Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
FRÉTTIR
www.kofaroghus.is
Sími 553 1545
TIL Á LAGER
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000 kr.
25%
afsláttur
BREKKA 34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000 kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000 kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIG PLÁSS?
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
FÁANLEGT Í
VEFVERSLUN
Nýsköpun:
Broddmjólk og mysuprótein
undirstaða bætiefnis
– Matvælasjóður styrkir vöruþróun á fæðubótarefnum úr landbúnaðarafurðum
Fyrirtæki hjónanna Birnu Guð-
rúnar Ásbjörnsdóttur og Guð-
mundar Ármanns Péturssonar,
Jörth, hlaut á dögunum tæplega
20 milljón króna styrk úr
Matvælasjóði fyrir verkefni sem
miðar að því að hagnýta mysu-
prótein með íblöndun góðgerla.
Vonast Birna til að úr því þróist
ný afurð undir merkjum Jörth sem
hefur að undanförnu auglýst sína
fyrstu vöru á markaði, bætiefnið
Abdom 1.0, sem unnið er úr
broddmjólk mjólkurkúa.
Broddmjólk hefur verið
hjónunum hugleikin í áraraðir.
„Ég ólst upp við að fá ábrysti og
við hjónin höfum vanið okkur á að
drekka hana beint,“ segir Birna en út
frá samtali þeirra um heilsusamleg
áhrif neyslu hennar varð til hugmynd
að vöru.
Eftir sjö ára vegferð kom bæti-
efnið Abdom 1.0 síðan á markað
í mars síðastliðnum. Það er að
uppistöðu unnið úr broddmjólk úr
Gunnbjarnarholti. „Mjólkinni er
safnað, hún gerilsneydd, gerjuð
og frostþurrkuð, við hana er svo
bætt sérhannaðri míkróhjúpaðri
góðgerlablöndu, hún svo sett í hylki
í GMP vottaðri framleiðslu,“ segir
Birna. Viðtökur hafi verði góðar.
„Við erum ekki í massaframleiðslu
því við erum að vinna úr
takmörkuðum hráefnum og seljum
eingöngu beint í gegnum netverslun
á heimasíðu Jörth.“
Birna hefur á undanförnum
áratugum fengist við næringar-
ráðgjöf og fræðslu en meltingar-
vegurinn og þarmaflóran hefur
verið þungamiðja rannsókna
hennar í næringarlæknisfræði. „Ég
er iðulega spurð að því hvað hægt
er að taka inn til að bæta þarma-
flóruna. Mataræðið er alltaf númer
eitt, tvö og tíu. En ég hef þó alltaf
verið að leita að góðu bætiefni.“
Broddmjólkin komi þar sterk
inn enda innihaldi hún æskilega
næringu og vörn fyrir afkvæmið
fyrst um sinn. Í broddmjólk er fita,
hátt próteinhlutfall, kolvetni og hún
er rík af steinefnum og vítamínum.
Birna segir broddmjólk ekki
nýtta í dag á sama hátt og áður.
„Kálfurinn fær nægju sína en
nýting á umfram broddmjólk sem
kýrin framleiðir er lítil enda hefur
neysla ábrysta minnkað. Við sáum
tækifæri í að nýta þessa vannýttu
auðlind.“
Gerjuð matvæli mikilvæg
Með rannsóknum og vísindum
er í auknum mæli farið að tengja
ýmsa sjúkdóma við mataræði með
því að horfa á heilsuna í gegnum
þarmaflóruna og meltingarveginn.
Einn af lykilþáttum góðrar þarma-
flóru er neysla gerjaðrar næringar.
„Við ættum í raun að vera að fá í
okkur gerla og gerjaðar afurðir alla
daga en við erum almennt ekki að
því lengur því mataræði hefur breyst
í gegnum tíðina.
Áður fyrr gerjuðum við matvæli
til að auka geymslutíma en í dag
erum við með ísskápa og pakkamat
og þannig hefur þörfin fyrir gerjun
matvæla minnkað. Við hugsuðum
því bætiefnið einnig út frá því,
það er gerjuð afurð sem dekkar þá
neyslu fyrir nútímamanneskjuna,“
segir Birna.
Næsta vara á dagskrá Birnu
og Guðmundar inniheldur
mysuprótein. „Í dag er mikið af
mysupróteinum flutt úr landi og
nýtt í líkamsræktariðnaðinn, enda
er þetta góður og hollur próteingjafi
fyrir líkamann. Það liggja tækifæri
í því að nýta þessa afurð á nýjan
hátt hérlendis, vinna próteinin og
blanda þau gerlum, líkt og við erum
að gera með broddmjólkina, til að
ná fram ákveðinni virkni.“
Hún segir styrki frá Matvælasjóði
breyta öllu í vöruþróunarferlum
líkt og þessum. „Styrkurinn gerir
okkur kleift að komast upp úr
holunni og ráðast í verkefnin.
Það styttir leiðina að eiginlegri
vöruframleiðslu,“ segir Birna, en
þau hlutu sams konar styrk fyrir
þróun Abdom 1.0 árið 2021. /ghp
Miðja alheimsins innvortis
Heilbrigð þarmaflóra er mikilvæg af fjölmörgum ástæðum að sögn Birnu.
„Þarmaflóran er miðja alheimsins, innvortis. Hún er þetta umbreytingarafl sem
við höfum innra með okkur. Þegar við látum eitthvað ofan í okkur fer maturinn
gegnum þetta langa rör, meltingarveginn. Hann er þakinn örverum frá munni
og alveg í gegn. Samsetning þarmaflórunnar ræður miklu um hversu vel eða
illa okkur gengur að ná góðri næringu úr matnum. Við erum bæði með hag-
stæðar og óhagstæðar örverur sem hafa áhrif á heilsuna. Það veltur á því hvað
við setjum ofan í okkur hvaða örverum við erum að skapa góðar aðstæður til
að dafna.“
Hún segir vísindin hafa sýnt fram á tengsl ýmissa sjúkdóma við mataræði í
gegn um rannsóknir á þarmaflórunni og meltingarveginum. Ef þarmaflóran sé
í miklu ójafnvægi þá geta einkennin verið t.d. uppþemba og óregla í meltingu.
En önnur einkenni utan meltingartruflana geta líka verið einkenni ójafnvægis í
þarmaflóru, s.s. húðvandamál, ofnæmi og óþol.
Birna G. Ásbjörnsdóttir hefur á undanförnum áratugum fengist við næringarráðgjöf og fræðslu en meltingarvegurinn
og þarmaflóran hefur verið þungamiðja rannsókna hennar í næringarlæknisfræði. Mynd /ghp
Matvælasjóður styrkti
fjölbreytt verkefni
Fimmtíu og þrjú verkefni
hlutu styrk úr Matvælasjóði en
úthlutun var tilkynnt þann 31.
maí sl. Styrkirnir námu alls 577
milljónum króna.
Alls bárust 177 umsóknir til
sjóðsins að þessu sinni en veittir
eru styrkir úr fjórum flokkum; Báru,
Keldu, Afurð og Fjársjóði.
Bára styrkir verkefni á hugmynda-
stigi að hámarki þremur milljónum
króna. Styrkflokkurinn er ætlaður
einstaklingum og litlum fyrirtækjum
fyrir 6 mánaðar löng verkefni sem
geta verið til að kanna fýsileika, greina
eða útfæra hugmynd tengda íslenskri
matvælaframleiðslu. Alls hlutu 25
verkefni styrki en á listanum má
m.a. finna verkefni um gráðostagerð,
geitamjólkurafurðir, gerilsneyðingu
matvæla með háþrýstingi, húðvörur
úr íslenskri nautatólg, krabbavinnslu,
heimavinnslu mjólkurafurða, forystu-
fjárkjöt, um tónik úr íslenskum
jurtarótum og leðurgerð með hreistur
og beinum.
Rannsóknir á eggjaneyslu
og þörungapróteini
Kelda styrkir rannsóknir og verkefni
sem miða að því að afla nýrrar
þekkingar vítt á sviði íslenskrar
matvælaframleiðslu. Ellefu verkefni
hlutu styrk en hæstan styrk flokksins,
30 milljónir króna, hlaut Orify ehf.
fyrir verkefni sem nefnist „Stafrænn
tvífari matvæla“.
Matís er skráður umsækjandi
að sjö verkefnum sem hlutu styrk
sem fjalla m.a. um þörungaprótein,
fóðrun holdanauta, eggjaneyslu,
bruggger og kolefnisspor matvæla.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hlaut styrk fyrir rannsókn á bóg-
kreppu og Landbúnaðarháskóli
Íslands fékk styrk fyrir tveimur
rannsóknum.
Níu verkefni hlutu styrk úr Keldu,
sem hefur þann tilgang að aðstoða
fyrirtæki við að styrkja markaðsinnviði
og markaðssókn afurða. Veittir voru
styrkir fyrir markaðsherferð fyrir nýja
wasabi vöru, fyrir vörumerkjaþróun
Landeldis ehf., tvær ginframleiðslur
fengu styrk fyrir markaðssókn og
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hlaut
styrk fyrir markaðssetningu Collab
í Svíþjóð.
Vegan álegg og fullvinnsla
hrossakjöts
Átta verkefni fengu úthlutun úr
Afurð sem styrkir verkefni sem
komin eru af hugmyndastigi en eru
þó ekki tilbúin til markaðssetningar.
Styrkveitingar miða að því að gefa
styrkþegum tækifæri til að móta og
þróa afurðir úr hráefnum sem falla
til við matvælaframleiðslu.
Hæstan styrk flokksins, 30
milljónir króna, hlaut fyrir-
tækið Klaki Tech fyrir verkefnið
„Hrognaflokkunar- og pökkunar-
búnaður“. Fyrirtækið Jörth ehf.
hlaut tæpar 20 milljónir króna til að
hagnýta mysuprótein með íblöndun
góðgerla, en viðtal við Birnu G.
Ásbjörnsdóttur, einn stofnenda
fyrirtækisins, má nálgast hér til
hliðar. Einnig voru veittir styrkir
fyrir verkefni sem miða að því
að nýta hliðarstraum við vinnslu
eldislax til matvælaframleiðslu,
fyrir ræktun kóngaostra, fyrir þróun
nýrra afurða með fullvinnslu á
hrossakjöti og fyrir þróun á íslensku
vegan áleggi.
Listi yfir styrkþega Matvæla-
sjóðs má nálgast á vefsíðu matvæla-
ráðuneytisins. /ghp
Banna lausagöngu
á Brekknaheiði
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
hefur formlega farið fram á
að Vegagerðin girði með fram
veginum yfir Brekknaheiði
samhliða lagningu nýs vegar yfir
hluta heiðarinnar.
Vegagerðin setti sem skilyrði
fyrir þátttöku í kostnaði sem af þessu
hlytist að Langanesbyggð bannaði
lausagöngu búfjár á friðuðu svæði
við veginn yfir Brekknaheiði. Ætlar
sveitarstjórn að verða við þessum
óskum og banna lausagöngu búfjár
og friða svæði með fram veginum
frá gatnamótum að Þórshöfn og að
bænum Felli í Finnafirði. Þetta kemur
fram í fundargerð sveitarstjórnar frá
11. maí sl. /sá