Bændablaðið - 08.06.2023, Page 13
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Betri lífsgæði með Active
JOINTS
Már Guðnason húsasmiður hefur starfað við álagsvinnu
í gegnum árin. Nú þegar hann er kominn á eftirlaun
hafa komið fram ýmis eftirköst erfiðisins. Már hefur
fundið út að Active JOINTS frá Eylíf reynist vel til að
bæta lífsgæðin.
„Ég var alltaf í átaksvinnu, aðallega í virkjunum.
Það hefur komið niður á líkamanum en ég hef verið
sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í járna-
bindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það
reynir á skrokkinn og kemur fram þegar maður eldist,“
segir hann. „Ég var með mikla verki í hálsinum og átti
erfitt með svefn. Ég hafði leitað til heimilislækna í ein-
hver ár, en það eina sem ég fékk út úr því var að taka
verkjalyf. Ég fór í nudd með litlum árangri, verkirnir
versnuðu bara ef eitthvað var. Ég var síðan sendur í
myndatöku og þá kom fram mikið slit í hálsliðum en
því miður á svo vondum stað að ekkert er hægt að
gera. Eina ráðið voru verkja- og gigtartöflur það sem
eftir er, sem mér hugnaðist ekkert sérstaklega vel,“
útskýrir Már.
Get loksins sofið
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um Active JOINTS og
hugsaði með mér að það væri nú allt í lagi að prófa
þetta. Það var í mars 2020. Eftir fjórar vikur var ég
farinn að finna fyrir að eitthvað var að breytast og
eftir fjóra mánuði var ég orðinn töluvert betri. Ári
seinna var ég hættur að finna fyrir verkjunum í hálsinum.
Fyrir mér er þetta kraftaverk og lyginni líkast. Ég fékk
nýtt líf. Engar verkjatöflur og mér gekk vel að sofna á
kvöldin. Í rauninni er ég laus við verkina,“ segir Már,
sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar sannarlega að taka
Active JOINTS frá Eylíf áfram.
Már var svo óheppinn að fótbrjóta sig fyrir sex vikum
og er viss um að Active JOINTS hefur hjálpað
beinunum að gróa. Læknirinn er ánægður með hversu
vel hefur gengið hjá honum. „Ég var svo óheppinn á leið
í Krónuna á Hvolsvelli að detta. Það var rok úti og ég
var með tvo nælonpoka sem fuku frá mér. Í flýtinum
að ná þeim hrasaði ég með þeim afleiðingum að ég
mölbraut á mér fótinn. Ég brotnaði svo illa að læknirinn
sagði að í raun áður en aðgerðin fór fram hefði
fóturinn verið ónýtur. Aðgerðin hefði hins vegar
gengið vel og ég er farinn að stíga í fótinn,“ segir
hann og bætir við: „Enda læknirinn, Benedikt
Árni Jónsson, algjör snillingur, besti skurðlæknir á
landinu að öðrum ólöstuðum,“ segir hann.
Active JOINTS styrkir beinin
Már segir að hann hafi spurst fyrir hjá Eylíf hvort það
hentaði að taka Acive JOINTS á meðan beinin væru
að gróa. „Mér var sagt að það væri mjög gott þar sem
Active JOINTS styrkir beinin. Ég hélt því áfram að
taka hylkin og er viss um að það hefur hjálpað þeim
að gróa,“ segir hann. „Ég er bara virkilega ánægður
með virknina í Active JOINTS og hef mikla trú á
þessu fæðubótarefni enda eru innihaldsefnin kalkrík
sem er nauðsynlegt fyrir viðhald beina. Einnig er C-
og D3-vítamín í Active JOINTS frá Eylíf. Ég get ekki
annað en mælt með vörunni,“ segir Már og bætir við
að eiginkonan taki Smoother SKIN & HAIR og sé
sömuleiðis mjög ánægð með þá vöru.
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á
Grenivík undir GMP gæðastaðli.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Ískalki Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Algalíf Reykjanesbæ
• Kísillinn frá Geosilica Reykjanesbæ
• Kollagen frá Marine Collagen Grindavík
• Kítósan frá Primex Siglufirði
• Íslenskar jurtir frá Íslenskri Hollustu Hafnarfirði
Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.
Ragnar Alfreðsson
Trésmiður
Már Guðnason
Húsamiður
Mælir hiklaust með
Stronger LIVER
Ragnar Alfreðsson trésmiður notar bætiefnið Stronger
LIVER með frábærum árangri. „Blóðið í mér hefur verið
að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum
því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því
í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að
taka inn Stronger LIVER frá Eylíf hafa lifrargildin, sem
voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er
einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta
magnaða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir
mig,“ segir Ragnar, alsæll með árangurinn.
Hann hefur tekið inn Stronger LIVER samviskulega
upp á dag hvern í hálft annað ár. „Ég mæli 100 prósent
með Stronger Liver því ég þekki það af eigin raun. Ég er
yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir töflum eða bætiefnum en
fékk ábendingu um Stronger LIVER frá Eylíf. Í fyrstu var
ég hikandi og hafði enga trú á áhrifum þess en eftir að ég
fór að lesa mér til um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var
nýkominn úr blóðprufu þar sem lifrargildin voru alltof
há og fannst ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu
séns. Eftir þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast
orðlaus yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég
fór næst í blóðprufu. Stronger LIVER var greinilega að
svínvirka,“ segir Ragnar, og læknirinn hans var líka hissa
á betri lifrargildum. „Ég sagði lækninum að ég væri að
taka inn Stronger LIVER og hann sagði það greinilega
virka mjög vel, sem eru sannarlega góð meðmæli.
Vitaskuld má maður ekki vera með fordóma fyrirfram
og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig
líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum
hráefnum,“ segir Ragnar sem mælir eindregið með
Stronger LIVER. „Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi
hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því nýrnagildin
hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger
LIVER. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram að
taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu mína.
Ég mæli því hiklaust með Stronger LIVER fyrir alla sem
glíma við ójafnvægi í járnbúskapnum því allt hefur það
lagast í mínu tilviki og ég hef þurft að fara miklu sjaldnar
í aftöppun en áður. Ég hef líka hvatt félaga mína sem eru
með of hátt lifrargildi að taka inn Stonger LIVER og senn
kemur í ljós hvort gildin hafi ekki lækkað hjá þeim líka.“