Læknaneminn - 01.04.1995, Side 60
CÍFLOX
( cíprófloxacín)
-breiðvirkt sýklalyf
Cíflox (cíprófloxacín)
Framleiðandi: OMECA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; J 01 M A 02. Hver
tafla inniheldur: Ciprofloxacinum INN, klóríð, mónóhýdrat, samsvarandi Ciprofloxacinum INN 250 mg
eða 500 mg. Eiginleikar: Lyfið er breiðvirkt sýklalyf af kinólónflokki. Verkunarmáti er að nokkru
óþekktur, en lyfið blokkar DNA-gýrasa, sem er sýklum nauðsynlegur til frumuskiptingar. Lyfið frásogast
um 70-80% frá mettingarvegi. Hámarks blóðþéttni næst eftir 2 klst. og helmingunartími i blóði er um 4
klst. Um það bil helmingur lyfsins útskilst óbreytt íþvagi, en afgangurinn sem niðurbrotsefni i þvagi, galli
og saur. Lyfið verkar á margar sýklategundir, þar á meðal Gram-neikvæða stafi (einnig Pseudomonas
aeruginosa, Branhamella catarrhalis); einnig á Gram-jákvæða sýkla. Óviss verkun er á loftfælna sýkla.
Mjög virkt gegn Neisseria gonorrhoea. Ábendingar: Sýkingar af völdum næmra sýkla, t.d.
þvagfærasýkingar, iðrasýkingar (salmonella o.fl.), sýkingar í blöðruhálskirtli. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð: Lyfið á ekki að gefa börnum á vaxtarskeiði vegna möguleika á
brjóskskemmdum af völdum lyfsins. Einnig ber að gæta varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með
tilhneigingu til krampa. Aukaverkanir: Ogleði, uppköst og óljós magaóþægindi. Stöku sinnum
niðurgangur. Svimi, höfuðverkur og þreytutilfinning. Stöku sinnum sjóntruflanir og einstaka tilvik
ofskynjana. Húðútbrot. Timabundin hækkun lifrarenzýma hefursést. Kristallamyndun í þvagi kemur fyrir,
ef þvag er basískt, en virðist þó ekki valda nýrnaskemmdum. Milliverkanir: Lyfið hindrar niðurbrot
teófýllíns og skyldra lyfja og hækkar því blóðþéttni þeirra. Ef nauðsynlegt er að gefa lyfin saman, þarf að
fylgjast vel með blóðþéttni teófýllíns. Sýrubindandi jvf, sem innihalda magnesíum- eða
alúminiumhýdroxið, geta hindrað frásog lyfsins. Athugið: Onæmi getur myndast meðan á lyfjagjöf
stendur, t.d. við beinasýkingar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Þvagfærasýkingar: 100-250 mg
tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Lekandi: 250 mg gefið i einum skammti einu sinni. Iðrasýkingar: 500
mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Beinasýkingar: 750 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. -Skammta
verðurað minnka, ef kreatinínclearance erundir30 ml/minútu. Lyfið erekki ætlað börnum.
Pakkningar:
Töflur 250 mg: 10 stk.; 20 stk.; 100 stk.
Töflur 500 mg: 10 stk.; 20 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990