Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 68
KENNSLUVERÐLAUN
KENNSLUVERÐLAUN
FÉLAGS LÆKNANEMA
Kennsla og kennslumál hafa lengi verið læknanemum hugleikin enda um ákaflega mikilvægan
málafiokk að ræða. Mikilvægi nútímalegra kennsluhátta og -tækni verður líklega seint tíundað. Stjórn Félags
læknanema ákvað í samvinnu við kennslumála- og fræðslunefnd að brydda upp á þeirri nýjung að veita
kennsluverðlaun F.L. Er það viðleitni Félags læknanema til að vekja athygli á þessum málaflokki og sýna í
verki að við kunnum að meta það sem vel er gert á þessum vettvangi. Við val á þeim kennara sem þótti
hæfastur var sú leið faián að hvert ár fyrir sig kom með rökstudda tilnefningu um einn kennara og mátti hann
vera af hvaða stigi námsins sem er og gilti einu hvort um væri að ræða prófessor, lektor, dósent eða
stundakennara. Ef tilnefndir voru fleiri en einn kennari af hverju ári skyldi kosið milli þeirra. Þegar meta átti
hver væri best að verðlaunum kominn var svo tillit tekið til eftirfarandi þátta.
1. Kennsluhæfni (þ.e. hvernig tekst kennara að koma efninu til skila, hvernig undirbúinn o.s.frv.)
2. Kennslutækni, nýjungar í kennsluháttum.
3. Utkoma í gæðakönnunum og/ eða kennslumálaráðstefnu F.L.
4. Fjöldi tilnefninga (ef kennari fær fleiri en eina tilnefningu, þá vegur það vitanlega þungt).
5. Fjöldi nema í M.S.-, B.S.-námi og rannsóknarverkefni 4. árs læknanema.
6. Önnur störf að kennslumálum í læknadeild (t.d. nefndarseta í kennslunefnd læknadeildar)
7. Greinarskrif í Læknanemann sem hafa kennslufræðilegt gildi.
A grundvelli þessara atriða voru síðan þeir kennarar sem hlutu tilnefningu vegnir og nretnir. Gefin
voru stig fyrir útkomu í hverjum og einum ofannefndra þátta (liðir 1. og 2. hafa tvöfalt vægi). Sá sem hlaut
flest stig fékk síðan verðlaunin afhent. Skemmst er frá því að segja að kennsluverðlaun Félags læknanema
fyrir kennsluárið 1994-1995 voru afhent við hátíðlega athöfn á árshátíð F.L. þann 2. febrúar síðastliðinn.
Fyrstur til að veita verðlaunum viðtöku er prófessor í lífeðlisfræði, Stefán B. Sigurðsson, og er hann vel
að þeim kominn, hlaut yfirburða kosningu. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, glæsilegur áletraður
Mont Blanc sjálfblekungur af vönduðustu gerð. Verðlaunin gaf lyfjafyrirtækið Delta og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir.
Vonumst við til að þakklætisvottur senr þessi rnegi efla metnað kennara deildarinnar og hvetja þá til
dáða á þessu sviði. f.h. Félags læknanema, Arnar Þ. Guðjónsson, formaður
64
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.