Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Qupperneq 116

Læknaneminn - 01.04.1995, Qupperneq 116
Hliðstæða Hermesar í rómverskri goðafræði, Merkúr, hlaut einnig stafinn í arf og er á Italíu frá 3.öld talinn tengdur stjörnuspeki, gullgerðarlist og göidrum, enda var hann notaður áfram í ýmsum launhelgum miðalda. Frá endurreisnartímanum hefur Caduceusi og stafi Asclepiosar iðulega verið ruglað saman. Asclepios Heiti þessa gríska lækningaguðs er yfirleitt notað á sínu gríska formi, en kemur einnig fyrir sem latneska útgáfan Aesculapius. Asclepios (Mynd 2) og skyldmenni hans koma víða við sögu í táknfræði og sögu læknisfræðinnar. Sem dæmi má nefna að Hippokratesareiðurinn er svarinn í þeirra nafni. Upphaf hans er: „Eg sver við Appollo, heilsugjafann, við Asclepios, Hygieiu og Panakeia og nefni allar guði og gyðjur þar til vitnis að ég ætla mér alveg að halda þennan eið minn og skuldbindingu eftir því sem mér frekast er unnt og dómgreind mín nær.“ Vegna þessara tengsla er rétt í upphafi að víkja nokkuð að ættum Asclepiosar. Asclepios var sonur Appollo og meyjar frá Þessalóníku að nafni Coronis. Sumir telja hana hafa verið náttúrugyðju. Elstu sagnir segja hann hafa verið sögulegan fursta. Fyrir fæðingu Asclepiosar var Coronis Appollo ótrú, þar eð hún giftist Ischys og varð hrafn til þess að segja honum frá því. Appollo skaut þá heitmey sína í hjartastað með ör og drap síðan Ischys. I öðrum útgáfum sögunnar var það systir Appollos, Arthemis, sem banaði Coronis með ör. Aður en Coronis gaf upp andann barmaði hún sér vegna barns síns ófædds og iðraðist Appollo þá gjörða sinna og bjargaði barninu áður en hann bar ástkonu sína á bálköstinn. Fékk hann barnið kentárnum Chiron, syni Satúrnusar og gyðjunnar Philyriu, til fósturs. I grískri goðafræði fór heldur vafasamt orð af kentárum því þeir þóttu nokkuð uppivöðslusamir. Chiron var þó undantekning því hann var þekktur af visku sinni og hafði alið upp ýmsa kappa eins og Jason, Herkúles og Achilles. Af honum lærði Asclepios síðan læknislistina með notkun jurta, seyða og særinga. Asclepios var ötull námsmaður og tók að lokum læriföður sínum fram. Hann vakti mann upp frá dauðum og frelsaði hann frá Hades, ríki dauðra. Vegna þessa ásakaði guð undirheima hann um að fækka sálum Hadesar. Seifur ( Asklc|*i<> Koritcr.k piMmst.iItK' i'. i >• Kl ÍClM>.l..|, Knlll) Mynd 2. Asclepios. leið ekki að dauðlegur maður hefði vald lífs og dauða og sló hann eldingu. Sonar síns hefndi Appollo með því að drepa kyklopa sem smíðuðu eldingar fyrir Seif. Fyrir þetta brot sitt varð Appollo að bæta með því að ganga um tíma í þjónustu Þessalóníkukonungs og gæta hjarðar hans. Seifur dæmdi Asclepios til að glata guðlegum eðlisþætti sínum og verða að öllu mannlegur og lækna aðeins gegn greiðslu! Læknar voru víða þekktir í Grikk- landi sem „anargyroi“ sem þýðir bókstaflega án silfurs eða án peninga, því ekki þótti við hæfi að þiggja greiðslu fyrir lækningar. Aðrar útgáfur sög- unnar segja að Seifur hafi drepið hann en síðar séð eftir því og hafið hann upp sem guð og fengið honum stöðu á himinhvolfinu. Asclepios giftist Epione, en hlutverk hennar var að lina sársauka. Nokkur óvissa ríkir um barnafjölda þeirra, en 6 hafa alla vega orðið þekkt í sögu læknis- fræðinnar. Hygea var ein af dætrum þeirra og var gyðja heilbrigðis og forvarna. Lyfjaverslanir eru enn eftir henni nefndar. Panacea var önnur dóttir þeirra og aðstoðaði hún systur sína í helgisiðum hofsins og 110 LÆKNANEMINN 1. Tbl. 1995 48. Árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.