Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 125
AÐALFUNDUR
málþing um kennslumál). í kjölfar skýrslu sem formaður
F.L. og formaður kennslumálanefndar skrifuðu í Lækna-
nemann hafa orðið ýmsar breytingar á kennslu sem
vonandi verða til batnaðar. Öllum þáttakendum og
kennslustjóra eru færðar þakkir fyrir sitt framlag til
kennslumála.
4. Skemmtanahald, ferðalög og íþróttastarfsemi var
með hefðbundnum hætti og var vel mætt á flesta skipu-
lagða viðburði ef undan er skilin skíðaferð sem farin var á
vormisseri.
5. Félag læknanema sá um kynningu á læknanámi á
opnu húsi í Háskólanum þann 13. mars 1994. Þar kom
berlega í ljós að gífurlegur áhugi er á læknanámi og voru
fulltrúar F.L. spurðir af læknanemum framtíðarinnar um
allt frá svefnmynstri nagdýra til gervitungla. Beinagrind
og plöstuð líffæri sem höfð voru í forgrunni virtust ekki
fæla fólk frá.
6. Stúdentaskiptin og ráðningakerfið var í traustum
höndum og gekk sú starfsemi hnökralaust.
7 í stjórn F.L. kom upp sú hugmynd að F.L. veldi
kennara ársins, þ.e. kennara sem skarað hefur fram úr í
kennslu og kennara sem virkjað hefur nemendur til
vísindaafreka og beitt sér fyrir kennslumálum. Það er
alveg ljóst að margir kennarar deildarinnar leggja sig alla
fram um að fræða nemendur og verja til þess miklu meiri
tíma en þeir fá greitt fyrir s.k.v. samningum sínum við
Háskólann og sjúkrahúsin. Slík viðurkenning er mikils
metin í mörgum erlendum Háskólum og eflaust á hún eftir
að verða það í læknadeild. Auk þess hefur viðurkenning
sem þessi gildi við mat á umsækendum um stöður. Hafa
þessar tillögur verið mótaðar nánast að fullu og verður
þeim komið áfram til næstu stjórnar F.L. með von um að
þær nái fram að ganga.
8. Formaður F.L. og formaður kennslumálanefndar
sátu fund með prófessor frá kanadískum háskóla þar sem
mjög óhefðbundin læknakennsla fer fram. A fundinum
voru einnig deildarforseti, kennslustjóri og nokkrir af
kennurum deilarinnar. Þessi fundur var einkar fróðlegur
þar sem nemendurnir í umræddum skóla læra allt á
„próblem-óríenteruðu" formi í hópverkefnum. Þessir
nemendur gangast ekki undir próf og virðast standa sig
jafn vel í starfi og þeir sem farið hafa í gengum hefð-
bundið læknanám. Þetta módel hefur verið tekið upp í
fleiri háskólum og virðist eiga vaxandi vinsældum að
fagna.
X. Niðurlag.
I þessari skýrslu hefur verið gerð grein fyrir því
helsta sem stjórn F.L. hefur verið með á prjónunum á
síðasta starfsári. Starf formanns F.L. hefur verið
áhugavert og skemmtilegt. í því hef ég átt gott samstarf
við marga aðila og haft góða afsökun fyrir því að mæta
ekki í fyrirlestra. I jafn umsvifamikilli starfsemi og F.L.
stendur fyrir leggja íjölmargir almennir félagsmenn sem ekki
hafa verið nefndir í þessari skýrslu hönd á plóg. Þakkar stjóm
F.L. þeim kærlega fyrir hjálpina. Eg vil sérstaklega þakka
fráfarandi stjónarmönnum sem starfað hafa af áhuga og
samviskusemi vel unnin störf. Að lokum óska ég tilvonandi
stjórn alls hins besta á komandi starfsári.
Fyrir hönd stjórnar F.L.
Þorsteinn Gunnarsson formaður F.L.
Skýrsla stúdentaskiptanefndar 1993-94.
Starf stúdentaskiptanefndar síðasta árið hefur
gengið vel og voru mörg ný verkefni á dagskrá. Starfsárið
byrjaði með kynningarfundi fyrir læknanema um
stúdentaskiptin. Var þetta í annað sinn sem sltkur fundur
var haldinn og mun hann vonandi verða árviss í
framtíðinni. Frestur til að sækja um skipti fyrir sumarið
var færður frá 1. des. til 15. nóv., til að auðvelda nefndinni
störf sín. Umsóknir þetta árið voru einungis 11 og ein
umsókn um rannsóknarverkefni.
Innan alþjóðasamtaka læknanema IFMS A eru ýmis
önnur verkefni í gangi en stúdentaskipti. Meðal annars er
þar nefnd sem sinnir ýmsum verkefnum er lúta að
þróunarstarfi. Öðrum fulltrúa 2. árs var falið að vera
tengiliður við þessa nefnd og kynna verkefni hennar fyrir
læknanemum hér. Hann hefur viðað að sér miklum upp-
lýsingum og sérstaklega um tvö stærstu verkefni nefnd-
arinnar, s.k. „village projects“ í Súdan og Ghana. Þessi
verkefni eru mjög spennandi og hafa nú verið kynnt fyrir
íslenskum lækanemum og er það von stúdentaskipta-
nefndarinnar að einhverjir þeirra taki þátl í þeim fljótlega.
Einnig höfum við reynt að fylgjast með starfi kennslu-
málanefnar IFMSA og koma upplýsingum um það til
kennslumálanefndar F.L. Eitt áhugavert verkefni sem er
að fara af stað innan þeirrar nefndar er söfnun bóka um
læknisfræði sem gefa á til Eistlands, Lettlands og
Litháven. Þetta er byrjað í Þýskalandi og væri athugandi
fyrir íslenska læknanema að taka þátt í þessu verkefni á
næstunni.
-2skólaári.
I mars fóru tveir fulltrúar á skiptaráðstefnu IFMSA
sem að þessu sinni var haldin í Moskvu í 15°C frosti. Þar
var gengið frá samningum um að hingað kæmu 13
stúdentar í almenn skipti (einn hætti svo við), 1 í
rannsóknarverkefni og að héðan færu 12 (tveir hættu við).
I sumar tókum við samtals á móti 18 nemum, en af þeim
voru fimm sem ekki voru í gegnum IFMSA.
Aðalfundur IFMSA var að þessu sinni í Makedoniu
og var hann að venju í ágúst. Þangað fóru tveir fulltrúar við
illan leik, en náðu sem betur fer á leiðarenda og heim aftur
án meiriháttar hrakninga og jafnvel tugthúsvistar eins og
raunin varð með eina nefndina. A fundinum var reglum urn
félagsgjöld í IFMSA breytt á þann veg að nú greiða lönd
sem hafa færri en 500 þúsund íbúa aðeins fjórðapart af fullu
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
119