Bændablaðið - 08.06.2023, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
FRÉTTIR
Alls voru 665 hross flutt út á fyrstu
fimm mánuðum ársins, að því er
fram kemur í tölum WorldFengs,
upprunaættbók íslenska hestsins.
Útflutningshrossin skiptust niður
í 292 hryssur, 142 stóðhesta og 231
gelding og fóru þau til fimmtán
landa. Meira en helmingur þeirra,
337 talsins, fóru til Þýskalands.
Fjörutíu hross fóru til Bandaríkjanna,
59 til Svíþjóðar, 59 til Danmerkur,
43 til Sviss, 41 til Austurríkis og 22
til Frakklands.
Alls hafa 27 hrossanna fengið
fyrstu einkunn í kynbótadómi. Hæst
dæmdu útfluttu hross það sem af
er ári eru stóðhestarnir Spaði frá
Stuðlum (ae. 8,73), Organisti
frá Horni I (ae. 8,72), Púki frá
Lækjarbotnum (ae. 8,49), Kambur
frá Akureyri (ae. 8,42), Steingerður
frá Horni I (ae. 8,41), Sigurfari frá
Sauðárkróki (ae. 8,41) og Boði
frá Breiðholti, Gbr. (ae. 8,40). Ný
heimkynni Spaða og Boða verður
Kentucky-ríki Bandaríkjanna.
/ghp
Útflutningur hrossa:
Flest hross flutt til Þýskalands
Samstaða framleiðenda
afar mikilvæg
– Jóhanna á Háafelli nýr formaður Beint frá býli
Jóhanna Bergmann Þorvalds-
dóttir, geitfjárbóndi á Háafelli
í Hvítársíðu, var kjörin nýr
formaður félags frumframleiðslu-
og heimavinnsluaðila á lögbýlum,
Beint frá býli.
Beint frá býli var stofnað árið
2008 og í dag eru meðlimir þess 55
talsins. Megintilgangur félagsins
er að hvetja til heimavinnslu og
sölu beint frá bændum og vinna
að hagsmunum þeirra bænda sem
stunda eða hyggjast stunda hvers
konar framleiðslu og sölu á heima-
unnum afurðum.
Beint frá býli varð aðildarfélag
Samtaka smáframleiðenda matvæla
fyrir rúmi ári síðan og eru samanlagt
114 félagsmenn á lögbýlum í
félögunum og heildarfjöldi félags-
manna ríflega 200.
Beint frá býli í 15 ár
„Þau viðfangsefni sem helst eru á
döfinni núna þegar við erum að sigla
inn í sumarið eru að venju þátttaka í
bænda- og öðrum matarmörkuðum
víða um land og svo matarmarkaði
Krónunnar í haust. Það stefnir í
stórt ferðamannasumar svo margir
félagsmenn verða uppteknir við
að taka á móti ferðamönnum og
selja vörur sínar beint frá býli.
REKO salan er alltaf á uppleið og
svo að sjálfsögðu 15 ára afmæli
félagsins sem við stefnum á að halda
upp á í haust.
Hlutverk formanns er margs
konar, en hefur þó breyst mikið
eftir að við fengum til liðs við
okkur frábæran framkvæmdastjóra
sem við deilum með Samtökum
smáframleiðenda, hana Oddnýju
Önnu Björnsdóttur. Fyrst og fremst
er formaður andlit félagsins út á
við. Titlinum fylgja mætingar á
fundi af ýmsum toga og að halda
utan um stjórnarfundi og vera í góðu
sambandi við stjórnarmeðlimi og
félagsmenn,“ segir Jóhanna.
Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur
Meginmarkmið félagsins er að
tryggja neytendum gæðavörur þar
sem öryggi og rekjanleiki vöru
er í fyrirrúmi. Einnig að hvetja til
varðveislu hefðbundinna fram-
leiðsluaðferða og kynningar á
svæðisbundnum hráefnum og
hefðum í matargerð.
„Það er mjög mikilvægt fyrir
frumframleiðendur að hafa félag
eins og Beint frá býli sem vinnur
að hagsmunamálum félagsmanna, er
málsvari þeirra, kemur sjónarmiðum
þeirra á framfæri og stuðlar að
framförum í málefnum sem þá
varða. Í gegnum félagið er veitt
ýmiss konar fræðsla, ráðgjöf og
stuðningur. Slíkur félagsskapur
auðveldar okkur að leita til hvert
annars með hugmyndir, aðferðir og
bestu leiðir til að koma hugmyndum
í framkvæmd.
Samstaðan er líka afar mikilvæg
þegar verið er að reyna að ná í gegn
breytingum á regluverki til að draga
úr hindrunum og fá í gegn leyfi fyrir
til dæmis heimavinnsluaðstöðu á
mjólkurafurðum eða kjötvinnslum,
þá þurfa ekki allir að fara í gegnum
allt ferlið heldur fá upplýsingar og
stuðning frá þeim sem riðið hafa
á vaðið,“ segir Jóhanna, en sjálf
hefur hún verið með heimavinnslu á
geitfjárafurðum á Háafelli í áraraðir.
Hún framleiðir meðal annars kjöt,
osta, snyrtivörur og handverk úr
geitaskinni.
Auk Jóhönnu var ný stjórn
Beint frá býli kjörin á aðalfundi
þess þann 25. apríl sl. Jóhanna
Sjöfn Guðmundsdóttir er nýr vara-
formaður félagsins, Hanna S.
Kjartansdóttir ritari, Ann-Charlotte
Fernholm var kjörinn gjaldkeri
og Rúnar Máni Gunnarsson kom
nýr inn í stjórn. Varamenn eru
Guðmundur Jón Guðmundsson og
Freyja Magnúsdóttir. /ghp
Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, geitfjárbóndi á Háafelli í Hvítársíðu, var kjörin nýr formaður félags frumframleiðslu-
og heimavinnsluaðila á lögbýlum, Beint frá býli, hefur verið með heimavinnslu í áraraðir. Mynd / Aðsend
Kornræktendur fá
fyrirframgreiðslu
Opnað var fyrir umsóknir um
jarðræktarstyrki og landgreiðslur
þann 1. júní sl.
Þeir sem hyggjast rækta korn
og stofna jarðræktarumsókn og
skrá upplýsingar um sáningu
á því í síðasta lagi 15. júní fá
fyrirframgreiðslu. Miðast hún að
jafnaði við 25% af einingaverði
á hektara jarðræktarstyrks ársins
á undan, að því er fram kemur í
tilkynningu frá matvælaráðuneytinu.
Fyrirframgreiðslan er valkvæð
og er stefnt að því að greiða hana út
fyrir 1. júlí. Kemur hún til frádráttar
jarðræktarstyrkjum umsækjanda sem
koma til greiðslu í desember. Ekki
er greidd fyrirframgreiðsla vegna
annarrar ræktunar en kornræktar.
„Þessi breyting er gerð í samræmi
við tillögur Landbúnaðarháskóla
Íslands í skýrslunni Bleikir akrar til
eflingar kornræktar. Tilgangurinn er
að koma til móts við kostnað bænda
vegna sáningar og áburðargjafar í
kornrækt,“ segir í tilkynningu
matvælaráðuneytisins.
Almennur umsóknarfrestur vegna
jarðræktarstyrkja og landgreiðslna
verður eftir sem áður 1. október
en þá á að vera búið að ganga frá
endanlegri umsókn. /ghp
Spaði frá Stuðlum er nú í Þýskalandi en heldur svo til Bandaríkjanna.
Mynd /Alexandra Dannenmann
Brothættar
byggðir styrktar
Styrkjum til ýmissa verkefna í
brothættum byggðum hefur verið
úthlutað.
Byggðastofnun segir frá úthlutun
rúmra 48,5 milljóna króna til 72
verkefna sem styrkja á byggð, búsetu
og mannlíf byggðarlaga sem starfa
undir merkjum Brothættra byggða.
Meðal verkefna sem hlutu styrk
er vöruþróun á nautakjöti, hvítlauks-
ræktun og ullarvinnsla í Dalabyggð,
verkefni um iðnaðarreykhús,
kaffibrennslu og verslun á Stöðvar-
firði, bjórbrugg og framleiðslueldhús
á Ströndum og kjötvinnsla í
Árneshreppi.
Verkefninu Brothættar byggðir
var komið á fót með Byggðaráætlun
2014–2017 sem sértækt verkfæri
Byggðastofnunar til að aðstoða
byggðarlög sem standa höllum fæti.
Markmið verkefnisins er m.a. að
stöðva viðvarandi fólksfækkun og
leita lausna með íbúum byggðar-
laganna í samvinnu við ríkisvaldið,
landshlutasamtök, sveitarfélög og
brottfluttra íbúa. Þau byggðarlög
sem hluti eru af verkefninu í dag
eru Dalabyggð, Stöðvarfjörður,
Strandabyggð og Bakkafjörður.
/ghp
Bygg á akri. Mynd / ghp
Frá Strandabyggð. Mynd / ghp
9. – 20. september 2023
Fararstjórn: Kristín Jóhannsdóttir &
Magnús R. Einarsson
Verð 389.000 kr. á mann í tvíbýli
Bókaðu núna á bændaferðir.is
Upplifðu glæsilegar og einstaklega
áhugaverðar spænskar borgir, heimsborgina
Madríd, hina undurfögru Valencia og
sólríku virkis- og strandborgina Alicante.
Undurfagra
Valencia & Alicante
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2
108 Reykjavík