Læknaneminn - 01.04.1995, Side 59
ENAPRIL
(enalapril maleat)
-áhrifaríkt lyf við háþrýstingi
Enapríl (enalapríl maleat)
Framleiðandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; C 02 E A 02. Hver
tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat, 5 mg, 10 mg eða 20 mg. Eiginleikar: Lyfið hamlar hvata, er
breytir angiotensin I í angiotensin II, sem er kröftugasta æðasamdráttarefni likamans. Lyfið er forlyf.
U.þ.b. 60% frásogast, umbrýst í lifur i enalaprílat, sem er hið virka efni. Áhrif lyfsins ná hámarki eftir 4-6
klst. og geta haldist í 24 klst. Helmingunartími er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er
skert. Lyfið útskilst í þvagi. Ábendingar: Hár blóðþrýstingur. Hjartabilun. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfið má alls ekki nota á meðgöngu. Lyf af þessum flokki (ACE-
hemjarar) geta valdið fósturskemmdum á öllum fósturstigum. Varúð: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins
hjá sjúklingum með skerta nýrna- og lifrarstarfsemi. Lyfið getur valdið of mikilli blóðþrýstingslækkun, ef
sjúklingar hafa misst salt og vökva vegna meðferðar með þvagræsilyfjum. Aukaverkanir: Algengar:
Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur. Sjaldgæfari: Þreyta, slen, lágur blóðþrýstingur og yfirlið. Ógleði,
niðurgangur. Húðútþot, ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Brengluð nýrnastarfsemi. Kreatínín, urea,
lifrarenzým og bilirúbín geta hækkað, en komast i fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Milliverkanir:
Blóðþrýstingslækkandi verkun lyfsins eykst, ef hýdróklórtíazíð er gefið samtimis. Blóðkalium getur
hækkað, ef lyfið er gefið samtímis lyfjum, sem draga úr kaliumútskilnaði. Ofsömmtun: Gefa
saltvatnslausn eða angiotensin II. Skammtastærðir handa fullorðnum: Við hækkaðan blóðþrýsting:
Venjulegur upphafsskammtur er 10-20 mg einu sinni á dag. Ekki er mælt með hærri dagsskammti en 40
mg. Við hjartabilun: Upphafsskammtur er 2,5 mg á dag, sem auka má við smám saman á 2-4 vikum.
Venjulegur viðhaldsskammtur er 20 mg á dag, gefinn i einum eða tveimur skömmtum. Lyfið er ekki
ætlað börnum.
Pakkningar:
Töflur 5 mg: 30 stk.; 100 stk.
Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk.
Töflur 20 mg: 30 stk.; 100 stk
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990