Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1980, Qupperneq 37

Læknaneminn - 01.03.1980, Qupperneq 37
Um 1. árið Anatom ía Vegna þess að kennsla í almennri líffærafræði á haustönn befur verið felld niður hafa nemendur nú lélegri undirbúning fyrir anatómíuna heldur en áSur var. I kennslunni er farið nokkuS hratt yfir enda námsefni mikiS. Gengur mönnum misjafnlega aS fylgjast rrteS í fyrirlestrunum, ekki síst vegna þess aS æskilegt er aS ná niSur bæSi myndum og texta og er hætt viS aS hluti af textanum fari forgörSum hjá lélegum teiknurum. A þessu má ráSa bót meS því aS fjölrita teikningar sem síSan er merkt inn á. Var þetta reynt í nokkrum fyrirlestrum í fyrra og gafst vel. Þær bækur sem aSallega er stuSst viS eru tvær, önnur eftir Woodburne og hin eftir Lockhart o. f). VirSist sem Woodburne henti betur vegna þess að hún tekur efnið fyrir á svipaSan hátt og þaS er tekiS í kennslu. Þó er gott aS lesa Lockhart þegar lært er um taugar. Mörgum hefur gefist vel aS nota vasaatlasa sem nægja í mörgum tilfellum en meS þeim er hægt aS innbyrSa mikiS af staSreyndum án óþarfa mála- lenginga. I fyrra voru sýnikennslutímar inni í Ármúla, sem tveir 3ja árs nemar sáu um. Var þar um aS ræða þrívíddarmyndir af námsefninu og einnig var lík skoðað. Þessir tímar voru mjög gagnlegir ef nem- endurnir höfðu kynnt sér viðkomandi námsefni fyr- irfram. I prófum hefur komið í ljós að hlutfall námsefnis sem prófað er úr er ekki alltaf í fullkomnu samræmi við þann tíma sem eytt hefur verið í hvern hluta námsefnisins. Prófin hafa undanfariS byggst á stór- um ritgerðum og beinum spurningum. Skiptir miklu máli að nemendur séu viðbúnir prófverkefnunum og geti komið efninu frá sér á skipulegan hátt. f því sambandi er ágætt >að hafa æft sig fyrirfram í því að gera ritgerðir úr einhverjum hlutum námsefnisins því að mikiS er lagt upp úr því að skipulag sé haft á hlutunum. Björn Blöndal. Frumulíffrœði Tvær bækur eru lagðar til grundvallar: Cell and Molecular Biology eftir De Robertis og De Robertis og Molecular Biology of the Gene. Bækur þessar eru nokkuð yfirgripsmiklar og verður því að velja nokk- uð og hafna. Væri því ráð að fletta þeim vel og at- huga innihald þeirra áður en sest er niður við lestur þeirra spjaldanna milli, annars er mikiL hætta á að um blindan lestur út í loftið yrði að ræða. Eru t. d. summary aftan við hvern kafla sem segja mönnum í stuttu máli um hvað kaflarnir fjalla. En algert grundvallaratriði er að reyna að ná heildarmynd af faginu sem fyrst, mynda nokkurs konar ramma, sem menn síðan fylla útí eftir því sem við á, með tilliti til fyrirlestranna. Ekki er þó ástæða til aS örvænta þó slík heildar- mynd verði ekki dregin upp fullmótuð þegar í stað, því í svo yfirgripsmiklu fagi sem frumulíffræðin er, þá krefst það sjálfstæðra vinnubragða, sem miSa frekar aS skilningi en beinum utanlrókarlærdómi. Annars er kennslunni skipt í tvo megin þætti: 1) Almenna frumulíffræði og 2) ErfSafræSi, og er erfðafræSiþátturinn um margt stremlmari því þar er fjallað um sérhæft svið - allítarlega - þar sem almenna frumulíffræðin stiklar frekar á stóru og kemur víða við á mörgum sérhæfðum sviðum. Nemendur skyldu hvorki láta hið sérhæfa né hið almenna vaxa sér í augum, því kennslan miðar að því að nemendum sé Ljós grundvallaratriði frumunn- ar og starfsemi liennar, sem og innbyrðis afstöðu hlutanna í heilbrigðri frumu og sjúkri í grundvallar- læknaneminn 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.