Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1980, Qupperneq 30

Læknaneminn - 01.03.1980, Qupperneq 30
Dvalarheimili. Þetta er mjög brýnt verkefni þar sem dvalarkostnaður á þeim er ódýrari en á sjúkrabús- um. Langlegudeildir fyrir aldraða er stærsta verk- efnið í heilbrigðisþjónustunni sem þarf að ráðast í núna. Brynleifur H. Steingrímsson: Að mínum dómi þá ber að leggja til grundvallar það, að íjöldanum komi sem best til nota það fjár- magn sem til heilbrigðisþjónustunnar rennur. Þá liggur i augum uppi að fyrirbyggj andi lækningar hljóti algjöran forgang. Theodór A. Jónsson: Aukin göngudeildarþjónusta og aðstoð við fólk í heimahúsum, án þess að stefna fjárhagsafkomu þess í voða. Betri samtenging félagslegrar og læknisfræði- legrar þjónustu. Guðrún Helgadóttir: Að mínu mati er það sjálfsagt og eðlilegt að veita ofannefndum atriðum forgang. Þó má ef til vill segja, að æskilegustu forgangsverkefni væru fyrir- byggjandi aðgerðir í heilbrigðismálum þjóðarinnar, en þar er um svo fjölþætta breytingu á lífsmáta landsmanna að ræða, svo sem vinnustaðaeftirlit, skipulagða heilsurækt, að ekki sé nú minnst á hina andlegu velferð, að mitt vit nær ekki til þess að segja um á hverju ætti að byrja. 3. Hvcrjir rtiSu ferðinni við niður- röðun foryantfsverhcfna? Matthías Bjarnason: Ríkisstjórnin ætti að gera tillögur til Alþingis um framkvæmdir eftir að hafa hlustað á alla hagsmuna- hópa og raðað verkefnum niður. Síðan ætti Alþingi að samþykkja. En i raun eru það ákveðnir þrýsti- hópar sem ráða mestu. Þingmenn eru alltof hræddir við þá. Vegna hræðslu stjórnmálamanna við kjós- endur er forgangsröðun gjarnan miðuð við þá sem hafa hæst, en ekki raðað niður eftir hagkvæmni. Brynleifur H. Steingrímsson: Þessari spurningu verður aldrei svarað á einfald- an hátt, en hitt virðist vera ráðandi á Vesturlöndum 28 að kommersin sé ákaflega sterkur aðili í prioriter- ingu í heilbrigðisþjónustunni. Sölumenn dýrra tækja og verksmiðjur, sem stöðugt framleiða nýrri og há- jtróaðri tæki, eiga mjög greiðan aðgang að fag- lærðu fólki innan heilbrigðisþjónustunnar, sem oft cg einatt virðist fórna höndum af tilbeiðslu við tæknina og virðist sá fræknastur sem berst fyrir dýr- asta og að hans dómi besta tækinu. Þessi leikur berst síðan út í blöð og fjölmiðla, fær góðan hljómgrunn hjá klúbbum og líknarfélögum og salan fær sína skírn með því að eitthvert félagið gefur tækið og brosir framan í alþjóð við hátíðlega athöfn. f ljósi þessa er það skiljanlegt, að stjórnmálamenn falla gjarnan í þá freistni, að ráðstafa sameignarsjóðum þjóðfélagsins til þess, sem glámskyggnt fagfólk og auðtrúa líknarfélög telja sjálfsagt og gott. Aður en varir hefur embættismannakerfið líka fallið í þessa freistni, enda ung vísindi á Islandi að tafa um for- gangsröðun og hagræna fjárfestingu í heilbrigðis- málum. Sláandi dæmi um þetta er sá reipdráttur sem á sér stað milli sjúkrahúsa höfuðborgarsvæðisins um tæki og tækjabúnað, þar sem ráðamenn og ráðu- neyti eru með að leika. Theodór A. Jónsson: Fjárveitingavaldið. Maður hefur á tilfinningunni að þær tillögur sem viðkomandi ráðuneyti gera, taki miklum breytingum í meðförum fj árveitingavalds- ins . Guðrún Helgadóttir: Að sjálfsögðu Alþingi og heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið. Þó geta auðvitað fagmenn utan Al- þingis haft veruleg áhrif á þróun þessara mála sem annarra, skulum við vona. Að mínu mati vantar í þessum málaflokki sem öðrum, að háskóladeildir og prófessorar þeirra hafi tíma og aðstöðu til að hafa áhrif á heilbrigðismál almennt. 4. Eru cinhverjir þjjóðfélayshópar vanrœhtir? Matthías Bjarnason: a) Andlega og líkamlega fatlaðir. Við höfum ver- ið sein að taka við okkur, t. d. hefur ekkert tillit ver- ið tekið til fatlaðra við húsbyggingar. Bæklunar- LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.