylgikvillum hefur verið lýst:
1) Loft undir húð, milli lungna og loftbrjóst
(pneumothorax) ,3
2) Blóðhráki.
3) Blóðgúll.
4) Blóðhósti og jafnvel köfnun.
5) Uppköst með mengun til lungna (aspiration).
6) Lækkun á súrefnismettun blóðsins og stundum
h j artsláttartruflanir.
7) Sýking í nálarfari.
Birtar hafa verið a. m. k. tvær greinar15’19 þar
sem fylgikvillar barkaástungu leiddu beint eða ó-
beint til dauða 5 sjúklinga. Þá ber að hafa í huga
að í þeim tilfellum var um að ræða mikið veika
sjúklinga og dánarorsökin gjarnan hjartsláttartrufl-
anir. Þetta er ekki há líðni, ef tekið er tillit til þess
hve útbreidd og algeng barkaástunga er orðin.
Unger og samstarfsmenn telja að ekki megi gera
barkaástungu nema að storkupróf séu eðlileg svo og
blóðflögur. Einnig ætti að athuga blóðgös og gefa
súrefni ef þörf krefði.
Lokaorð
Leitast hefur verið við að draga saman þau atriði
um barkaástungu sem máli skipta. Grein þessi ætti
því vonandi að auðvelda mönnum ákvörðunina um
það hvort barkaástungu skuli beitt eða ekki. Rétt er
að geta þess, að þótt þessi aðferð hafi sannað ágæti
sitt, þá er langt frá því að hún komi í staðinn fyrir
rannsókn á uppgangssýnum.
læknaneminn
7