Læknaneminn - 01.04.1995, Page 70
(cisapríð)
eykur iðrahreyfingar
Prestal (cisapríð)
Framleiðandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; A 03 F A 02 Hver tafla
inniheldur: Cisapridum INN, mónóhýdrat, samsvarandi Cisapridum INN 5 mg, 10 mg eða 20 mg.
Eiginleikar: Cisapríð veldur losun á acetýlkólini frá taugaendum i þarminum og eykur þar með
hreyfingar í vélinda og spennu i efra magaopi. Lyfið eykur einnig hreyfingar i maga og flýtir
magatæmingu. Lyfið frásogast hratt og vel einkum ef það er tekið inn a.m.k. 15 mínútum fyrir máltið.
Vegna umbrota í lifur er aðgengi eftir inntöku 40-50%. Verkun lyfsins byrjar að koma fram 30-60
mínútum eftir inntöku, en blóðþéttni nær hámarki eftir 1-2 klst. Helmingunartimi í blóði er u.þ.b. 10 klst.
Próteinbinding í plasma er 98%. Lyfið umbrotnar að mestu í lifur og umbrotsefnin skiljast að hluta til út
með saur og að hluta til með þvagi. Hjá sjúklingum með nýrna- eða lifrarbilun er rétt að byrja með
helmingi lægri skammta en venjulega er gert. Ef þörf krefur, má síðan auka skammta varlega, þar til
hæfileg verkun fæst eða aukaverkanir gera vart við sig. Ábendingar: Starfrænar truflanir i meltingarvegi,
t.d. bakflæði i vélinda og sein magatæming. Langtímameðferð við bakflæði i vélinda. Frábendingar:
Meðganga og brjóstagjöf. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru niðurgangur (9%) og kviðverkir
(3%), en þessi óþægindi eru yfirleitt tímabundin. Algengar (>1 %): Niðurgangur, kviðverkir, vindgangur.
Sjaldgæfar: Höfuðverkur, svimi, ógleði. Mjög sjaldgæfar (<0,1 %): Krampaflog, einkenni frá extra-
pýramidalkerfi. Truflanir á lifrarstarfsemi. Ef miklir kviðverkir verða eftir töku 20 mg taflna er mælt með,
að skammtur sé helmingaður við hverja inntöku. Millivekanir: Vegna áhrífa lyfsins á magatæmingu
geturþað haft áhrifá frásog annarra lyfja, m.a. segavarnalyfja. Andkólínvirk lyf upphefja að verulegu leyti
örvandi áhrif cisapriðs á hreyfingar í meltingarfærum. Rétt er að gera storkupróf vikulega hjá sjúklingum,
sem eru á segavarnameðferð, fyrst eftir að notkun lyfsins er hafin eða henni hætt. Varúð: Lyfið skal
notað með varúð hjá fyrirburum, sem fæðast eftir skemmrí en 34 vikna meðgöngu. Eiturverkanir: Við
ofskömmtun eru einkenni kviðverkir og niðurgangur og hjá börnum sljóleiki og atonia. Meðferð: Lyfjakol
og nákvæmt eftiríit. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir skammtar eru 15-40 mg, gefið
sem 5-10 mg þrisvar til fjórum sinnum á dag. Við bakflæði i vélinda eru gefin 20 mg tvisvar sinnum á
dag. Meðferðaríengd er venjulega 4-8 vikur. Við langtimameðferð á bakflæði i vélinda eru gefin 10 mg
tvisvar sinnum á dag, fyrir morgunverð og að kvöldi fyrir svefn, eða 20 mg einu sinni á dag að kvöldi fyrir
svefn. í alvarlegum tilvikum má auka skammtinn i20 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa
börnum: Venjulegir skammtar eru 0,2 mg/kg líkamsþunga þrisvar til fjórum sinnum á dag. Lyfið skal
tekið 15 mínútum fyrírmat.
Pakkningar:
Töflur 5 mg: 50 stk.; 100 stk.
Töflur 10 mg: 50 stk.; 100 stk.
Töflur 20 mg: 100 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990