Læknaneminn - 01.04.1995, Page 124
VI. Tölvur.
I byrjun vetrar hugðist félagið bæta tölvukost sinn
og jafnvel koma upp vísi af tölvuveri fyrir félagsmenn en
um svipað leyti komu upp hugmyndir Harðar Filipussonar
um tölvuver á vegum Háskólans í Læknagarði. Var þessu
því slegið á frest um sinn. Samt var alveg ljóst að félagið
yrði að eignast a.m.k. eina nýja tölvu. I vikunni náðu
gjaldkeri Læknanemans og ritari F.L. samningi Apple
umboðið og kaupir Læknaneminn nýja tölvu og prentara.
Sú tölva sem þeir hafa haft til afnota verður því sennilega
staðsett í Læknagarð þar sem embættis- og félagsmenn
geta haft not af henni. Hannes Blöndal hyggst nú koma
upp tölvuveri til kennslu í líffærafræði og í vetur áttu
stúdentar afar gagnlegan fund með honum um kennslu í
líffærafræði og um þær breytingar sem hann hyggst hrinda
í framkvæmd á næstunni. Munu þær valda byltingu í
líffærafræðikennslu.
VII. Húsnæðismál.
Um þessar mundir er verið að smíða ný borð og
komnir eru glæsilegir stólar í lesstofuna á þriðju hæð í
Læknagarði. Auk hennar hafa nú nemendur lestrar-
aðstöðu í kjallara Læknagarðs og 6. árs nemar hafa
lesaðstöðu á Landspítalanum í gamla endurhæfingar-
salnum. Allt útlit er fyrir að 6. árs nemar missi þessa
aðstöðu á næstunni þar sem til stendur að stækka
bráðamóttöku Landspítalans. A fundi sem Formaður F.L.
átti við þá sem sjá um skipulagningu húsnæðis á Land-
spítalanum kom fram að ekki lítur út fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í lestofunni á þessu kennsluári. Það er þó
alveg ljóst að ef mikið ónæði verður af framkvæmdum
nálægt lesstofunni þá verður F.L. gangast fyrir því að
fundin verði ný lesstofa sem fyrst. Einnig er nauðsynlegt
að þessi mál verði leyst í eitt skipti fyrir öll svo að
komandi stjómir þurfi ekki að eyða stórum hluta af sínum
dýrmæta tíma til þess að leysa þessi mál á hverju ári eins
verið hefur undanfarin ár. Með því lestrarrými sem nú er
til staðar eru flestir sammála um að lesstofurými fyrir
læknanema sé nógu mikið hvort sem menn kunna að meta
aðstöðuna eða ekki.
Um haustið 1991 fékk F.L. upphringingu þar sem
félagið var beðið um að tæma húsnæðið á Suðurgötu, þar
sem það hafði félagsaðstöðu, fyrir kl.17 daginn eftir. Enn
eigum við eftir að verða við þessari beiðni að fullu. Félag
íslenskunema, sem hefur þarna aðstöðu, hafði samband
við okkur snemmsumars og bað okkur að taka það drasl
sem eftir var. Auðvitað lofuðum við því en um svipað
leyti fóru allir í sumarfrí og síðan þá hefur ekki tekist að
hóa saman mannskap til þessa verks. Það fellur því í hlut
næstu stjómar að ganga frá þessu sem fyrst.
Ekki er ástæða til þess að ræða önnur húsnæðismál
frekar þar sem þau hafa ekkert breyst frá síðustu árs-
skýrslu.
VII. Útgáfustarfsemi.
1. Á þessu starfsári var útgáfa Læknanemans með
miklum ágætum og gleðilegt að sjá hvernig vegur þeirrar
útgáfu fer sívaxandi. Einnig er lofsvert hvernig fráfarandi
ritstjórn tók á fjármálunum undir traustri forystu gjaldkera
Læknanemans sem hefur viðskiptavit á við sjö meðal
læknanema.
2. I vetur komu Meinvörp út reglulega og kunnum við
ritstjórninni bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Ekki verður
sagt að mikill tepruskapur hafi verið í fréttaflutningi
og gríni þar sem hlutirnir voru nefndir sínu réttu nöfn-
um.
3. Svmfvsis-læknafaörn og nokkrir vinir þeirra-.
símaskrá F.L., kom óvenju fljótt út í vetur vegna snarra
handtaka ritara félagsins. Var hún með svipuðu sniði og í
fyrra og hefur þetta litla brot mælst mjög vel fyrir meðal
félagsmanna. Við hvetjum nýja stjóm félagsins til þess að
safna meiru af handhægum upplýsingum í hana.
4. Gefinn var út bæklingur handa fvrsta árs nemendum
á haustmisseri 1993 með helstu upplýsingum starfsemi
F.L. og um læknadeildar.
VIII. Leiðindamál.
Á hverjum vetri koma alltaf upp leiðindamál sem
forsvarsmenn F.L. þurfa að leysa, iðulega í samráði við
deildarráð. Þessi vetur var engin undanteking. Þar sem
þessi mál eru flest öll mjög persónuleg kjósum við að
ræða þau ekki frekar í þessari skýrslu.
Eitt vil stjórn F.L. þó nefna, en það er ósæmileg
hegðun ákveðinna félagsmanna þegar læknanemar koma
saman til þess að gera sér glaðan dag. í vetur og í haust
afrekuðu þeir ýmislegt og er þetta mjög bagalegt þar sem
félagið nýtur trausts og velvildar margra aðila og nær því
oft á tíðum góðum samningum. Auk þess gerðust sumir
svo kræfir að stela frá félaginu og er slík framkoma
algjörlega óþolandi. Það fer afar illa saman að starfa sem
læknir og afbrotamaður.
IX. Ýmis mál.
1. Haldið var viðamesta skyndhjálparnámskeið sem
F.L. hefur staðið fyrir til þessa. Fjölmargir aðilar, læknar,
læknanemar, hjúkrunarfræðingar, sjúkrafiutningamenn
o.fl. gáfu vinnu sína og stendur F.L. í þakkarskuld við alla
þessa aðila. Auk þess sá Pizza Elvis um að næra alla
þáttakendur og þökkum við þann rausnarlega stuðning.
Sigurður Magnason sá um skipulagningu þessa nám-
skeiðs.
2. Fulltrúar F.L. fóru á fund fyrsta árs á haustmisseri
1993 og 1994 til þess að kynna starfsemi félagsins og
svara spurningum.
3. Haldin var kennslumálráðstefna sem skiiaði sér í
mikilli umræðu um læknakennslu meðal kennara (sbr.
118
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.