Læknaneminn - 01.04.1995, Page 37
HÁSKÓLASJÚKRAHÚSIÐ LANDSPÍTALINN
Þar er aðstaða læknanema í stuttu máli lítil og
léleg. Mun fljótlegra er að telja upp þá staði þar sem
aðbúnaður er viðunandi. Það er raunar aðeins einn,
Kvennadeildin, sem býður uppá bókasafn með
lesaðstöðu og vaktherbergi fyrir þá læknanema sem
eru á vakt. Ekkert af þessu er fyrir hendi á öðrum
deildum. Lesaðstaða fyrir læknanema á sjúkrahúsinu
er mikilvægt hagsmunamál, því nauðsynlegt er að
geta lesið námbækur sínar þegar dvalið er langtímum
saman á sjúkrahúsinu í verklega náminu og nýtt
tímann þannig mun betur. Sjötta árs nemar hafa
reyndar haft bráðabirgðaaðstöðu í kjallara Lsp. sem
þeir munu missa fljótlega. Varanlega lausn verður
því að finna á þessu máli sem fyrst.
LÆKNANEMI Á VAKT MEÐ PÍPTÆKI
Að læknanemar á vakt fái píp-tæki var langþráður
draumur sem rættist með tilkomu nýs prófessors í
bamalækningum. Nú er hægt að nýta tímann betur á
vöktunum því alltaf er hægt að ná í þann sem er á
vaktinni og þarf hann því ekki að missa af neinu.
Vonandi verður þessi nýbreytni tekin upp af for-
stöðumönnum annarra deilda.
NEYÐARBÍLLINN
Neyðarbíllinn er kennslutæki sem aðeins þeir
sem eru í verklegu námi á Borgarspítala fá að njóta.
Aðeins þriðjungur læknanema er á Bsp. og fá því
tveir þriðju aldrei að kynnast neyðarbílnum. Það er
hálf neyðarlegt. Kom fram m.a. sú hugmynd að
tengja neyðarbflinn kúrsinum í slysalækningum og
gefa þannig öllum tækifæri til að kynnast
neyðarbílnum.
BORGARSPÍTALINN
Þar er ágæt búningsaðstaða fyrir hendi og lipur
þjónusta á bókasafni. Samt er það bókasafn alfarið
rekið af Borgarspítalanum en ekki H.I. Á Bsp. vantar
hins vegar tilfinnanlega lesrými fyrir þá læknanema
sem eru í verklegu námi þar hverju sinni. Lesaðstaða
er reyndar til staðar á bókasafni Bsp. en það nýtist
ekki sem skyldi vegna takmarkaðs opnunartíma.
Einnig er tölvuver Bsp. heldur fátæklegt. Píp-tæki til
KENNSLUMÁLARÁÐSTEFNA
handa læknanemum á vakt hverju sinni væri til bóta.
Neyðarbíllinn er staðsettur á Bsp. og hafa lækna-
nemar á Bsp. fengið að kynnast þeirri starfsemi.
Mætti neyðarbfllinn vera nýttur með virkari hætti til
kennslu og þá hugsanlega í tengslum við bráða-
læknisfræði.
SKJALFEST RÉTTINDI LÆKNANEMA Á
LANDSPÍTALA
Réttindi læknanema á kennslusjúkrahúsunum eru
hvergi skjalfest. Það stendur til bóta sbr. ályktun þess
efnis sem F.L. fékk samþykkta á deildarráðsfundi.
Þegar því er iokið heyra vonandi mötuneytisstríð og
aðrar slíkar uppákomur sögunni til.
Klínísk kennsla utan Landspítala og
Borgarspítala
FLEIRI KENNSLUSTAÐIR
Töluvert var rætt um mikilvægi þess að nýta fleiri
sjúkrahús til kennslu en nú er. Læknisfræði hlýtur að
vera stunduð á vitrænan hátt á fleiri stöðum en í
Reykjavík og það ætti að sjálfsögðu að nýta sér. Þeir
staðir sem gætu komið til greina eru; Akureyri,
ísafjörður og Akranes. Allt eru þetta öflug og vel
búin sjúkrahús úti á landsbyggðinni sem gætu gegnt
mikilvægu kennslufræðilegu hlutverki. Sjúkrahúsið
á Akranesi tók á móti alls sex 4. árs læknanemum í
verklegt nám í svæfingarlæknisfræði í fyrsta sinn nú
í haust. Voru þeir sem þar dvöldu afar ánægðir með
kennsluna sem þeir fengu og töldu að þeim hefði
verið mjög vel sinnt. Sömu sögu er að segja af 3. árs
læknanemum sem hafa tekið verklega hlutann á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Sjúkrahúsin úti á
landi hafa hingað til verið vannýtt til kennslu, þau
geta gegnt mun veigameira hlutverki en nú er. Þau
rök hafa heyrst að sjúklingastreymi sé ekki nægilega
mikið og þeir framkvæmi ekki hinar og þessar
aðgerðirnar og henti þar af leiðandi ekki til kennslu.
Það hefur hins vegar komið í ljós að þar sem sjúkl-
ingastreymið er mikið og framkvæmdar margar og
fjölbreytilegar aðgerðir er oft afskaplega naumur tími
sem stúdentum er skammtaður og þeim því lítið
sinnt. Það skiptir nefnilega afkaplega litlu máli fyrir
læknanema sem er stíga sín fyrstu skref í klíníska
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.
35