Læknaneminn - 01.10.1996, Blaðsíða 127
Skýrsla Stjórnar félags Læknanema 1995-1996
gæslustöður sl. sumar. Þrátt fyrir þessa minnkun á framboði
fengu allir á fimmta ári sem höfðu áhuga á að vinna, einhverj-
ar stöður yfir sumarið. Sumir voru að vísu óheppnir vegna
uppsagna heilsugæslulækna. 14 fjórða árs nemar og 2 þriðja
árs nemar fengu stöður í sumar.
Ráðningafundir voru haldnir í lok hvers mánaðar og sum-
arráðningaröðin var dregin út á fundi í lok nóvember.
Á síðasta aðalfundi F.L. voru gerðar breytingar á reglugerð
F.L. um ráðningar. Mikilvægasti hluti þessara breytinga var
þó án efa breyting á reglugerð um læltnanema sem seinka sér
á milli ára. Mál milliáranema var orðið ansi flókið og þörf var
á skýrari og einfaldari reglum.
Árið áður var gerð breyting á 48 tíma reglunni sem gaf
læknanemum aukið svigrúm þannig að hægt var að nota 48
tímana í heilu lagi eða 2x24 tíma. Það er álit ráðningarstjóra
sem nú lætur af störfum að þessi breyting hafi gefið góða raun
og sé vert að viðhalda. Alls var 48 tíma reglan notuð í 132
vinnudaga eða um 3 % af unnum dögum.
Einn læknanemi var áminntur og fékk 5000 kr. sekt fyrir
brot á reglugerð félagsins um ráðningar þegar viðkomandi
tók ekki valda stöðu.
Nokkuð bar á því að Iæknanemar færu kringum kerfið og
hálfpartinn eignuðu sér stöður sem voru boðnar út. Þetta átti
sérstaklega við stöður í heilsugæslu sl. sumar Annað hvort sáu
læknanemarnir sjálfir um að útvega stöðuna eða heilsugæslu-
læknar báðu sérstaklega um vissa einstaklinga. Ráðningar-
krefið hefur ekld klárar reglur um það þegar þessi staða kem-
ur upp og í raun erfitt að setja nokkrar reglur. Því er eflaust
eina leiðin til að koma í veg fyrir þetta að höfða til samvisku
læknanema því þetta kerfi sem við höfum er oftast nær rétt-
látt og sanngjarnt. Kerfið var hannað til að koma í veg fyrir
að kunningsskapur og tengsl réðu því hverjir fengu vinnu.
Þetta kerfi hefur verið við líði í mörg ár og þó að oft hafi ver-
ið deilt um einstakar reglur þess þá hefur verið almenn sátt
um það. Forsendan þess að þetta kerfi lifi er að við stöndum
saman á óeigingjarnan hátt.
Nú þegar eða á næstu dögum ættu gíróseðlar að berast til
þeirra læknanema sem unnu eitthvað á sl. starfsári. Vil ég
hvetja fólk til að standa skil á þeim því þeir sem ekki greiða
ráðningargjöldin á til settum tíma verða ekki dregnir út í
ráðningaröð.
Að lokum vil ég þakka öllum læknanemum fyrir samstarf-
ið og þá sérstaklega Jónasi L. Franklín sem nú mun taka við
starfi ráðningastjóra og óska ég honum góðs gengis.
Arsreikningur Ráðningakerfis
F.L. 1995-1996
TEKJUR
Greidd ráðningagjöld 21.740,-
Sektir 5.000,-
Utistandandi ráðningagjöld 215.340,-
Tekjur alls 237.080,-
GJÖLD
Gíróseðlar, frímerki, ljósritun og umslög 25.224,-
Símakostnaður 7.785,-
Þjónustugjöld í banka 606,-
Gjöld alls 33.615,-
Tekjur umfram gjöld 203.465,-
Skýrsla Stúdentaskiptanefndar íyrir stjórnar-
skiptafúnd félags lækannema sept. 1996.
Nú er sumarið á enda og frá mörgu að segja.
Fjánnálin
Utlitið var ekki bjart í vor fyrir stúdentaskiptanefndin sem
þá var í miklum fjárhagskröggum en skemmst er frá að segja
að súf járöflun sem þá var komin í gang og þau neyðarúrræði
sem gripið var til í vor skiluðu svo góðum árangri að núna
sitjum við uppi með 340.000 kr. Tekjuafgang í lok sumars.
Þetta er algert einsdæmi en þýðir þó ekki að hægt sé að halla
sér aftur og slappa af því tryggja verður öryggi fyrir framtíð-
ina. Stærstu upphæðirnar sem komu inn í vor og sumar voru
frá Læknafélagi fslands 150.000 kr, Rektor Háskóla íslands
150.000 kr og Heilbrigðisráðuneytinu, sem á endanum end-
urskoðuðu afst-ðu sína til styrkumsóknar okkar og styrktu
okkur um 100.000 kr, sem þó er einungis helmingur af því
sem verið hefur. Umsóknirnar til Rektor og LI voru nokkurs
konar neyðaróp og ólíklegt að Rektor muni styrkja okkur aft-
ur. Hins vegar er það von nefndarinnar að hægt verði að ná
samkomulagi við Heilbrigðisráðuneyti og LI um að samein-
ast um stuðning við sumarstarfið og stúdentaskiptin almennt.
Þá munaði verulega um íbúð sem við fengum til afnota, end-
urgjaldslaust í allt sumar, en húsaleiga er einn stærsti útgjalda-
liður nefndarinnar.
Ætlunin var að ræða á stjórnarskiptafundi með hvaða hætti
Félag læknanema gæti betur tryggt starfsgrundvöll stúdenta-
skiptanefndarinnar, en félagið tók að sér að greiða félagsgjöld
til IFMSA sem eru rúmlega 30.000 kr þetta árið. Rætt var
um möguleika á að félagið greiddi niður kostnað við hvern ís-
lenskan nema sem utan fer, jafnframt því að hækka staðfest-
ingagjald það sem hver nemi greiðir. Þetta eru allt punktar
sem þarf að ræða og velta fyrir sér, ef svipuð krísa kemur upp
þetta árið. Núna er allt í góðum gír en nefndin leggur þó til
að Félag læknanema taki að sér að greiða árgjöldin því nefnd-
in er í raun bara undirnefnd Félags læknanema og það er Fé-
lag læknanema sem e rmeðlimur IFMSA go þar með allir ís-
lenskir læknanemar. Þarna er um að ræða u.þ.b. 150 kr á
haus innan deildarinnar og ætti því að vera viðráðanlegt, sér-
staklega með tiliiti til þess hve stór hluti læknanema nýtir sér
möguleika stúdentaskiptanna.
Sumarstarfið
I sumar komu hingað 22 erlendir nema og sá 23 mættur
fyrir september. Hópurinn skiptist þannig eftir þjóðernum:
LÆKNANEMINN
117 2. tbl. 1996, 49. árg.