Læknaneminn - 01.10.1996, Blaðsíða 56
I skálarræðunni var pabba
óþægilega tíðrætt um leiðina að hjartanu
sem liggur í gegnum...
Lómex (ómeprazól)
Framleiðandi: Omega Farma ehf. Sýruhjúphylkí; A 02 B C 01 R E Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+,H+-ATPasa) í
parfetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir
einstakan skammt, en eykst (60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding ( blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40
mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en þv( samsvarar og er talið að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega f lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út
með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur (skeifugörn og maga. Bólga (vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með speglun.
Langtímanotkun við bólgu (vélinda vegna bakflæðis eða við sfendurteknum sárum í maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en ( þrjú ár. Frábendingar: Engar þekktar.
Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar(>r/o): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri:
Niðurgangur, ógleði, uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0.1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku
tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst (tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir.
Munnþurrkur, bólga ( munni, sveppasýking ( munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á
hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga.
HÉR & NÚ AUCLÝSINGASTOFA / SÍA