Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 127
AÐALFUNDUR
Vinnudagar í boði á starfsárinu sem er að líða
voru 4484 talsins, sem er aukning um 11,7% frá fyrr ári.
Nýtingin á stöðunum var mjög góð eða 99,2%. I nokkrum
tilvikum settu vinnuveitendur skilyrði um að eingöngu 5.
árs nemar kæmu til greina í stöðumar. Var hér um að ræða
6 stöður eða 290 vinnudaga (18 daga í héraði og 272 á
geðdeildum LSP,BSP og SÁÁ). Eru þessar stöður ekki
meðtaldar í útreikningunum en nýtingin yrði 93,1% á
4774 vinnudögum ef svo væri.
í hlut 4. árs nema féllu allmargar stöður og voru
þær nærri fimmfallt fleiri en í fyrra, þannig deildu 28
nemar með sér 70 stöðum. Sambærilegar tölur í fyrra
voru 15 stöður í hlut 9 nema.
Taflan hér að neðan sýnir fjölda vinnudaga í
hverjum mánuði. Tölurnar í sviganunt tákna fjölda staða.
Lesa má ýmsar upplýsingar úr þessum töflum og
væntanlega geta þær svarað mörgum þeirra spurninga sem
brenna á fólki sér í lagi þegar nálgast sumarmánuðina.
Hafa verður í huga að nokkrar sveiflur eru milli ára eins
og sjá má á töflunni hér að ofan og því aldrei hægt að stóla
á að næsta ár verði eins og það síðasta.
1993-1994 Okt Nóv Des Jan Feb
Mar Apr Maí Jún Júl Ágú
Sep Alls
Heilsugæsla 111 31 69 27 6
61 41 112 862 576 185
70 2151
(7) (5) (6) (3) (3)
(8) (7) (8) (16) (13) (9)
(7) (92)
Sjúkrahús 3 70 134 95 129
198 112 140 887 431 81
16 2296
(3) (11) (21) (18) (14)
(U) (10) (13) (22) (12) (3)
(10) (148)
Ómannað 0 0 0 0 0
5 14 1 0 7 0
10 37
Samtals 114 101 203 121 135
264 167 253 1749/1068 266
96 4484
(10) (16) (27) (21) (17)
(20) (17) (22) (38) (25) (12)
(18) (240)
Fundir:
Ráðningafundir voru haldnir í lok hvers mánaðar
eins og venja er (yfirleitt síðasta fimmtudag í hverjum
mánuði). Þó framboð á vinnu væri í meira lagi var þó
eftirspurn yfirleitt enn meiri, þó virtirst stefna í óefni í
septembermánuði. 5. árs nemar voru þá uppteknir í
„barnataugageðlæknis-gynecologiu“ en einstaklega fáir 6.
árs nemar mættu á fundinn. Þeir sem voru að hefja 4. ár
létu heldur ekki sjá sig á fundinum en voru að sjálfsögðu
velkomnir. Virtust menn ekki átta sig á því að sumarið
væri á enda. Telur undirritaður að vel kæmi til greina að
draga út ráðningaröð fyrir september áður en sumarið fer í
hönd. Fundur um reikningsskil í héraði var haldin í lok
maímánaðar og var dræm aðsókn. Væri jafnvel hentugra
að halda þann fund um miðbik vorannar áður en prófs-
krekkurinn heltekur stúdenta.
Reglugerðin:
Eins og undanfarin ár olli „48-tíma reglan“
nokkrum deilum. Voru það fyrst og fremst læknar á
Slysadeild Borgarspítala sem kvörtuðu yfir ósveigjanleika
í kerfinu. Vaktirnar á deildinni voru stuttar, allt niður í 7
klst. og ekki forsvaranlegt að ætla óreyndum læknanema
að standa slíkar vaktir. Þegar á leið veturinn, tók því
undirritaður upp þá vinnureglu að eftir að allir sem á
deildinni höfðu unnið (sem voru hátt í 10 stúdentar) og
áhuga höfðu á vöktum höfðu tekið eina vakt var leitað til
einhvers þeirra á ný. Voru þannig gerðar 9 undantekn-
ingar á þessum 12 mánuðum, allar á Slysadeild og á þessi
vinnuregla alls ekki við í héraði eða á öðrum deildum
spítalanna. Hér að neðan er yfirlit yfir 48-tíma regluna.
Alls var þessari reglu beitt 77 sinnum en skv. ársskýrslu
síðasta árs var henni beitt 14 sinnum þá. einhlít skýring á þessari aukingu. Líklega er engin
1993-1994 Okt Nóv Des Jan Feb
Mar Alls Apr Maf Jún Júl Áeú SeD
Vinnudagar 4 12 19 12 10
6 7 94 5 7 3 2 7
Fj. staða(4) (8) (14) (10) (8) (6)
(7) (5) (4) (3) (1) (7) (77)
Undantekn. 0 1 0 1 1
1 2 1 0 0 0 2
9
Rétt er að leggja áherslu á það að allar stöður ber
að tilkynna til ráðningastjóra enda er annars ekkert eftrirlit
með þessum stöðum. Þetta þýðir að ef einhver tekur
læknisstöðu, sama hve stutt hún er, án þess að tilkynna
það ráðningastjóra, er sá hinn sami að brjóta reglur
ráðningakefisins og á refsingu yfir höfði sér.
Ráðningagjöldin:
Þegar hafa núverandi kanditatar greitt sín
ráðningagjöld. Mestur hluti gjaldanna er þó útistandandi.
Gíróseðlar ættu þó fljótlega að berast mönnum í hendur ef
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
121