Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
FRÉTTIR
ecoAgro
Vistvænt rúlluplast - fæst hjá Líflandi
Gæðaprófað af LBHÍ við íslenskar aðstæður
100%
endurunnið
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar
Matvælainnflutningur:
Tollfrjálsi kjúklingurinn
á veitingamarkaði
Samdráttur í kaupum veitinga-
markaðsins á íslenskum kjúkling
bendir til þess að úkraínskt
kjúklingakjöt hafi fyrst og fremst
ratað til matvælafyrirtækja og
veitingastaða.
Frá janúar til aprílmánaðar 2023
hafa verið flutt inn til landsins
rúmlega 220 tonn af úkraínsku
kjúklingakjöti. Er það um 36% af
öllum innflutningi á kjúklingakjöti
til landsins á tímabilinu. Í apríl voru
tæp 20 tonn af heilum frosnum
kjúklingi flutt inn frá Úkraínu.
Meðalkílóaverð þess var 356 kr. að
því er fram kemur í tölum Hagstofu
Íslands.
Ekki kunnugt um verðlækkanir
þrátt fyrir tollfrelsi
Guðmundur Svavarsson, formaður
búgreinadeildar kjúklingabænda,
segir að kjötið sé fyrst og fremst
framreitt í unnum matvörum og á
veitingastöðum.
„Mín tilfinning er sú að íslenskir
neytendur hafi gert sér grein fyrir
gæðum þessarar vöru og áhættu
tengdri sýklalyfjanotkun og
lágum kröfum til dýravelferðar.
Þeir hafi staðið vörð um íslensku
vöruna í búðum og sala úkraínska
kjúklingsins hafi því orðið minni
en verslunarmenn gerðu sér vonir
um. Kjúklingurinn hefur því fyrst
og fremst ratað inn á veitingamarkað
þar sem hægt er að dulbúa hann sem
íslenskan. Við sjáum dæmi um allt
að 85% samdrátt í sölu til tiltekinna
viðskiptavina á veitingamarkaði í
apríl. Við höfum ekki séð dæmi
um lækkað verð þar sem tollfrjáls
kjúklingur frá Úkraínu er í boði, né
heldur að uppruna sé sérstaklega
getið á matseðlum,“ segir Guð-
mundur.
Framboð umfram sölu
Hann bendir á að af öllum inn-
flutningnum var aðeins 40 tonn
heill kjúklingur. Um 260 tonn voru
beinlaus vara sem uppreiknað í heilan
fugl gerir um 390 tonn. Samtals jafn-
gildir innflutningurinn því um 430
tonn leiðrétt fyrir beinahlutfalli.
Alls voru ríflega 73 tonn af
kjúklingakjöti flutt til landsins
í aprílmánuði og var meðalverð
þess 617 kr. Samkvæmt Mælaborði
landbúnaðarins var framleitt
tæplega 666 tonn af kjúklingi í apríl-
mánuði hér á landi en sala kjúklings
nam rúmum 650 tonnum. Því er
framboð kjúklings umfram sölu.
Innflutningur á kjúklingakjöti frá
Úkraínu hófst í september á síðasta
ári þegar um 16 tonn voru flutt til
landsins. Innflutningurinn jókst
svo hvern mánuð og náði hámarki
í janúar þegar tæplega 108 tonn
voru flutt inn.
Í heild hafa tæplega 300 tonn af
kjúklingakjöti verið flutt til landsins
og heildarinnkaupaverð þess eru
tæplega 157 milljónir króna.
/ghp
Innflutt úkraínskt kjúklingakjöt
Mánuður Kíló
September 2022 15.988
Nóvember 2022 41.340
Desember 2022 19.800
Janúar 2023 107.600
Febrúar 2023 13.840
Mars 2023 79.314
Apríl 2023 19.332
Samtals: 297.214 Heimild: Hagstofa ÍslandsGuðmundur Svavarsson.
Guðmundur segir úkraínskan kjúkling hafa fyrst og fremst ratað inn á veitingamarkað. Ekki er skylt að upprunamerkja
búvörur á veitingastöðum en þeir sem bjóða upp á mat eiga að hafa slíkar upplýsingar til reiðu samkvæmt löggjöf.
Myndir / Alexander Mils
Riðuveiki:
Eitt sýni jákvætt á Urriðaá
– Um 8% smitdreifing á Bergsstöðum
Nú er ljóst að eina staðfesta
riðuveikitilfellið á Urriðaá í
Miðfirði var í kind sem kom frá
nágrannabænum Bergsstöðum
sem gjafagimbur haustið 2020.
Þetta eru lokaniðurstöður
sem Matvælastofnun hefur birt
tilkynningu um. Niðurskurður á
rúmlega 700 fjár var fyrirskipaður
á Urriðaá vegna þessarar kindar.
Bráðabirgðaniðurstöður úr grein-
ingum sýna frá Bergsstöðum benda
til þess að tæplega átta prósent
hjarðarinnar þar hafi verið smituð.
Kom ekki á óvart
Dagbjört Diljá Einþórsdóttir, bóndi
á Urriðaá, segir að þetta hafi ekki
komið þeim á óvart. „Við reyndum
að berjast ásamt öllum sveitungunum
okkar við að stöðva niðurskurð.
Okkur grunaði að smitið hefði ekki
náð lengra en að Bergsstöðum. En
það var ekkert hlustað á okkur. Okkur
finnst þetta bara grátleg staða, fórna
þessum góða stofni og svo finnst ekki
ein kind smituð frá Urriðaá.
Nú stefna þeir á að aflífa sölufé frá
bænum um miðjan júní þó öll okkar
sýni hafi verið neikvæð. Okkur finnst
þetta algjörlega galin vinnubrögð hjá
Matvælastofnun.
Yfir helmingurinn af fénu sem
við höfum selt frá Urriðaá hefur
aldrei komist í kynni við þessa sem
við áttum frá Bergsstöðum. Þessir
gripir voru allir seldir áður en sú
kind kom í fjárhúsin hjá okkur,“
segir hún.
Margra ára meðgöngutími
Í tilkynningu Matvælastofnunar
kemur fram að meðgöngutími
riðuveiki sé mörg ár og oftast ekki
hægt að greina smitefnið í heilasýnum
fyrr en mörgum árum eftir að kindin
smitast. Niðurstöðurnar þýði ekki
að engar af kindunum hafi verið
smitaðar, aðeins að smitefnið hafi
ekki greinst.
Matvælastofnun minnir bændur
á að gera viðvart ef þeir verða varir
við einkenni í fé sem geta bent til
riðu eða ef fé hjá þeim drepst af
óþekktum orsökum. /smh
Matvælarannsóknir:
Vaxandi krafa um
heildstæða sýn
Kallað var eftir samræmingu,
samtali samtaka svo sem
landbúnaðar og sjávarútvegs,
þolinmóðu fjármagni í framhalds-
rannsóknir og þróun og endur-
skoðun hamlandi regluverks á
málþingi MATÍS sem fram fór í
byrjun mánaðar.
Fjallað var um framtíð
matvælaframleiðslu á Íslandi
og hlutverk matvælarannsókna
til að stuðla að sjálfbærri
framleiðslu, nýsköpun og aukinni
verðmætasköpun. „Framtíð
matvæla framleiðslu varðar okkur
öll, ekki aðeins hér á landi heldur
á heimsvísu,“ sagði Svandís
Svavarsdóttir matvælaráðherra í
opnunarávarpi sínu. „Við þurfum
að svara því hvernig hægt er að
brauðfæða fleiri en nota sem minnst
af auðlindum til þess og losa sem
minnst af gróðurhúsalofttegundum.
Matvælaframleiðsla þarf að vera
sjálfbær til framtíðar og vísindi og
rannsóknir gegna þar lykilhlutverki,“
sagði hún jafnframt. MATÍS væri
alger kjölfesta í þessu viðfangsefni
hérlendis. Matvælastefna Íslands til
2040 var nýlega samþykkt á Alþingi.
Verðmæti fengins sjávarafla pr.
kíló úr sjó hefur verið fjórfaldað
á undanförnum árum með m.a.
flutningatækni og meiri nýtni en
slíkt þarf einnig að gerast í öðrum
matvælagreinum. Að greina áhrif
loftslagsbreytinga á matvælakerfi og
umhverfisáhrif matvælaframleiðslu
er meðal helstu rannsóknaáherslna
MATÍS. Meðal þess sem rannsakað
er þar á bæ eru áhrif þess að fóðra
nautgripi á þörungum, á metanlosun
og afurðir, og sömuleiðis hvaða
áhrif það hefur að fóðra sauðfé á
hvönn. Áhersla er á fullnýtingu;
hringrásarhagkerfi kjötframleiðslu
og aukna nýtingu hliðarafurða. Til
dæmis er skoðað hvernig nýta megi
blóð. Bent var á að neytendur væru
kröfuharðir og æ þyngra myndi vega
að kjötframleiðsla væri sjálfbær og
gengi ekki á auðlindir, gæði yrðu
umfram magn og vaxandi áhersla
á dýravelferð. Þarna lægju mikil
tækifæri fyrir hágæða kjötframleiðslu.
Tvöfalda þarf próteinframleiðslu
Innlend kornrækt annar nú um 1%
af kornneyslu Íslendinga. Flutt séu
inn 25 þúsund tonn af korni og
hveiti árlega. Byggrækt hafi gengið
vel og ræktun hafra sé nýjung sem
lofi góðu en leggja verði ríkari
áherslu á vöruþróun úr korni frá
íslenskum kornbændum, meðal
annars með líftækni.
Fjallað var um nýprótein á málþinginu
og mikilvægan þátt þess í sjálfbærri
umbreytingu matvælakerfa. Bent var
á að aðgengi að hágæðapróteinum
færi minnkandi en eftirspurn hefði
á hinn bóginn aldrei verið meiri.
Talið er að próteinframleiðsla á
heimsvísu þurfi að tvöfaldast fyrir
árið 2050. Nýprótein geta verið t.d.
þörungar, örþörungar, stórþörungar,
stórfrumuprótein, skordýraprótein,
einfrumungar og grasprótein.
Rannsóknir standa yfir á nýtingu
þeirra í matvörur, fæðubótarefni
og fóður til m.a. fiskeldis og
kjúklingaræktar.
Spurt var hvort þörungar væru
matur framtíðarinnar og tíndir til
fjölmargir heilsubætandi kostir
þeirra og ljóst að þar er vannýtt
lífauðlind sem rannsaka þarf og nýta
mun betur. Möguleikarnir séu nánast
óþrjótandi.
Framleiðsla áburðar var sögð
mengandi og ekki sjálfbær. Óskastaða
hérlendis væri mögulega að fanga
fosfór og kalí úr aukaafurðum,
nýta nitur úr lofti og fá brennistein
frá Landsvirkjun og væri þá til
orðinn sjálfbær áburður. Þá lægju
tækifæri í notkun fiskeldisseyru,
sláturúrgangs og alifuglaskíts en gera
þyrfti áhættugreiningu á efnunum
og kanna leiðir til flutnings og
dreifingar m.t.t. áhættuþátta. Fram
kom á málþinginu að nauðsynlegt
væri að efla þekkingarstraum milli
aðila sem koma að rannsóknum og
framleiðslu matvæla. Skilgreina
verði hvort afurðir og vörur séu
hugsaðar á innanlandsmarkað
eða markaði erlendis og gera
viðskipta- og markaðsrannsóknir.
Rannsóknarstyrkjum eigi ekki
endilega að úthluta heldur fremur að
virkja samkeppni milli vísindamanna.
Þá sé mikilvægt að vinna að því að
verkefni strandi ekki þegar búið er að
þróa hugmynd og hrinda úr vör, en
einn mesti áhættuþáttur bæði fjárfesta
og fyrirtækja sé í fjármögnun á
stækkunarþrepi. /sá