Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 98
rótareyðingu seinna meira, en 95% þeirra tanna sem
hafa verið utan munns í 2 klst. In vitro rannsóknir á
úrdregnum tönnum leiða í ljós að fibroblastar
rótaryfirborðs úrdreginna tanna lifa ekki 2 klst.
þurrk (Mynd 5).
Tannholdið verður að meðhöndla í fullvöxnum
tönnum til að koma í veg fyrir bólgur ( sjá framar).
Það er venjulega gert af tannlækni 6-7 dögum eftir
slysið, á meðan allar festingar eru enn til staðar.
Aður en úrsleginni tönn er komið fyrir í kjálkanum
eru öll óhreinindi skoluð af henni. Best er að nota
saltvatn í sprautu, en ef aðstæður leyfa ekki annað
þá má láta kranavatn renna yfir hana. Það má alls
ekki koma við rótaryfirborðið með grisju, hvað þá
strjúka af því. Sjúklingur er svo alltaf settur á
sýklalyf, oftast fenoxymetylpenicillin (Fenoxcillin /
Kavepenin) 500 mg x 3 í 5-7 daga. Einnig er rétt að
athuga hvort gefa eigi stífkrampamótefni. ísettar
tennur verða svo að festast á a.m.k. 7-10 dögum.
d) Brot. Brotnar tennur eru flokkaðar eftir því
hvort krónan eða rótin er brotin.
i. Brotin króna. Segja má að tennur með brotna
krónu en ekki blóðugt sár inn í tannkviku, séu ekki
það brátt mál að það geti ekki beðið heimsóknar til
tannlæknis. Oft má bjarga tannkviku, sem úr blæðir,
með því að meðhöndla hana strax. Slíkt er þó
tannlæknavinna og krefst sérstakra fyllingarefa.
Þetta er þýðingarmikið í tönnum, sem eru ekki
fullvaxnar og ef vel tekst til orðið til þess að rótin
nái fullri stærð (Mynd 6).
ii. Brotin rót. Hér er hægt að bjarga tönninni með
því að festa hana mjög vel við næstu tennur. Þó eru
rótarbrotin stundum það slæm að tönninni verður
ekki bjargað. Það má segja að því nær krónunni sem
brotið í rótinni er, þeim mun minni líkur eru á að
tönninni verði bjargað (Mynd 7).
III. Áverkar á kjálkabein.
Brot á stoðbeini tanna er algengur fylgifiskur
tannáverka, sérstaklega þegar um eldri einstaklinga
er að ræða, sem hafa þéttara, harðara og ósveigjan-
legra bein. Slfk brot geta verið fyrir þegar reynt er
að koma úrsleginni tönn á sinn stað, og er nauð-
synlegt að fjarlægja þá hindrun. Eins getur verið um
að ræða stórt stykki úr beini umhverfis rætur og þá
þarf að meðhöndla það eins og annað beinbrot með
repositio og fixatio í 4 vikur.
Niðurlag
Hér að framan hefur verið stiklað á stórum
varðandi meðferð á tannáverkum með bráðameðferð
í huga. Eftirlit, endanleg meðferð og uppbyggingar á
töpuðum tönnum og tannvef er á verksviði tann-
lækna sem hafa þar til gerð tól, efni og verkkunnáttu
og er því viljandi sleppt í þessu greinarkomi.
Heimildir.
Andreasen. Jens O, Atlas of Replantation and
Transplantation of Teeth. Mediglobe, Sviss.
1992.
Andreasen J O, Andreasen F.M, Essentials of
Traumatic Injuries to the Teeth. Munksgaard,
1991.
Blomlöf. L. et al. Viability of human periodontal
ligament cells after storage in milk or saliva.
Scand. J. Dent Res. 1980; 88: 436-440.
„Painting is only a minute part of my genius“
Salvador Dali
92
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.