Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1980, Side 57

Læknaneminn - 01.03.1980, Side 57
stjórnarnefnd ríkisspítalanna hafði ekki skilað um- sögn um tillöguna að samningnum, en það gerði hún loks seint í haust. Síðan hefur málið dregist vegna stjórnmálaástandsins. Skýrsla ritstjórnar Lwknanetnans Tvö blöð hafa komið út frá síðasta aðalfundi, þ.e. 4. tbl. 1978 og 1. tbl. 1979. Hefur þannig orðið nokkur dráttur á útgáfu blaðsins. A þessi dráttur sér margvíslegar orsakir, og yrði of langt, mál að tíunda þær hér, en vafalaust á hinn langi tími sem efnisöflun tekur hér stærstan hlut að máli. Nresta blað er langt komið í prentun, og einnig liggur mik- ið efni fyrir í tvö næstu. Ritstjórnin hefur reynt að fylgja fornum venjum og hefðum blaðsins, þar sem megin áhersla var lögð á fræðilegar greinar á sviði læknisfræði, jafn- framt því sem félagslegt efni tengt læknanemum fékk að fljóta með. Tregða læknanema að skrifa í blaðið hefur mjög háð allri efnisöflun og ljóst er að taka verður út- gáfu blaðsins til rækilegrar endurskoðunar ef hlutur læknanema eykst ekki frá því sem nú er. Efla þyrfti tengsl stjórnar F.L. og útgáfustjórnar- innar til að auka félagslegt efni í blaðinu, og til þess að blaðið þjóni betur hlutverki sínu sem mál- gagn F.L. Má í þessu sambandi benda á það fyrir- komulag sem tíðkast hjá læknablaðinu þar sem eru tveir ritstjórar, annar fyrir félagslegt efni en hinn fyrir fræðilegt. Að lokum viljum við þakka öllum er lögðu hönd á plóginn til útgáfu blaðsins, og þökkum ritstjórnar- mönnum fyrir samstarfið. Finnbogi Jakobsson, Lárus J. Karlsson. Skýrsla fortnanns kennslumálanefnd- ar F. L. 1979 - 80 í þessari skýrslu verður drepið á helstu mál, sem fyrir kennslunefnd læknadeildar komu á þessu starfs- tímabili. Starfsvið kennslunefndar breyttist talsvert með nýju Háskólalögunum og reglugerðinni sem Aj ritnejndarfundi. gengu í gildi nú í baust. I nýju reglugerðinni, sem gekk í gildi 26/9 ’79 segir um starfsvið kennslu- nefndar (73. gr.): „Kennslunefnd og kennslustjóri fylgjast með þró- un læknakennslu hérlendis og erlendis og hafa gild- andi kennsluskipan stöðugt í athugun, og gera í samráði við kennara tillögur um námsefni og magn þess, kennslutíma og fyrirkomulag prófa, annast sam- ræmingu kennslu og prófa, sjá um samningu og útgáfu kennsluskrár, veita kennurum og slúdentum leiðheiningar og sinna öðrum verkefnum, sem deild- arfundir, deildarráð eða deildarforseti kunna að fela þeim.“ Þessar breytingar fela í sér að kennslunefnd hef- ur nú raunverulega vökl til þess að hafa afskipti af lcennslumálum í deildinni, sem ekki var til staðar áður. Einnig losnar kennslunefnd nú undan því að þurfa að fjalla um ýmis afgreiðslumál er áður tóku upp mikinn tíma, s.s. sjúkrapróf og undanþágumál. Deildarráð hefur þó tekið upp á því að vísa ýmsum slíkum málum til kennslunefndar og telja verður það miður, því bæði hefur það tekið upp mikinn tíma og eins er hitt að afgreiðsla mála hefur dregist úr hófi við þetta og hafa ýmis undanþágumál verið að velkjast milli deildarráðs og kennslunefndar í óeðli- lega langan tíma, án þess að betri málsafgreiðsla hafi í raun hlotist. Kennslunefnd hefur verið treg til að taka slíkan málarekstur að sér, enda hefur nefndin nóg á sinni könnu. í kennslumálanefnd F.L. áttu sæti eftirfarandi nemendur: LÆKNANEMINN 51

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.